Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlýtur að fæla fjárfesta frá „Þessi niðurstaða kom á óvart. Það er mikið kallað eftir erlendri fjárfestingu og þarna virtist vera áhugaverð hugmynd á döfinni,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, um ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að veita kínverska fjárfestinum Huang Nubo ekki leyfi til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. 28.11.2011 06:00
Pólitísk framtíð Jóns óviss Pólitísk framtíð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra ræðst í dag á þingflokksfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ræðst það af svörum ráðherrans hvort honum er sætt áfram í ríkisstjórninni. 28.11.2011 06:00
Bændur geta framleitt sína orku sjálfir Bændasamtök Íslands (BÍ) og Landbúnaðarháskólinn (Lbhí) telja raunhæft að íslenskur landbúnaður verði sjálfbær um orku með því að nýta lífræn hráefni til orkuframleiðslu. Átaksverkefni í orkumálum landbúnaðarins hefur verið hleypt af stokkunum með það að takmarki að minnka aðkeypta orku bænda um 20 prósent fyrir árslok 2015 og um 80 prósent fyrir árslok 2020. 28.11.2011 06:00
Veruleg óánægja með Jón Bjarnason í ríkisstjórninni Mikil óánægja er innan ríkisstjórnarinnar með framgöngu Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í tengslum við endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir ekki hægt að líða vinnubrögð Jóns. 28.11.2011 05:00
Refsiaðgerðir gegn Sýrlandi Arababandalagið samþykkti í gær refsiaðgerðir gegn Sýrlandi, í von um að það dugi til að fá sýrlensk stjórnvöld til að láta af aðgerðum gegn mótmælendum, sem kostað hafa fjölda fólks lífið. 28.11.2011 05:00
Íslandsvasi til sölu á 2 milljónir „Þetta er stórmerkilegur gripur,“ segir Jóhann Hansen hjá Gallerí Fold um postulínsvasa með mynd af Bessastöðum sem er til sölu hjá danska uppboðshaldaranum Bruun Rasmussen. 28.11.2011 05:00
Þúsundir húsa án rafmagns Rafmagn fór af um tólf þúsund heimilum í Danmörku og Suðvestur-Svíþjóð eftir að stormur gekk þar yfir í gær. 28.11.2011 03:30
Herforingjar biðja um frið Herforingjastjórnin í Egyptalandi hvetur mótmælendur til að vera til friðs og taka þátt í þingkosningum í dag, þeim fyrstu sem haldnar hafa verið í landinu síðan Hosni Mubarak var steypt af stóli í byltingu fyrr á árinu. 28.11.2011 03:00
Samskiptin við Pakistan stirðna Afganskir hermenn sem lentu í skotárás skammt frá pakistönsku landamærunum á laugardag óskuðu eftir loftárás frá Nató og sú árás varð 24 pakistönskum hermönnum að bana. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá afgönskum stjórnvöldum. 28.11.2011 03:00
Varar Vesturlönd við afskiptum Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, varar Vesturlönd við því að skipta sér af forsetakosningunum í Rússlandi, sem haldnar verða á næsta ári. 28.11.2011 02:30
Fjöldi krókódíla gengur laus Fjöldi krókódíla gengur laus í Bangkok, höfuðborg Taílands, eftir að verstu flóðin þar í hálfa öld urðu í landinu fyrr á árinu. 28.11.2011 02:00
Segir mikið í húfi á loftslagsráðstefnu Christiana Figueres, yfirmaður loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna, hvetur fulltrúa á loftslagsráðstefnunni í Suður-Afríku til þess að taka ábyrga afstöðu og komast að samkomulagi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. 28.11.2011 01:00
Fann til í baki og fæti Erlendi ferðamaðurinn sem slasaði sig í Reykjadal fyrr í dag komst í hendur sjúkraflutningamanna núna rétt um sjöleytið. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg er ekki ljóst hverjir áverkar hans voru en hann fann til í baki og fæti og þótti réttara að flytja hann með gát. 27.11.2011 19:18
Helmingur grunnskólakennara telur mikilvægt a börn sæki heimaskólann Aðeins helmingur grunnskólakennara telur mikilvægt að öll börn, óháð fötlun, heilsufari eða íslenskukunnáttu sæki nám í sínum heimaskóla. Þrátt fyrir að nemendur með sérþarfir eigi rétt á að vera í almennum skólum. 27.11.2011 18:51
Leppalúði prýðir Oslóartréð Ljósin á Oslóartrénu voru tendruð fyrr í dag að viðstöddu fjölmenni. Auk ljósanna á trénu prýðir Leppalúði, jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, tréð. Leppalúði er sjötti óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins en fyrri óróar félagsins hafa prýtt tréð síðustu ár. 27.11.2011 17:20
Kallaði eftir aðstoð vegna fótbrots Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út til að aðstoða erlendan ferðamann í Reykjadal á Hellisheiði fyrir stundu. Sá hringdi inn til Neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð. Hann telur sig vera fótbrotinn. Björgunarsveitir frá Þorlákshöfn, Hveragerði og Selfossi eru á leið á staðinn en reynist ástand hans rétt þarf að bera viðkomandi langa leið. Til þess þarf á bilinu 10 - 20 björgunarsveitarmenn enda aðstæður þannig að hált er á svæðinu. 27.11.2011 15:58
Múslimar hunsa Darwin Múslimskir stúdentar í Bretlandi eru í auknu máli farnir að ganga út úr líffræðitímum þegar þróunarkenning Darwins ber á góma. Ástæðan er, að sögn breska blaðsins Daily Mail, sú að hugmyndir Darwins eru í andstöðu við Kóraninn. 27.11.2011 15:37
Mál Vítisengils fyrir héraðsdóm á morgun Mál Leif Ivar Kristiansen, leiðtoga Vítisengla í Noregi, verður flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun, samkvæmt dagskrá dómsins. Leif Ivar var stöðvaður við komuna til Íslands þann áttunda febrúar í fyrra. Hann gisti fangageymslur í Reykjanesbæ yfir eina nótt og var svo sendur með flugvél til Noregs. Morten Furuholmen, lögmaður Leifs Ivars, var með honum í för þegar hann kom til landsins en hann fékk inngöngu í landið. 27.11.2011 14:03
Sprenging á Nesjavöllum Sprenging varð við Nesjavallarvirkjun um hálfellefuleytið í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti varð sprengingin í tengivirki við streng eitt. Ein vél bilaði við óhappið en hún mun vera komin í gagnið aftur samkvæmt upplýsingum Vísis. 27.11.2011 13:53
Engin sátt um nýja kvótafrumvarpið Þingmaður Samfylkingarinnar segir enga sátt fólgna í drögum að nýju kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra og getur ekki ímyndað sér að það gæti komist óbreytt í gegnum þingið. 27.11.2011 12:48
Molotov bar hlýhug til Íslendinga Molotov utanríkisráðherra Stalíns kom tvívegis til Íslands á árum síðari heimstyrjaldar í leynilegri sendiför til Roosevelts Bandaríkjaforseta. Frá þessu er greint í nýútkominni bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Íslenska kommúnista. 27.11.2011 11:49
Páfinn kærður fyrir umferðarlagabrot Þýskur lögfræðingur hefur kært Benedikt sextánda páfa, sem áður var þekktur sem Joseph Ratzinger, fyrir að hafa setið í bíl sínum án beltis nokkrum sinnum. Í dagblaðinu Westfälischen Rundschau kemur fram að páfinn mun hafa brotið lögin nokkrum sinnum í heimsókn sinni til Freiburg í lok september, en þá var hann í heimsókn í Þýskalandi. 27.11.2011 11:24
Ljósin tendruð í dag Ljósin verða tendruð við hátíðlega athöfn á Oslóartrénu í dag. Sextíu ár eru liðin síðan íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf en tréð hefur ævinlega hefur verið sett upp á Austurvelli. Í mörg ár hefur verið til siðs að borgarbúar haldi upp á þessa vinargjöf fyrsta sunnudag í aðventu með bæði hátíðlegum söng og skemmtilegum uppákomum og á þessu afmælisári verður engin undantekning gerð þar á. 27.11.2011 10:58
Ostaveisla í geimnum Hinn fimmtíu og þriggja ára hollenski geimfari Andre Kuipers, á ekki í neinum vandræðum með að ákveða hvaða mat hann ætlar að taka með sér út í geim. En þangað fer hann þann 21. desember næstkomandi ásamt tveimur öðrum geimförum og dvelja þeir í alþjóðlegu geimstöðinni í fimm mánuði. 27.11.2011 10:55
Íranir draga úr samskiptum við Breta Íranska þingið samþykkt í morgun með yfirgnæfandi meirihluta að draga úr diplómatískum samskiptum við Breta og hefur breska sendirherranum verið vísað úr landinu. Ákvörðunin var tekin eftir að Bretar tilkynntu um refsiaðgerðir gagnvart írönskum bönkum á þriðjudag, þar sem þeir eru taldir fjármagna kjarnorkuáætlanir íranskra stjórnvalda. Fram kemur í blaðinu Jerusalem Post að 179 þingmenn hafi kosið með tillögunni, fjórir hafi kosið gegn henni en 11 hafi setið hjá. 27.11.2011 10:17
Undirbúa refsiaðgerðir gagnvart Sýrlandi Arababandalagið hefur nú undirbúið lista yfir refsiaðgerðir gagnvart Sýrlandi, þar sem yfirvöld hafa hvorki bundið endi á ofbeldi gagnvart mótmælendum í landinu né hleypt erlendum eftirlitsaðilum inn fyrir landamærin. 27.11.2011 09:46
Höfuðkúpubrotinn eftir líkamsárás í Hafnarfirði Tveir voru handteknir og einn var fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í heimahúsi í Hafnarfirði um tvöleytið í nótt. Hinn slasaði var gestkomandi og leikur grunur á að hann sé höfuðkúpubrotinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór gleðskapur ungs fólks úr böndunum með fyrrgreindum afleiðingum en fólkið var í annarlegu ástandi. Hnífur var dreginn upp eftir að til átakanna kom en engan sakaði af völdum hans. Málið er í rannsókn. 27.11.2011 09:41
Leiðin til léttleikans er þung á fótinn Sindri Freysson hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í haust fyrir ljóðabókina Í klóm dalalæðunnar. Bókina orti hann með það fyrir augum að auka vellíðan lesandans og um leið taka til varnar fyrir veruleika sem á undir högg að sækja. Í samtali við Bergstein Sigurðsson ræðir Sindri skáldskap, lestrarþróun og segir frá sérstæðu fjölskyldulífi í Haga í Aðaldal. 27.11.2011 07:00
Bölsýnisspár um Icesave voru bull að mati Sigmundar Allar hrakspár um hnignandi stöðu Íslands ef Icesave samningurinn yrði ekki samþykktur voru bull, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á miðstjórnarfundi flokksins í dag. 26.11.2011 16:39
Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur Harður árekstur varð við Landvegamótum á þriðja tímanum í dag. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild í Reykjavík. Ekki er vitað nákvæmlega hversu alvarlega þeir slösuðust. Áreksturinn virðist hafa verið mjög harður. 26.11.2011 15:51
Seinni ferð Herjólfs fellur niður Seinni ferð Herjólfs, sem átti að fara frá Vestmannaeyjum í kvöld, fellur niður vegna bilunar í skipinu. Unnið er að bráðabirgðaviðgerð á stýribúnaði en ljóst að sú viðgerð mun ekki klárast fyrr en í kvöld. 26.11.2011 15:03
Bílvelta á Suðurlandsvegi Bílvelta varð á Suðurlandsvegi, nærri Skíðaskálanum í Hveradölum fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hvort alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki. Þetta er í annað sinn í dag sem bílvelta verður á þessum stað, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Bílvelta varð þar í morgun og slapp ökumaður ómeiddur úr þeirri veltu. 26.11.2011 14:35
Íslendingar buðu Færeyingum aðstoð vegna óveðursins Íslensk stjórnvöld hafa verið í sambandi við Færeyinga eftir að ofsaveður gekk yfir Færeyjar í fyrrinótt og boðið fram aðstoð. "Við höfum látið þá vita að við værum til taks ef þeir þyrftu einhverja aðstoð," segir Jóhanna. 26.11.2011 13:33
Fjárlögin rædd í skugga deilna um Nubo Gert er ráð fyrir að önnur umræða um fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár hefjist á þriðjudaginn. Þetta staðfestir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar í samtali við Vísi. Ekki var gert ráð fyrir fjárfestingu kínverjans Huangs Nubo í forsendum fjárlaga. Þó er ljóst að umræðan um fjárlögin mun fara fram í skugga deilna stjórnarliða um þá ákvörðun innanríkisráðherra að heimila ekki fjárfestinguna. 26.11.2011 11:10
„Er bara slétt sama hver leigði hverjum“ Kostnaður við flutning Héraðsskjalasafns Kópavogs úr leiguhúsnæði í eigu Sjálfstæðisflokksins verður meira en tvöfalt hærri en áætlað var í upphafi. 26.11.2011 14:00
Reynir ekki aðrar leiðir til að eignast Grímsstaði Halldór Jóhannsson, aðstoðarmaður kínverska fjárfestisins Nubo, segir hann hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með ákvörðun innanríkisráðherra. Hann fullyrðir að Nubo muni ekki leita annara leiða til að komast yfir Grímsstaði á Fjöllum. Halldór segir að þrátt fyrir vonbrigðin virði Nubo íslensk lög og íslenskan vilja í málinu. Ekki verði reynt að fara neina bakdyraleið til að eignast Grímsstaði á Fjöllum. 26.11.2011 13:26
Tvö lík fundin í tengslum við Craiglistmorðin Lögreglan hefur fundið tvö lík í tengslum við rannsókn sína á vopnuðu ráni, sem menn eru farnir að kalla Craiglist málið. Grunur leikur á að árásarmaðurinn hafi fundið fórnarlömbin á vefsíðunni Craiglist. 26.11.2011 13:17
Leikmunabíll fauk út af vegi „Jú, hérna voru þrjátíu metrar á sekúndu. Og leikmunabíll hjá okkur fauk út af veginum. En það slasaðist enginn og allir leikmunir eru heilir. Þetta gerðist bara í „slow-motion“,“ segir Snorri Þórisson hjá Pegasus. Tökur á bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Game of Thrones eru hafnar í Skaftafelli við Hótel Freysnes en mikið óveður reið yfir Austurland á fimmtudagskvöld með fyrrgreindum afleiðingum. 26.11.2011 13:00
Kafarar komnir til Eyja Kafarar komnir til Eyja til að vinna að viðgerð á Herjólfi ásamt vélstjórum skipsins. Enn er óvíst með seinni ferð Herjólfs í dag, en eins og kunnugt er var ferð sem átti að fara í morgun felld niður vegna bilunar í stýrisbúnaði. Þeir farþegar sem eiga bókað far með skipinu hafa fengið senda tilkynningu og eru beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RUV. 26.11.2011 11:35
Fangelsaður fyrir að þykjast vera fatlaður Ólöglegur innflytjandi sem sveik hundruð þúsunda sterlingspunda af breskum skattgreiðendum með því að þykjast vera fatlaður hefur verið dæmdur í sex ára og ellefu mánaða fangelsi. Með því að látast vera fatlaður fékk maðurinn, sem heitir Mohamed Bouzalim, því framgengt að fimm ættingjar hans fengu að koma til Bretlands. Í sumum tilfellum var það undir því yfirskyni að sumir þeirra væru nauðsynlegir fyrir ummönnun hans. Svo bárust myndir af Bouzalim þar sem hann steig villtan dans í Marokkó árið 2009. Hann viðurkenndi 11 ákæruliði þegar málið kom fyrir dóm í Bretlandi. 26.11.2011 11:26
Ólafur afhendir verðlaun vegna Forvarnardagsins Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir í dag, laugardaginn verðlaun og viðurkenningar í ratleik og myndbandasamkeppni Forvarnardagsins 2011. Athöfnin fer fram á Bessastöðum. Verðlaunahafar koma bæði frá grunnskólum og framhaldsskólum víða að af landinu, svo sem frá Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri og Reykjavík. Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu segir að meðal gesta verði foreldrar og fjölskyldur verðlaunahafa sem og fulltrúar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Ungmennafélagi Íslands, Skátahreyfingunni og öðrum aðstandendum forvarnardagsins. 26.11.2011 10:28
Ferð Herjólfs var felld niður Fyrsta ferð Herjólfs, sem átti að fara frá Vestmannaeyjum klukkan 8 í morgun, var felld niður vegna bilunar í stýrisbúnaði ferjunnar. Á heimasíðu Eimskipa kemur fram að unnið sé að viðgerð. Óvissa er með seinni ferð Herjólfs í dag og eru farþegar beðnir um að fylgjast með framvindu mála í fréttum, á heimasíðu Herjólfs eða í síma 481-2800. 26.11.2011 09:59
Saka heri NATO um að hafa skotið á sig Pakistönsk stjórnvöld saka hermenn Atlantshafsbandalagsins um að hafa skotið á herstöðvar sínar við landamæri Pakistan og Afganistan um klukkan níu í gærkvöld. Samkvæmt frásögn Pakistana fórust 26 hermenn úr þeirra röðum í árásinni. Talsmenn Atlantshafsbandalagsins viðurkenna að atvik hafi átt sér stað nærri landamærunum og að verið sé að rannsaka það. Auk þeirra sem fórust er talið að sjö hafi særst alvarlega. 26.11.2011 09:47
Náttúruelskandi ljóðskáld skárri kaupandi en íslenskir útrásarvíkingar Fréttir af synjun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra á umsókn kínverjans Huang Nubo um að fá að kaupa Grímsstaði á Fjöllum vekur athygli erlendis. Á meðal fjölmiðla sem hafa látið málið sig varða eru The Wall Street Journal, Financial Times og Shanghai Daily. 26.11.2011 09:40
Fréttaskýring: Samfylkingarfólk orðið langþreytt Hvaða áhrif hefur ákvörðun um Grímsstaði á Fjöllum á stjórnarsamstarfið? "Það er ekkert leyndarmál að fullt af fólki í flokknum er orðið pirrað,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að veita félagi í eigu kínverska fjárfestisins Huang Nubo ekki heimild til kaupa á Grímsstöðum á Fjöllum hefur valdið titringi innan Samfylkingarinnar. 26.11.2011 09:00