Þingi lokið þrátt fyrir óvissu um hríð 19. desember 2011 02:30 Tillaga formanns Sjálfstæðisflokksins um að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde verður tekin til umræðu 20. janúar. Fréttablaðið/Anton
Þingmenn brugðu ekki út af vana sínum og dagskrá þingsins, síðustu daga fyrir jólafrí, var í uppnámi. Framan af virtist allt með ró og spekt en tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde, virkaði sem sprengja inn í þingstörfin. Sátt náðist um málið og þingi lauk á laugardag. Reynt var að fá tillögu Bjarna tekna til umræðu fyrir hlé, en stjórnarliðar tóku það ekki í mál. Ótækt væri að jafn stórt mál kæmi fram svo skömmu fyrir áætluð þinglok. Á endanum var samið um að tillagan yrði tekin til umræðu 20. janúar. Stjórnarliðar gáfu ekkert eftir hvað varðaði umræðu og heimildir Fréttablaðsins herma að þeir hafi stungið upp á þingfundum fram að jólum og á milli jóla og nýárs ef þörf kræfi, ætti að afgreiða tillögu Bjarna strax. Þær raddir munu hafa verið háværastar innan Vinstri grænna. Til þess kom ekki og mun þingmönnum lítt hafa hugnast slík starfsáætlun eftir maraþonfundi síðustu daga. Raunar er umhugsunarefni að slík tillaga geti nýst sem hótun. Að það að þingmenn starfi eftir svipuðu tímaplani og aðrir þegnar þessa lands geti virkað sem pressa í samningum. Þess í stað fóru þingmenn í jólafrí 17. desember og hefja þingstörf aftur 16. janúar, eftir mánaðarhlé. Nokkur umræða hefur farið fram um starfshætti Alþingis. Sú umræða virðist hins vegar ekki skila sér inn í þingsali, þar sem staða, lík þeirri sem nú kom upp, er orðin hefð við áætluð hlé á þingstörfum. Þingmenn funda fram á nætur og mál koma inn á færibandi, allt til að ná starfsáætlun um boðað frí. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði í samtali við Fréttablaðið á föstudag að starfsfólk vissi ekkert um hvenær þingstörfum lyki. Það yrði að vera tilbúið til að vinna eins og þingmönnum semdist um. Það virðist því ganga að innleiða á þingi það sem fjölmargir þingmenn hafa kallað eðileg vinnubrögð. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, virðist sama sinnis, en við þinglok sagði hún nauðsynlegt að þingmenn gætu reitt sig á að starfsáætlun stæðist. Agnúar væru á þingsköpum, þrátt fyrir endurskoðun, og úr því yrði bætt í nefnd. „Sú nefnd mun þó fyrst og fremst vinna áfram að því að endurbæta þingsköp og vinnubrögð hér á Alþingi eins og heitið var við afgreiðslu málsins, síðastliðið vor.“ Fjöldi mála var afgreiddur á síðustu dögum þingsins. Má þar nefna mál sem tengjast tekjugrunni fjárlaga og afgreiðslu ríkisborgararéttar. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira