Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðflug hafið Aðflug Icelandair flugvélarinnar er hafið. Búast má við að hún lendi á næstu mínútum. Viðbúnaður er gríðarlegur en almannavarnir telja að lendingin ætti að ganga áfallalaust fyrir sig. 18.5.2012 21:13
Lendingu seinkað - herþoturnar fóru aldrei í loftið Lendingu vélar Icelandair verður seinkað aftur. Líklega mun hún ekki lenda fyrr en í fyrsta lagi um klukkan níu. Ástæðan er enn sú sama, flugmenn vélarinnar vilja brenna meira eldsneyti. 18.5.2012 20:44
Almannavarnir: Allt bendir til þess að flugvélin geti lent eðlilega Búið er að skoða hjólabúnað flugvélarinnar samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. Allt bendir til að vélin geti lent á eðlilegan hátt. Enn er þó verið að eyða eldsneyti til að létta vélina fyrir lendingu sem er áætluð kl. 20:35. 18.5.2012 20:35
Öryggislendingu seinkað - reyna að brenna meira eldsneyti Aftur er búið að seinka lendingu vél Icelandair. Nú er áætlað að hún lendi rúmlega hálf níu. Flugvélin flýgur nú í hringi skammt frá landi en það mun vera til þess að brenna meira eldsneyti. 18.5.2012 20:23
Flaug lágflug yfir Keflavíkurflugvöll Flugvél Icelandair flýgur nú annan hring eftir að hafa flogið lágflug fyrir Keflavíkurflugvöll svo sérfræðingar gætu séð lendingarbúnaðinn. 18.5.2012 20:12
Lendingu seinkað - herþotur fljúga til móts við flugvélina Lendingu farþegaþotunnar hefur verið seinkað, en áætlað er að hún muni lenda um tíu mínútur yfir átta í kvöld. Samkvæmt fréttastofu RÚV hafa tvær bandarískar herþotur, sem sinna loftrýmisgæslu hér á landi, verið sendar til móts við flugvélina til þess að kanna ástand lendingarbúnaðarins. 18.5.2012 19:52
Flugslysaáætlun virkjuð Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar hefur verið virkjuð vegna flugvélar sem missti hjól í flugtaki frá Keflavíkurflugvelli samkvæmt tilkynningu frá Almannavörum ríkislögreglustjóra. Aðgerðastjórn á Keflavíkurflugvelli hefur verið virkjuð og stýrir aðgerðum á vettvangi. 18.5.2012 19:36
Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg ræðir við Framsóknarflokkinn Nýr meirihluti í bæjarstjórn Árborgar er í burðarliðnum eftir að einum bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna var tjáð að hún nyti ekki stuðnings flokkssystkina sinna. 18.5.2012 19:00
Farþegaþota þarf að nauðlenda á Keflavíkurflugvelli - eitt hjól datt af Allt tiltækt lið slökkviliðs og lögreglu auk björgunarsveita hefur verið sent á Keflavíkurflugvöll vegna tilkynningar um stóra farþegaþotu af gerðinni Boeing, sem þarf að nauðlenda á flugvellinum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu þá lítur út fyrir að dekk hafi losnað af flugvélinni við flugtak. Vélin fór á loft frá Keflavík fyrr í kvöld, þegar í ljós hverskyns væri var henni snúið til baka til lendingar. Áætlað er að flugvélin lendi klukkan 19:40. Þá hefur stjórnstöð Almannavarna í Skógarhlíð verið virkjuð 18.5.2012 18:58
Tengsl á milli brennisteinsmengunar frá jarðvarmavirkjunum og astma Tengsl eru á milli brennisteinsmengunar frá jarðvarmavirkjunum og astmalyfjanotkunar. Rannsókn sem nýlega var birt í alþjóðlegu vísindatímariti sýnir að fimm til tíu prósent meira er notað af astmalyfjum þegar slík mengun mælist mikil á Reykjavíkursvæðinu. Orkuveitan ætlar að styrkja frekari rannsóknir. 18.5.2012 18:36
Guðmundur Steingrímsson: Þetta er okkar hjartans mál "Ég varpaði þessum hugmyndum fram í lok síðasta árs, um að þeir peningar sem væru bundnir í bönkunum væru að hluta til notaðir til fjárfestinga í skapandi greinum, nýsköpun og rannsóknum sem ættu að auka á hagvöxt,“ segir Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, en hann ásamt Heiðu Kristínu Helgadóttur, komu að aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í Iðnó fyrr í dag. 18.5.2012 17:56
Vefsíða opnuð til höfuðs forseta Íslands Ónafngreindir aðilar hafa opnað vefsíðu sem leynt og ljóst er beint gegn Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands. Á vefsíðunni er ekkert birt annað en kafli úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem fjallar um þátt forsetans í aðdraganda að bankahruninu. 18.5.2012 17:03
Hollande kominn til Bandaríkjanna Francois Hollande, sem sór embættiseið sem forseti Frakklands á þriðjudaginn, er kominn til Bandaríkjanna. 18.5.2012 16:55
Mál Gunnars komið til Ríkissaksóknara Ríkissaksóknari kannar nú hvort grundvöllur er fyrir því að gefa út ákæru á hendur Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. 18.5.2012 16:44
Áætlun um afnám hafta skilar ekki árangri Áætlun Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta skilar ekki árangri og skaðinn af höftunum fer vaxandi dag frá degi. Þetta sagði Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Illugi var málshefjandi í umræðum um afnám gjaldeyrishafta á Alþingi í dag. 18.5.2012 16:26
Listahátíð sett í dag Listahátíð verður sett í Hörpu í dag með því að Retro Stefsson leikur tónlist og dansarar dansa nýtt verk með þeim. Skrúðganga var farin frá Hörpu til Ráðhússins í dag, þar sem almenningi var boðið að taka þátt. Á morgun verða myndlistaopnanir og á sunnudag mun svo rússneski píanósnillingurinnn Arcaldi Volodos leika á einleikstónleikum. 18.5.2012 15:47
Mótmælt í Aleppo Þúsundir mótmæla nú í borginni Aleppo í norðurhluta Sýrlands. Mótmælin hófust fyrir fyrr í dag en nú þegar hefur slegið í brýnu milli aðgerðarsinna og öryggissveita. 18.5.2012 15:41
Björk í Konunglegu sænsku tónlistarakademíuna Tónlistarkonan og listamaðurinn Björk Guðmundsdóttir hefur verið valin í stjórn Konunglegu sænsku tónlistarakademíunnar. 18.5.2012 15:02
Talað í 30 klukkustundir um stjórnarskrá Síðari umræða um tillögu meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu í stjórnarskrármálinu stendur nú yfir á alþingi. Þingmenn hafa talaði í tæplega þrjátíu klukkustundir um málið en fimmtán eru á mælendaskrá. Upphaflega var lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram samhliða forsetakosningunum í sumar en ekki náðist að klára umræður á tilsettum tíma. Meirihluti stjórnskipunar og eftirlitsnefndar lagði því fram breytingartillögu sem gerir ráð fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram eigi síðar en 20. október næstkomandi. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt tillöguna sem og nokkrir þingmenn Framsóknarflokks. 18.5.2012 14:55
Þóra búin að eiga Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi er búin að eiga. Stúlka kom í heiminn klukkan sex mínútur í sjö í morgun og var 18 merkur og 55 sentimetrar. Móður og barni heilsast vel, samkvæmt upplýsingum frá Svavari Halldórssyni, föður barnsins. 18.5.2012 14:00
Sjálfbært þorp um vind og svínaskít Þorpið Feldheim í nágrenni Berlínar er sjálfu sér nægt um rafmagn og hita. Vindurinn og sólin knúa rafmagnstæki þorpsins, og reyndar gott betur en það. Þorpsbúar ylja sér svo við varma sem byggir á úrgangi þeirra helstu framleiðsluvöru, svínanna. 18.5.2012 14:00
Telur al-Qaeda bera ábyrgð á árásum í Sýrlandi Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna, segir að hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafi staðið að baki sjálfsmorðssprengjuárásum í sýrlensku borginni Damaskus í síðustu viku. 18.5.2012 13:50
Starfsfólk RÚV mun sjá um kosningaumfjöllunina Ekki kemur til greina að fá utanaðkomandi aðila til að stýra kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins líkt og einn forsetaframbjóðendanna hefur farið fram á. Útvarpsstjóri segist hafa fullan skilning á áhyggjum forsetaframbjóðenda en ekki sé hægt að breyta sögunni. 18.5.2012 13:24
Horfið frá stefnu sjálfstæðis- og framsóknarmanna í atvinnumálum Jóhanna Sigurðardóttir boðaði nýjar áherslur í atvinnumálum á fundi sem hófst í Iðnó nú klukkan eitt. Hún sagði að um væri að ræða fráhvarf frá þeirri einhæfu atvinnustefnu sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hefðu stuðlað að og fólu aðallega í sér stóriðju. 18.5.2012 13:19
Bók Helga um Fischer nýtur vinsælda „Ég er nokkuð ánægður með þetta,“ segir Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák. Bók hans Bobby Fischer Comes Home situr í efsta sæti á vinsældarlista hins öfluga forlags New in Chess, sem gefur bókina út. Hún fjallar um heimsmeistarann sáluga Bobby Fischer, og þar er megináhersla lögð á síðustu ár hans á Íslandi. 18.5.2012 13:00
Golfarar fóru að hlæja eftir að þeir meiddu litla stúlku Tveir karlmenn, líklega um tvítugt, ógnuðu lífi og limum nokkurra barna í gær, með því að skjóta vísvitandi golfkúlum í átt að þeim, sem endaði með því að sex ára stúlka slasaðist og þeir stungu af. 18.5.2012 12:15
Jóhanna kynnir fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlar að kynna fjárfestingaráætlun fyrir Ísland 2013 - 2015: Nýjar áherslur í atvinnumálum klukkan eitt í dag. Áætlunin var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Markmið áætlunarinnar er að styðja við frekari hagvöxt og aukna fjölbreytni atvinnulífs um allt land á komandi árum m.a. með eflingu rannsókna og tækniþróunar, sóknaráætlana landshluta, ferðaþjónustu, skapandi greina og græna hagkerfisins auk stóraukinna framkvæmda á vegum hins opinbera m.a. á sviði samgöngumála 18.5.2012 11:29
Ahmadinejad óvelkominn í Ólympíuleikana Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad segist ólmur vilja mæta á Ólympíuleikana í London í sumar. Hann segir að Bretar vilji hinsvegar ekki fá hann í heimsókn. Fimmtíu íranskir íþróttamenn hafa þegar tryggt sé þátttökurétt á leikunum og segist forsetinn afar spenntur fyrir því að fylgjast með þeim á staðnum. Bresk stjórnvöld hafi hinsvegar tjáð honum að hann sé ekki velkominn til London. Hann tekur ekki fram hvort hann hafi óskað eftir því formlega að fá að mæta, og breska innanríkisráðuneytið neitar að tjá sig um málið. 18.5.2012 10:43
Tveir þriðju umsækjenda fá ekki sumarstarf hjá borginni Reykjavíkurborg hefur synjað nálægt tveimur þriðju umsækjenda um sumar- og afleysingastörf síðan sumarið 2009. Fjöldi umsækjenda nær tvöfaldaðist eftir efnahagshrunið, en fjöldi starfa hefur ekki breyst mikið, að undanskildu sumrinu í fyrra þegar tæplega tvö þúsund störf voru í boði. Í ár eru þau tæplega 1.400 og umsækjendur rúm fjögur þúsund. 18.5.2012 10:00
Karlmaður lést á Litla - Hrauni Karlmaður á fimmtugsaldri sem vistaður var í fangelsinu að Litla - Hrauni lést í klefa sínum um átta leytið í gærkvöld. Maðurinn átti erfitt með að anda þegar hann óskaði eftir aðstoð fangavarða. Kallað var eftir sjúkrabíl og lækni og lífgunartilraunir voru hafnar en án árangurs og var maðurinn því úrskurðaður látinn stuttu seinna. 18.5.2012 09:24
Hundur beit mann í bílskúr Tilkynnt var til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni að hundur hefði bitið mann. Maðurinn var í bílskúr sínum þegar stór hundur kom þar inn. Maðurinn reyndi að klappa saman höndunum til að hrekja hann út en hundurinn brást við með því að bíta hann í höndina og hafði sig síðan á brott. Maðurinn leitaði til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vegna bitsins. Lögreglu berast svo til í hverri viku tilkynningar um lausa hunda, en lausaganga þeirra er bönnuð, svo sem kunnugt er. Lögregla beinir þeim tilmælum til hundeigenda að fara að lögum við dýrahald sitt. 18.5.2012 13:52
Ætla að framkvæma fyrir 88 milljarða Ríkisstjórnin hyggst ráðast í framkvæmdir fyrir 88 milljarða króna samkvæmt nýrri fjárfestingaáætlun sem kynnt var í dag. Þar af er gert ráð fyrir að 39 milljarðar verði fjármagnaðir úr sjálfri fjárfestingaáætluninni, annars vegar með sérstöku veiðigjaldi og leigu aflahlutdeilda. Segir í tilkynningu frá ríkisstjórninni að gera megi ráð fyrir því að aukin veiðigjöld skili milli 40-50 milljörðum króna næstu þrjú ár. 18.5.2012 13:41
Ísland í ljósaskiptunum - verðlaunamyndband Verðlaunamyndband sem sýnir Ísland í sínu fegursta ljósi hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum. Það var Bandaríkjamaðurinn og ferðalangurinn Joe Capra sem tók myndirnar og vann í kjölfarið til verðlauna. 18.5.2012 12:56
Meirihlutasamstarf í Árborg í uppnámi Meirihluti sjálfstæðismanna í Árborg er í uppnámi en einn bæjarfulltrúa þeirra íhugar að ganga til liðs við minnihlutann. Sjálfstæðismenn eru með fimm bæjarfulltrúa af átta og hreinan meirihluta í Árborg. Einn af bæjarfulltrúunum þeirra, Elfa Dögg Þórðardóttir, íhugar hins vegar alvarlega samkvæmt heilmildum fréttastofu að segja skilið við meirihlutann. Hún er að sögn óánægð með nýlega ákvöðunn um að Árborg segi sig úr Skólaskrifstofu Suðurlands, sem er samtstarfsverkefni sveitarfélaga á Suðurlandi um ýmsa sérþjónustu og ráðgjöf í leik- og grunnskólum. 18.5.2012 12:03
Vill að þjóðin kjósi um aðildarviðræður að ESB Þjóðin þarf að fá að taka afstöðu um aðild að evrópusambandinu fyrir næstu þingkosningar, jafnvel þótt aðildarsamningur liggi þá ekki fyrir. Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Hún sagði að staða Evrópu væri mjög flókin og vandasöm og vandséð að það sé skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið núna. Það var Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem spurði Svandísi út í afstöðu hennar í málinu. Eftir að Svandís hafði svarað sagði Illugi að yfirlýsingar hennar fælu í sér stórpólitísk tíðindi. 18.5.2012 11:00
Uppsögn þung fyrir reksturinn Uppsögn Ásmundar Friðrikssonar sem bæjarstjóra í Garði kostar bæjarfélagið tugi milljóna. Kostnaður vegna uppsagnarinnar nemur stórum hluta af tekjum sveitarfélagsins. 18.5.2012 11:00
Um 130 kannabisplöntur fundust í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 130 kannabisplöntur við húsleit í Garðabæ í fyrrakvöld. Á sama stað var einnig lagt hald hald á nokkur hundruð grömm af kannabisefnum. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu og viðurkenndi jafnframt sölu fíkniefna. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. 18.5.2012 09:32
Skaut golfkúlu í sjö ára stúlku - sjö spor saumuð Lögregla rannsakar nú atvik sem átti sér stað við Elliðavatn, þegar golfkúlu var skotið í andlit sjö ára stúlku með þeim afleiðingum að sauma þurfti sjö spor í vör hennar. 18.5.2012 08:16
Sömu skólarnir ítrekað í efstu sætunum Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda við skólann skiptast eftir því úr hvaða framhaldsskóla nemendurnir koma. Munurinn á skólunum er ekki afgerandi en sumir skólar raðast oftar ofarlega en aðrir. 18.5.2012 08:00
Skaut flugeldum á bíl og kýldi síðan farþegann Logandi flugeldum var kastað út úr bíl á ferð á annan bíl, sem líka var á ferð eftir Reykjanesbraut á tólfta tímanum í gærkvöldi. Ökumaður bílsins, sem varð fyrir flugeldaárásinni reyndi í ofboði að komast undan með því að beygja út á vegslóða og forða sér, en slóðinn endaði þannig að hann komst í sjálfheldu. 18.5.2012 07:09
Dregur úr losun gróðurhúsaloftegunda Útstreymi gróðurhúsalofttegunda dróst saman um þrjú prósent á Íslandi milli áranna 2009 og 2010. Þetta kemur fram í frétt Umhverfisstofnunar. Losun gróðurhúsaloftegunda nam 4,5 milljónum tonna árið 2010 en mest var hún fimm milljónir tonn árið 2008. Minni eldsneytisnotkun við fiskveiðar, í vegasamgöngum og byggingarstarfsemi er talin helsta ástæða þess að dregið hefur úr losun gróðurhúsaloftegunda hér á landi. 18.5.2012 16:00
Strandstígar ekki á dagskrá Ekki er gert ráð fyrir stígum meðfram ströndinni á Arnarnesi í þeirri tillögu að deiliskipulagi sem nú liggur fyrir hjá bæjaryfirvöldum í Garðabæ. Í Fréttablaðinu sagði frá því að samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir bæinn eiga landeigendur ströndina en ekki bærinn. 18.5.2012 11:00
Obama vill að Merkel breyti um áherslur Barack Obama Bandaríkjaforseti ætlar að þrýsta á Þjóðverja að þeir dragi úr niðurskurðarkröfum sínum og auki þess í stað hagvöxtinn í Evrópu. Leiðtogar átta helstu iðnríkja heimsins hittast um helgina á fundi í Camp David í Bandaríkjunum og þar er búist við því að Obama biðli til Angelu Merkel Þýskalandskanslara að hún slaki á niðurskurðarkröfunum, sem hafa fallið í vægast sagt grýttan jarðveg hjá þeim ríkjum Evrópu sem verst eru stödd. Obama virðist því á sömu skoðun og nýr Frakklandsforseti Francois Hollande, sem hefur sagst vilja nýjar áherslur í efnahagsstjórnun Evrópu. 18.5.2012 10:44
Konur eru betri bílstjórar en karlar - staðfest Bandarískt tryggingafyrirtæki hefur nú afsannað þá gömlu fullyrðingu að konur séu verri bílstjórar en karlmenn. Í raun er þessu þveröfugt farið. Í viðamikilli rannsókn sem tryggingafélagið 4autoinsurancequote.com lét gera, var farið ítarlega yfir málið og kannað hvort einhver munur væri á tjónum á meðal karla og kvenna. 18.5.2012 08:28
Beðið eftir að þjófur skili demanti sem hann gleypti Maður sem grunaður er um að hafa gleypt afar verðmætan demant er í haldi lögreglunnar í Windsor í Kanada en þar á bæ bíða menn eftir því að demanturinn skili sér. Demanturinn er talinn vera um tveggja og hálfrar milljónar virði en kauði var að skoða demantinn í verslun þegar hann skipti honum út fyrir eftirlíkingu og gleypti hinn eina og sanna. 18.5.2012 08:11