Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þyrla sótti konu frá Klaustri Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að kona fékk heilablóðfall á Kirkjubæjarklaustri í gærkvöldi. Hún var flutt í sjúkrabíl til móts við þyrluna, sem lenti á þjóðveginum og tók hana upp í. Þá var konan heldur farin að hressast og var hún flutt á Landspítalann. 19.12.2011 07:00
Slökkti eld í húsi nágrannans Íbúa við Mývatn tókst með snarræði að slökkva eld í íbúðarhúsi nágranna síns, áður en hann næði að breiðast þar út. Kona, sem býr í húsinu, sá hvar eldur logaði innandyra þegar hún var að koma heim, og kallaði eftir hjálp. 19.12.2011 07:00
Ástralir aðstoða við leit að flóttamönnum Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að senda björgunarsksip og flugvél til að aðstoða við leitina að flóttamönnum sem saknað er eftir að báti með þeim hvolfdi um 40 mílur undan ströndum Java í Indónesíu um helgina. 19.12.2011 07:00
Fjöldagröf fyrir fórnarlömb stormsins á Filippseyjum Stjórnvöld á Filippseyjum hafa ákveðið að skipuleggja fjöldagreftrun á þeim sem fórust í hitabeltisstorminum sem reið yfir eyjuna Mindanao um helgina og flóðunum sem fylgdu í kjölfar hans. 19.12.2011 07:00
Þrjú börn týndust í Jólaskóginum í Heiðmörk Ungur drengur varð viðskila við foreldra sína í Jólaskóginum í Heiðmörk seinnipartinn í gær. Drengurinn gekk alls sex kílómetra leið að húsi á Vatnsenda þar sem hann knúði dyra og lét vita af sér. 19.12.2011 06:30
Eini kommúnistaleiðtoginn sem fékk starfið í arf Kim Jong-il var eini kommúnistaleiðtogi heimsins sem fékk starf sitt í arf frá föður sínum. 19.12.2011 06:00
Kim Jong-il leiðtogi Norður-Kóreu látinn Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, er látinn 69 ára að aldri. Tilkynnt var um lát hans í ríkissjónvarpi landsins í morgun og gat þulurinn ekki haldið aftur af tárum sínum þegar hann las tilkynninguna. 19.12.2011 06:00
Lítils háttar aukin áhætta en þó engin hætta „Ég myndi ekki segja að hætta hafi skapast, en af þessu er sannarlega lítilsháttar aukin áhætta,“ segir Ingimar Sigurðarson, flugrekstrarstjóri Flugfélagsins Arna. Aðflug að austur-vesturbraut Reykjavíkurflugvallar hefur á þessu ári verið brattara en vanalegt er vegna hárra trjáa í Öskjuhlíð. 19.12.2011 05:30
Flokkar málma sjálfkrafa frá Flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi hefur tekið í notkun búnað sem flokkar málmhluti sjálfvirkt, með segulafli, frá öðru sorpi. Því þurfa heimili á höfuðborgarsvæðinu og önnur svæði sem Sorpa þjónar í sorphirðu, ekki lengur að vera með sérstaka flokkunartunnu undir smáa málmhluti. 19.12.2011 04:00
Stöðvaður með þýfi við útidyr Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, einkum fyrir að stela úr verslunum. 19.12.2011 03:00
Þingi lokið þrátt fyrir óvissu um hríð Þingmenn brugðu ekki út af vana sínum og dagskrá þingsins, síðustu daga fyrir jólafrí, var í uppnámi. Framan af virtist allt með ró og spekt en tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde, virkaði sem sprengja inn í þingstörfin. Sátt náðist um málið og þingi lauk á laugardag. 19.12.2011 02:30
Herjólfur til Þorlákshafnar Herjólfur siglir til Þorlákshafnar mánudag til fimmtudags, 19. til 22. desember, vegna óhagstæðrar ölduspár fyrir Landeyjahöfn. Þetta kemur fram á vefsíðu Eimskips. 19.12.2011 02:00
Flóð hrifu heilu þorpin á haf út Staðfest hefur verið að yfir 650 eru látnir og í það minnsta 900 er saknað eftir að hitabeltisstormur gekk yfir suðurhluta Filippseyja á föstudag. Storminum fylgdu mikil flóð sem hrifu heilu þorpin með sér á haf út. 19.12.2011 01:30
Þúsundir minnast Havel: Uppáhaldstónlistin hans spiluð í útvarpinu Þúsundir manna minntust Vaclav Havel á Venceslaw torginu í Prag, höfuðborg Tékklands, í kvöld. Havel lést í morgun en hann er þjóðhetja í Tékklandi eftir að hann leiddi flauelsbyltinguna þar í landi árið 1989, sem að lokum batt enda á alræðisstjórn kommúnismans þar í landi. Hann gegndi forsetaembætti Tékkóslóvakíu í þrjú ár frá þeim tíma og var kosinn fyrsti forseti Tékklands árið 1993 eftir að Tékkóslóvakíu var skipt í tvö ríki. 18.12.2011 22:00
Stolið frá þjófum í miðjum þjófnaði Búðarþjófar í Utah fylki í Bandaríkjunum fengu að kenna á því þegar þeir reyndu að hnupla vörum úr matvörubúð. 18.12.2011 21:00
Vigdís um Havel: Sá hafið fyrst á Íslandi Vaclav Havel, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Tékklands, lést í morgun, sjötíu og fimm ára að aldri. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands segir mikinn sjónarsvipti vera að góðum vini. 18.12.2011 20:00
Segir sonarson sinn sólginn í rúsínur Tveggja ára barnabarn Helga Vilhjálmssonar, kenndan við Góu, var meðal þeirra sem fengu íslenskan ríkisborgararétt í gær. Helgi segir drenginn vera lunkinn við að plata afa sinn til að gefa sér nammi, og er hann sérstaklega hrifinn af súkkulaðirúsínum. 18.12.2011 19:30
Ók á tólf ára dreng og stakk af Karlmaður á fertugsaldri ók á tólf ára dreng í gærdag og stakk af vettvangi. Drengurinn hruflaðist á líkama auk þess sem hann fékk höfuðáverka. Færa þurfti drenginn á spítala þar sem hann dvaldi yfir nótt. Ekki er talið að hann hafi beinbrotnað eftir að ekið var á hann. 18.12.2011 17:00
Þýskur þingmaður vill alþjóðlega rannsókn á flugumanninum Þýski þingmaðurinn Andrej Hunko, þingmaður Der Linke í Þýskalandi, sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann fagnar málsókn átta kvenna sem hafa kært flugumanninn Mark Kennedy fyrir að hafa tælt sig í ástarsambönd á fölskum forsendum í Bretlandi. 18.12.2011 17:00
Síðustu hermennirnir fóru í skjóli nætur - óvissan tekur við Síðustu bandarísku hermennirnir yfirgáfu Írak snemma í morgun. Fimm hundruð hermenn á skriðdrekum og öðrum faratækjum óku í skjóli nætur að landamærum Kúveit. Enginn vissi af ferð þeirra og var það gert til þess að koma í veg fyrir árásir á hersveitirnar. 18.12.2011 15:00
Hrottalegt morð: Kveikti í konu inn í lyftu Tæplega fimmtugur karlmaður gaf sig fram við lögregluna í New York í gær en hann er grunaður um að hafa kveikt í rúmlega sextugri konu síðdegis í gær. Konan var að koma heim til sín í fjölbýlishús í Brooklyn þegar hún tók lyftuna upp á þá hæð sem hún bjó á. Konan var með tvo poka fulla af matvörum. 18.12.2011 16:30
Rúta valt á hliðina Rúta fór út af nærri Akranesafleggjara og valt á hliðina fyrir stundu. Ökumaðurinn var einn í rútunni og var hann færður á spítala til aðhlynningar. Vont veður er á svæðinu og talsvert slabb á götunum. 18.12.2011 15:00
Suðurlandsvegur frá Breiðholtsbraut illfær Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma þeim upplýsingum til ökumanna að Suðurlandsvegur frá Breiðholtsbraut og austur er illfær fólksbifreiðum. 18.12.2011 14:00
Styður ekki samgönguáætlun - vill stórframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, segist ekki geta stutt samgönguáætlun sem Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lagði fyrir Alþingi fyrir skömmu. 18.12.2011 14:00
Foreldrar vilja að börnin fái kornmeti á leikskólum Nokkurrar andstöðu gætir meðal foreldra leikskólabarna á Akureyri vegna þess að hætt verður að gefa börnunum kornmeti í morgunmat en þess í stað fá þau ávexti. Stofnuð hefur verið undirskriftarsíða þar sem þessum breytingum er mótmælt. 18.12.2011 12:00
Vaclav Havel látinn Vaclav Havel, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Tékklands, lést í nótt. Hann var 75 ára gamall. Havel leiddi flauelsbyltinguna í Tékkóslóvakíu árið 1989 sem batt enda á alræðisstjórn kommúnismans þar í landi. 18.12.2011 12:00
Varað við mikilli hálku Það hlánar í dag á láglendi, fyrst suðvestanlands með rigningu og hvassviðri. Við þær aðstæður verður flughálka á vegum þar sem snjór og ís er fyrir. Hríð og skafrenningur á fjallvegum, einkum um og eftir miðjan daginn. 18.12.2011 11:00
Ítalskir ráðamenn fengu byssukúlur í pósti Ítalskir ráðamenn eru slegnir óhug vegna hótunarbréfa sem þeim hafa borist vegna efnahagsráðstafana ríkisstjórnar Marios Montis. 18.12.2011 12:45
Þjófar hringdu óvart í neyðarlínuna Tveir karlmenn á þrítugsaldri frá Wisconsin í Bandaríkjunum, stálu fjölda mynddiska og tölvuleikjum í verslun á dögunum og komust síðan í burtu. Líklega hefðu þeir aldrei fundist ef annar þjófanna hefði ekki hringt óvart í neyðarlínuna þegar hann var með farsímann í vasanum. 18.12.2011 07:00
Borgarbörn styrkja Ellu Dís - flytja leikrit í Iðnó í dag Borgarbörn munu flytja leikritið Óværuenglarnir klukkan 14:00 í Iðnó í dag. Um er að ræða jólaleikrit barna- og unglingaleikhúss Borgarbarna. Allt andvirði aðgöngumiða verður látið renna óskipt til Ellu Dísar og systra hennar. Að auki verðu jólagjafasöfnun til Mæðrastyrksnefndar eftir sýninguna. Allir eru velkomnir. 18.12.2011 10:00
Segja Manning hafa lekið upplýsingum vegna tilvistarkreppu Verjendur hermannsins Bradley Manning, sem ákærður er fyrir að hafa lekið leyniskjölum til Wikileaks, segja að vegna samkynhneigðar sinnar hafi Manning átt í tilvistarkreppu innan hersins, og hafi það haft áhrif á ákvörðun hans um að leka gögnunum. 18.12.2011 10:00
Herjólfur siglir frá Landeyjarhöfn Gert er ráð fyrir því að Herjólfur sigli þrjár ferðir milli Eyja og Landeyjahafnar í dag en Brottför frá Eyjum var klukkan 8:00 og svo 11:30 og 15:30. 18.12.2011 10:00
Lokað í Bláfjöllum - opið í Hlíðarfjalli og víðar Lokað verður í Bláfjöllum í dag vegna veðurs. Þar er farið að hvessa mikið og skafa. Forsvarsmenn skíðasvæðisins segja ljóst að bæta muni verulega í á næstu klukkustundum og því var ákveðið að opna ekki í morgun en í Bláfjöllum var opið í gær. 18.12.2011 10:00
Yfir fimmhundruð látnir eftir fellibyl á Filippseyjum Tala látinna í flóðum og aurskriðum á Filippseyjum í kjölfar hitabeltisstormsins Washi sem reið yfir landið í fyrrinótt er komin yfir fimmhundruð og sjötíu og er búist við að talan eigi eftir að hækka því fimmhundruð er enn saknað. 18.12.2011 10:00
Eldur kom upp í gufubaði Eldur kom upp í gufubaði í Hátúni í Reykjavík klukkan fimm í morgun. Kona sem var á heimilinu var flutt á slysadeild til athugunar vegna gruns um reykeitrun. 18.12.2011 09:45
200 flóttamenn drukknuðu þegar ferja sökk Óttast er að yfir tvöhundruð hafi farist þegar bátur með ólöglegum innflytjendum sökk um fjörutíu sjómílu austur af eyjunni Jövu í Indónesíu í gærkvöldi. 18.12.2011 09:00
Kortaþrjótar í gæsluvarðhald Tveir karlmenn af útlenskum uppruna hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrir að reyna að greiða fyrir Rolex-úr með fölsuðu greiðslukorti. Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna varðhald að því er greint er frá á heimasíðu RÚV. 18.12.2011 09:00
Lögreglumenn á heimleið óku fram á ölvaðan ökumann Það voru þreyttir lögreglumenn eftir langa vakt sem óku fram á bíl á Ólafsfjarðarvegi úti í vegkanti á Ólafsfjarðarvegi í nótt. 18.12.2011 09:00
Cesária Évora látin Söngkonan Cesária Évora frá Grænhöfðaeyjum lést í dag sjötug að aldri. Tveggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í heimalandi hennar. 17.12.2011 21:00
Þrír fluttir á spítala eftir harðan árekstur Harður árekstur varð á Sæbrautinni nærri Húsasmiðjunni upp úr klukkan fimm. Tveir bílar skullu saman og þurfti að flytja þrjá á spítala. Sæbrautinni var lokað. Áætlað var að aftur yrði opnað fyrir umferð um klukkan sex. 17.12.2011 18:00
Barnabarn Helga komið með íslenskan ríkisborgararétt Alþingi samþykkti í dag frumvarp Allsherjar- og menntamálanefndar um veitingu ríkisborgararéttar. Með samþykktinni hlutu 24 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt. 17.12.2011 16:00
Tíu fallegustu myndirnar úr sólkerfinu Stjörnufræðivefurinn hefur tekið saman tíu fallegustu myndirnar úr sólkerfinu í ár. Þannig segir á heimasíðu stjörnufræðinganna að „ár hvert eru þúsundir ljósmynda teknar af undrum alheimsins, hvort sem er af stjörnuáhugafólki, stjörnufræðingum eða vélrænum sendiherrum jarðarbúa úti í sólkerfinu. Margar þessara mynda eru gullfallegar, oft hreinustu listaverk, sem verðskulda að sem flestir fái notið.“ 17.12.2011 15:45
Fréttaskýring: Er fólksflóttinn ofmetinn? Gefur tölfræði um atvinnuleysi villandi mynd af efnahagsástandinu vegna fjölda brottfluttra? 17.12.2011 15:00
Þurrkuðu kókaín sem lá í jörðu í ár Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá litháíska karlmenn í kókaínmáli sem upp kom á Suðurlandi í október síðastliðnum. 17.12.2011 13:00
Efnasameind skyld karríkryddi hugsanlega lækning við Alzheimer Tilraunir með nýtt lyf við Alzheimer-sjúkdómnum fylla vísindamenn von um að geta stöðvað sjúkdóminn og bætt minni sjúklinga sem þjást af völdum hans. 17.12.2011 12:00