Fleiri fréttir

Vill sérmerkja barnaefni sem inniheldur auglýsingar

Talsmaður neytenda vill að sérstakar merkingar séu á mynddiskum fyrir börn sem innihalda auglýsingar. Framleiðendur barnaefnis segja algengt að auglýsingar séu inn í sjálfu efninu, án þess sé ekki hægt að framleiða slíkt efni.

Vilja draga ákæru gegn Geir til baka

Þingsályktunartillaga um að skorað verði á saksóknara alþingis að láta málið gegn Geir H. Haarde, fyrir landsdómi, niður falla, verður lögð fram. Enn ríkir óvissa um hversu margir mæli fyrir tillögunni en þingmenn hafa rætt málið sín á milli í dag.

Golden Globe tilnefningar kynntar

Tilnefningar til Golden Globe verðlaunanna í Bandaríkjunum voru tilkynntar í dag. Kvikmyndin The Artist var í miklu uppáhaldi hjá dómnefndinni. Að vanda fékk George Clooney nokkrar tilnefningar.

Neftóbakið hækkar um þrjátíu prósent

Samþykkt var á Alþingi í dag að hækka tóbaksgjald á neftóbak um 75 prósent. Hækkunin gerir það að verkum að útsöluverð neftóbaks mun hækka um 30 prósent. Álfheiður Ingadóttir þingmaður VG og fyrrverandi heilbrigðisráðherra sagði við atkvæðagreiðsluna að hækkunin væri skref í rétta átt.

Borgin bjargar skóginum í Öskjuhlíð

Kröfu Isavia, sem rekur meðal annars Reykjavíkurflugvöll, um að fella stóran hluta elsta skógarins í Öskjuhlíð var hafnað í umhverfis- og samgönguráði í dag. „Það náðist samstaða um það að verða ekki við ósk þeirra um að fella þessi tré - meðal annars eftir að við lásum umsögn Skógræktarfélags Reykjavíkur," segir Gísli Marteinn Baldursson, annar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, í samtali við Vísi.

Banksy afhjúpar nýtt verk

Nýtt verk eftir götulistamanninn Banksy er nú til sýnis í gallerýi í Liverpool. Verkið er brjóstmynd af óþekktum kardinála. Andlit hans hefur verið afmáð og í staðinn eru auðar skífur í mismunandi litum.

Herbalife kom mér í kvikmyndabransann

Fyrir tuttugu árum fluttu Margrét Hrafnsdóttir og Jón Óttar Ragnarsson til Los Angeles og settust á skólabekk í kvikmyndagerð. En það er fyrst núna að þau eru að láta drauminn rætast.

Lagt til að sonur Hannesar Þórs Helgasonar fái ríkisborgararétt

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að 24 einstaklingar skuli hljóta íslenskan ríkisborgararétt. Á meðal þeirra sem lagt er til að fái ríkisborgararétt er Siim Vitsut, rúmlega tveggja ára gamall drengur fæddur í Eistlandi.

Kínverjar sjósetja flugmóðurskip

Bandarískt fjarskiptafyrirtæki hefur náð myndum af fyrsta flugmóðurskipi Kínverja. Skipið nefnist Varyag og hefur smíði þess staðið yfir í áraraðir.

Sakar stjórnarþingmann um ósæmandi hagsmunagæslu

Ráðherra vegamála segir að ekki séu til fjármunir til að ráðast í jarðgöng á næstu árum og gagnrýnir þingmann Samfylkingarinnar fyrir ósæmandi hagsmunagæslu fyrir Norðfjarðargöng. Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Alþingi fyrir hádegi hversvegna Norðfjarðargöngum hefði verið frestað og hvaða jarðgöng hann teldi eðlilegast að farið yrði í næst.

Segir hleranir sérstaks brjóta í bága við lög

Formaður Lögmannafélags Íslands telur hleranir embættis sérstaks saksóknara brjóta í bága við lög og gagnrýnir dómstóla að heimila slíkar hleranir. Þrátt fyrir bankahrun, kalli almannahagsmunir ekki á hleranir.

Níræður nasisti hefur afplánun

Níræður maður í Hollandi hefur nú hafið afplánun eftir að hann hlaut lífstíðardóm. Dómurinn var kveðinn upp í fyrra en maðurinn var fundinn sekur um að hafa að myrt þrjár manneskjur í Hollandi árið 1944 þegar hann var meðlimur SS-hersveitar nasista.

NASA þróar geim-skutulbyssu

Verkfræðingar hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna hafa þróað skutulbyssu sem verður notuð til að taka sýni úr halastjörnum. Tilraunir hafa verið framkvæmdar á frumgerð byssunnar og hefur verkfræðingum tekist að skjóta endastykkinu tæpa tvo kílómetra.

Tía, Jósebína, Bertram og Trú samþykkt

Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Tía, Jósebína, Bertram og Trú og hafa öll nöfnin verið færð á mannanafnaskrá. Í úrskurðum nefndarinnar sem birtur var í morgun kemur fram að nöfnin taka öll íslenskri beygingu í eignarfalli. Þá hafa millinöfnin Krossdal og Aðaldal einnig verið samþykkt.

Jóhanna tók á móti utanríkisráðherra Palestínu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í morgun á móti dr. Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu í Stjórnarráðinu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að á fundinum hafi þau rætt um viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Palestínu og stuðning við aðildarumsókn ríkisins að Sameinuðu þjóðunum. „Einnig var rætt um tvíhliða samskipti ríkjanna og efnahagsuppbyggingu í Palestínu, svo og stöðu mála í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs."

Pútín bregst við niðurstöðu þingkosninga

Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, segir niðurstöðu þingkosninganna fyrr í mánuðinum vera vonbrigði. Flokkur hans tapaði fylgi en heldur þó um stjórnartaumana í landinu. Pútín sagði vangaveltur um víðtækt kosningasvindl vera án rökstuðnings en viðurkenndi þó rétt Rússa til að mótmæla framkvæmd kosninganna.

Eldheitir slökkviliðsmenn fækka fötum

Slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Suðurnesja hafa tekið sig til og gefið út dagatal, annað árið í röð. Í fyrra riðu þeir á vaðið og útbjuggu dagatal prýtt myndum af sér fáklæddum. Dagatalið seldist eins og heitar lummur og því var ákveðið að endurtaka leikinn.

Utanríkisráðherra væntanlega í forsvari fyrir Icesave málið

Íslandi hefur verið stefnt fyrir EFTA dómstólinn 10-12 sinnum frá árinu 1994, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Fram kom í máli hennar á Alþingi í morgun að í öllum tilfellum hafi utanríkisráðherra verið falin forsjá málanna þegar komið var í þann farveg.

Lögreglumaður gerður að heiðursháskólaborgara

Lögreglumaður sem kom bensínlausum stúdent við Háskóla Íslands til hjálpar þegar hann var á leið í próf fékk veitt heiðursverðlaun frá Stúdentaráði Háskóla Íslands í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Stúdentaráði ók lögreglumaðurinn stúdentinum á bensínstöð og aftur að bílnum og hlýddi honum yfir námsefnið á leiðinni. Stúdentaráð kallar lögreglumanninn sannkallaðan heiðursháskólaborgara.

Chirac fundinn sekur

Jacques Chirac, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið fundinn sekur um fjárdrátt og að hafa misnotað traust almennings.

Námsmenn í Bretlandi örvæntingarfullir

Félagsráðgjafar og leiðtogar stúdenta í Bretlanda segja að sífellt fleiri námsmenn stundi vændi til að fjármagna nám sitt. Ástæðan fyrir þessu er rakin til efnahagskreppunnar og aðgerða yfirvalda til að stemma stigum við henni.

Segja skattinn vera aðför að starfsfólki

Sá 5,45% fjársýsluskattur sem efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur lagt til að lagður verði á allar launagreiðslur fjármálafyrirtækja, er hrein og bein aðför að starfsfólki tryggingafélaga á Íslandi, segir í yfirlýsingu frá formanni VR og forstjórum tryggingafélaganna.

Ung hjón og barn sluppu ósködduð úr eldsvoða

Ung hjón og barn þeirra sluppu ósködduð út úr kjallaraíbúð í raðhúsi við Heiðargerði í Reykjavík laust fyrir klukkan sjö í morgun, eftir að sjónvarp sprakk í stofunni og eldur kviknaði.

Farsímanotkun veldur árekstrum

Orsakir nokkurra árekstra, sem urðu í hrinu árekstra á höfuðborgarsvæðinu í gærdag, má rekja til þess að ökumenn voru að tala í farsíma eða jafnvel að semja og senda SMS skilaboð við aksturinn, þegar allt fór í óefni.

Írakstríðinu formlega lokið

Stríði Bandaríkjanna í Írak er formlega lokið, níu árum eftir að það hófst. Búið er að flytja nær alla af þeim síðustu 5.500 hermönnum sem eftir voru í Írak heim til Bandaríkjanna.

Sjá næstu 50 fréttir