Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg ræðir við Framsóknarflokkinn 18. maí 2012 19:00
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Árborgar er í burðarliðnum eftir að einum bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna var tjáð að hún nyti ekki stuðnings flokkssystkina sinna. Meirihluti sjálfstæðismanna í Árborg er í uppnámi en einn bæjarfulltrúa þeirra íhugar að ganga til liðs við minnihlutann. Sjálfstæðismenn eru með fimm bæjarfulltrúa af níu og hreinan meirihluta í Árborg. Einn af bæjarfulltrúunum þeirra, Elfa Dögg Þórðardóttir, íhugar hins vegar alvarlega að segja skilið við meirihlutann. Hún er að sögn óánægð með nýlega ákvörðun um að Árborg segi sig úr Skólaskrifstofu Suðurlands, sem er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Suðurlandi um ýmsa sérþjónustu og ráðgjöf í leik- og grunnskólum. Sjálf er hún formaður SASS, eða Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Á meðan Elfa Dögg fundaði með fulltrúum Samfylkingarinnar í gærkvöldi funduðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna á heimili Eyþórs Arnalds oddvita þeirra. Við reyndum að ná tali af Eyþóri í dag en hann vildi ekki veita okkur viðtal. Það var þó á honum að heyra að málið væri flókið og að staða Elfu Daggar í meirihlutanum væri óráðin. Þannig hefur staðan verið að minnsta kosti síðan á mánudag, þegar Elfu var tjáð að hún nyti ekki stuðnings flokkssystkina sinna. Ástæðurnar eru meðal annars þær að Elfa kom í veg fyrir Árborg færi út úr samstarfi um skólaskrifstofu suðurlands eins og sjálfstæðismenn vildu. Spurð um eigin stöðu svaraði Elfa fréttastofu: „Ég hreinlega veit það varla." Elfa segist hafa heyrt af þreifingum sem nú eiga sér stað um myndun nýs meirihluta. Það hefur fréttastofa heyrt líka. Heimildir herma að Sjálfstæðismenn ætli að reyna á að fá bæjarfulltrúa Framsóknarmanna til liðs við Sjálfstæðisflokkinn um myndun meirihluta, hvort sem Elfa Dögg Þórðardóttir styðji slíkt samstarf, eða ekki.
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Wolt kærir hótanir sendlanna til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Sjá meira