Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krefst tveggja mánaða fangelsis yfir Þorsteini Það hefur ekkert komið fram í málinu sem bendir til þess að fylgst hafi verið með ferðum Sivjar, sagði verjandi Þorsteins Húnbogasonar í dómsal í dag. 11.10.2011 16:40
Berklatilfellum fækkar Samkvæmt tilkynningu frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni hefur berklatilfellum fækkað í fyrsta sinn. Tölur sína að dauðsföllum af völdum berkla hafa einnig fækkað og er þá sérstaklega litið til Kína, Brasilíu, Kenía og Tansaníu, en þar hafa aðgerðir skilað miklum árangri. 11.10.2011 16:35
Viðbrögð við dómi yfir Tymoshenko Margir þjóðarleiðtogar og samtök hafa brugðist við dómsuppkvaðningu í máli Júlí Tymoshenko fyrr í dag. Tymoshenko, fyrrverandi forsætisráðherra, Úkraínu var fundin sek um að hafa misbeitt valdi sínu árið 2009 þegar Úkraínska orkufyrirtækið Naftogaz gerði viðskiptasamning við Gazprom. 11.10.2011 16:15
Fyrst til Alþingis og svo til þjóðar Alþingi hefur þegar ákveðið að tillögur stjórnlagaráðs fari ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu áður en umfjöllun þingsins um tillögurnar hefst, sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis á þingfundi í dag. 11.10.2011 16:02
Segir Þorstein hafa fylgst með sér og birst fyrir tilviljun Siv Friðleifsdóttir alþingismaður sagði fyrir dómara í dag að Þorsteinn Húnbogason, fyrrum sambýlismaður sinn, hefði fylgst með sér og hefði oft birst fyrir tilviljun á ýmsum stöðum sem hún var á. 11.10.2011 15:15
ÍAV og Marti buðu lægst í Vaðlaheiðagöng ÍAV og Marti áttu lægsta tilboðið í Vaðlaheiðagöng, en tilboðin voru opnuð í dag. Tilboðið hljóðar upp á 8,9 milljarða króna. Tilboðið nemur 95% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar vegna verksins. Áætlunin hljóðaði uppp á rúma 9,3 milljarða króna. Þrjú önnur tilboð bárust en þau voru öll yfir kostnaðaráætlun. Það hæsta nam um 10,9 milljörðum króna. 11.10.2011 15:09
Gassamningur Rússlands og Kínverja í nánd Yfirvöld í Rússlandi greindu frá því í dag að orkusamningur við Kína væri nú langt kominn á leið. Viðskiptasamningurinn markar þáttaskil í samskiptum nágrannaríkjanna. Með samningnum fengi Kína aðgang að tugum milljarða rúmmetra af gasi frá Rússlandi. 11.10.2011 15:02
Fjármálaráðherra Egyptalands segir af sér Hazem el-Beblawi, fjármálaráðherra Egyptalands, hefur sagt af sér í kjölfar harmleiksins á sunnudaginn, en þar voru 25 mótmælendur drepnir og hundruðir særðust. Beblawi var skipaður fjármálaráðherra af herstjórninni sem tók við stjórn landsins eftir að Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, sagði af sér. 11.10.2011 14:36
Útborgun Grikklands talin líkleg Alþjóðlegir fjármálaeftirlitsmenn segjast hafa náð samkomulagi við Grikkland varðandi aðgerðir til að koma efnahagi landsins á réttan kjöl. 11.10.2011 14:14
Markmiði kynjakvótalaga náð Hlutfall kynja í nýjum nefndum sem skipaðar voru í fyrra var 43% konur og 57% karlar. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu Jafnréttisstofu. Hlutfall kynjanna í öllum nefndum sem starfandi voru í fyrra var 40% konur 60% karlar. 11.10.2011 14:12
Bretar og Bandaríkjamenn ráðast gegn sjóræningjum Utanríkisráðuneyti Ítalíu hefur greint frá því að sjóliðsveitir Bandaríkjamanna og Breta hafi frelsað áhöfn flutningaskipsins Montecristo út fyrir ströndum Sómalíu í dag eftir að sjóræningjar gengu um borð í skipið. 11.10.2011 13:58
Refsivert verði að veita þinginu rangar upplýsingar Það verður refsivert fyrir ráðherra að veita Alþingi vísvitandi rangar eða villandi upplýsingar eða leyna þingið upplýsingum, samkvæmt nýju lagafrumvarpi sem fimm stjórnarandstöðuþingmenn hafa lagt fram. Slíkt er ekki refsivert samkvæmt núgildandi lögum. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. 11.10.2011 13:55
Þorsteinn: "Kæran hreinn og klár sóðaskapur" "Vond,“ sagði Þorsteinn Húnbogason, fyrrverandi sambýlismaður Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, þegar hann var spurður að því hvernig tilfinning það væri að ganga inn í dómsal. Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum hófst rétt eftir klukkan eitt í dag en Þorsteinn er ákærður fyrir brot á fjarskiptalögum. 11.10.2011 13:54
Efnahagur Tælands slæmur í kjölfar flóða Í kjölfar mikilla flóða í Tælandi er talið að landið muni ganga í gegnum miklar efnahagsþrenginar á komandi mánuðum. Sérfræðinga grunar að framtíðarhorfum Tælands svipi mjög til þeirra sem Japanir gengu í gegnum eftir hamfarirnar í mars, fyrr á þessu ári. 11.10.2011 13:42
Lögreglan leitar skemmdarvarga Lögreglan leitar nú að hið minnsta tveimur aðilum sem eru grunaðir um að hafa stungið á hjólbarða á annan tug bifreiða á Seltjarnarnesi aðfaranótt síðasta laugardags. Þetta gerðist á Skólabraut, Vesturströnd, Bollagarðar, Sólbraut, Barðarströnd, Látraströnd og Suðurmýri. Lögreglan leitar vitna sem hugsanlega gætu hafa séð til þeirra sem voru að verki og biðlar til þeirra sem kunna að búa yfir einhverjum upplýsingum um málið að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000. 11.10.2011 13:29
Sorg í Kaíró Mikill fjöldi fólks kom saman í Kaíró stuttu fyrir miðnætti í gær til að votta þeim sem féllu í mótmælunum á sunnudaginn virðingu. Talið er að 20.000 manns haf komið saman við kirkju kristna Egypta. Kristnir Egyptar telja herinn bera ábyrgð á ofbeldinu sem er hið versta síðan byltingin hófst fyrir átta mánuðum. 11.10.2011 13:21
Tímóshenkó dæmd í sjö ára fangelsi Júlía Tímóshenko, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, hefur verið dæmd í sjö ára fangelsi fyrir að hafa misbeitt valdi sínu á meðan hún gegndi embætti árið 2009. 11.10.2011 13:05
Þingnefndarformaður vill að Landsvirkjun hjálpi Helguvík Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir nauðsynlegt að Landsvirkjun komi að orkuöflun fyrir álverið í Helguvík. Það sé skjótvirkasta leiðin til að skapa 1500 til 2000 manns störf. 11.10.2011 13:00
Mótmælendur í New York heimsækja milljónamæringa Mótmælahreyfingin Hernenum Wall Street (e. Occupy Wall Street) lætur til sín taka á ný. Lögreglan handtók 50 mótmælendur í Boston eftir þau neituðu að yfirgefa svæði sem þau höfðu aðhafst á í meira en viku. 11.10.2011 12:59
Aðalmeðferð í njósnamálinu í dag Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Þorsteini Húnbogasyni, fyrrum sambýlismanni Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, fer fram eftir hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er grunaður um að hafa njósnað um Siv með því að hafa komið ökurita fyrir í bifreið hennar. Þau voru í sambúið í tuttugu og sex ár. 11.10.2011 12:45
Stofnun Palestínuríkis ef til vill ekki tímabær „Ég vonast til þess a nefndin gefi sér góðan tíma til að vinna í þessu þingmáli,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í utanríkismálanefnd Alþingis. Nefndin ræddi í morgun þingsályktunartillögu utanríkisráðherra þess efnis að Ísland viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki. Bjarni segir ekki tímabært að spá fyrir um hver afdrif málsins verða. Það sé þó enginn ágreiningur um það að stefna beri að stofnun palestínsks ríkis. „Fyrir mér hefur spurningin verið sú hvort að það væri skynsamlegt og tímabært við núverandi aðstæður,“ segir Bjarni. 11.10.2011 12:02
Slóvakía kýs um breytingar á evrusjóði Búist er við að þing Slóvakíu greiði atkvæði í dag um breytingar á björgunarsjóði Evruríkjanna. Breytingarnar eru taldnar vera nauðsynlegar til að kljást við skuldavalda Evrópu. 11.10.2011 12:00
Dínamítmaður kærir úrskurð héraðsdóms Maðurinn sem sem stal sprengiefni úr tveimur rammgerðum gámum í síðustu viku hefur kært til Hæstaréttar úrskurð héraðsdóms um að hann skuli hefja afplánun þegar í stað. Maðurinn var á reynslulausn og átti eftir að afplána 300 daga. Eftir yfirheyrslu í gær var hann færður í Héraðsdóm Reykjavíkur sem úrskurðaði að maðurinn skildi hefja afplánun þegar í stað að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. 11.10.2011 11:54
Þingmaður vill rannsókn - segir líf Önnu í hættu Bandarískur þingmaður krefst þess að rannsókn fari fram á því hvernig stóð á því að nafn Önnu Björnsdóttur sem sagði til glæpaforingjans James "Whitey" Bulgers var gert opinbert. Hann segir líf hennar augljóslega í hættu. 11.10.2011 11:28
Ratko Mladic með lungnabólgu Fyrrverandi foringi Bosníu-Serba, Ratko Mladic, hefur verið lagður inn á spítala. Talið er að hann þjáist af lungnabólgu. Réttarhöld yfir Mladic fara fram í Haag í Hollandi. 11.10.2011 11:27
Neðansjávareldgos við Kanaríeyjar Neðansjávareldgos hófst við eyjuna El Hierro, sem tilheyrir Kanaríeyjaklasanum, í gær. Á vefnum Canaries News segir að vísbendingar séu um að eldgosið sé á 2000 metra dýpi á Las Calmas svæðinu. UM 9600 jarðskjálftar hafa verið á El Hierro síðan um miðjan júlí. Sá sterkasti varð á laugardaginn, en hann mældist 4,3 á Richterskvarða. 11.10.2011 11:17
Ópíumframleiðsla eykst um 61% í Afghanistan Ópíumframleiðsla í Afganistan jókst um 61% á síðasta ári. Ástæðan fyrir aukningunni er talin vera aukið verð ópíums sem hefur kvatt bændur í Aganistan til að stækka akra sína. 11.10.2011 11:10
Ögmundur heimsótti sérstakan saksóknara Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra heimsótti nýverið embætti sérstaks saksóknara. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, kynnti ásamt samstarfsmönnum sínum ráðherra og fylgdarliði starfsemi embættisins og starfsmenn. 11.10.2011 11:04
Dánarvottorð Steve Jobs opinberað Banamein Steve Jobs, fyrrum forstjóra og stofnanda Apple, hefur nú verið opinberað. Samkvæmt dánarvottorði lést Jobs úr andnauð sem orsakaðist vegna meinvarpa. Jobs þjáðist af krabbameini og hafði illkynja æxli í brisi. 11.10.2011 10:46
Þrekvirki unnið á tíu dögum Tuttugu og fimm ár eru liðin í dag frá því að Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, komu saman til leiðtogafundar í Höfða í Reykjavík. Fundurinn hefur oft verið talinn marka upphaf endaloka Kalda stríðsins. Óhætt er að segja að augu alheimsins hafi beinst að Íslandi á meðan á fundinum stóð, en sjálfsagt hefur enginn íslenskur maður verið erlendum fjölmiðlum mikilvægari en Jón Hákon Magnússon. Hann sá um að skipuleggja alþjóðlegu fjölmiðlamiðstöðina, sem starfaði á meðan að á fundinum stóð. 11.10.2011 10:33
Kappræður í Bandaríkjunum í dag Repúblikaninn og fylkisstjóri Texas, Rick Perry, vonast til að endurheimta efsta sæti skoðanakannana eftir kappræðurnar í New Hampshire í dag. 11.10.2011 10:18
Júlía Tymoshenko misbeitti valdi sínu Dómari í Úkraínu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Julía Tymoshenko fyrrverandi forsætisráðherra landsins hafi misbeitt valdi sínu þegar hún skrifaði undir gas samning við Rússa árið 2009. 11.10.2011 09:54
Unnu átján milljarða í lottó Nöfn hjóna frá Cambridge skíri í Bretlandi verða gerð opinber síðar í dag en á föstudaginn var duttu þau í lukkupottinn og unnu 101 milljón punda í Euromillions lottóinu, eða rúma átján milljarða íslenskra króna. Þau voru ein með allar tölur réttar og teljast nú á meðal ríkustu Englendinga. Til dæmis eru þau einni milljón punda ríkari en poppstjarnan David Bowie. Um er að ræða þriðja stærsta lottóvinning sögunnar í Bretlandi en sá stærsti, 160 milljónir punda féll í skaut skoskra hjóna fyrr á þessu ári. 11.10.2011 09:49
Endurvekur gömlu bókauppboðin „Ég er aðeins að reyna að endurlífga gömlu bókauppboðin sem voru í den en svona með nútímavæddu sniði," segir Ari Gísli Bragason, fornbókasali og framkvæmdastjóri fornbókaverslunarinnar Bókin ehf. Hann hefur undanfarna daga verið með uppboð á fornbókum á vefnum uppbod.is, en því líkur í dag. 11.10.2011 09:34
Kosið í Líberíu Kjörstaðar opnuðu í Líberíu í dag. Þetta er í annað sinn sem kosið er í Líberíu síðan borgarstyrjöldinni lauk árið 2003. 11.10.2011 09:26
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Túngötu og Garðastrætis nú rétt eftir klukkan níu í morgun. Meiðsli konunnar virðast vera minniháttar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en sólin er lágt á lofti nú í morgunsárið og gæti það hafa blindað ökumann. Konan verður flutt á slysadeild til skoðunar. 11.10.2011 09:20
Föngum sleppt í Búrma Yfirvöld í Búrma tilkynntu í morgun að þau ætli að náða 6300 fanga á einu bretti. Ekki er ljóst hve stór hluti þeirra er í fangelsi vegna pólitískra skoðanna sinna en yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að nýstofnuð mannréttindanefnd í landinu hvatti til þess að samviskufangar sem ríkinu stafi ekki hætta af ættu að fá frelsi. Talið er að tvöþúsund pólítískir fangar séu í haldi í Búrma. 11.10.2011 08:43
Danskur liðþjálfi fyrir herrétt Liðþjálfi í danska hernum hefur verið dreginn fyrir herrétt fyrir að skipa mönnum sínum inn á jarðsprengjusvæði í Afganistan. Atvikið átti sér stað þann þriðja september en þá sprakk sprengja í vegarkanti með þeim afleiðingum að hinn 22 ára gamli Jakob Olsen féll og fjórir félagar hans særðust. 11.10.2011 08:38
Dregur úr umferð Umferð í september síðastliðnum á sextán völdum talningarstöðum á hringveginum var 1,2 prósentum minni en í september í fyrra. Mesti samdrátturinn var á Norðurlandi, eða um tæp fjögur prósent, en minnstur í grennd við höfuðborgarsvæðið, eða 0,7 prósent. 11.10.2011 08:22
Slóvakar greiða atkvæði um stækkun neyðarsjóðsins Slóvakíska þingið mun síðar í dag greiða atkvæði um hvort rétt sé að stækka neyðarsjóð evrusvæðisins en Slóvakía er síðasta ríkið sem á eftir að útkljá málið af þeim sautján sem aðild eiga að evrusvæðinu. 11.10.2011 08:20
Versta umhverfisslys í sögu Nýja-Sjálands Óttast er að allt að þrjúþúsund tonn af olíu hafi þegar lekið úr tönkum flutningaskipsins Rena sem strandaði við Nýja Sjáland á miðvikudaginn í síðustu viku. Stjórnvöld segja að um versta umhverfisslys í sögu landsins sé að ræða en það gæti þó versnað til muna þar sem tæp 1700 tonn eru eftir af olíu í skipinu. Slæmt veður á svæðinu hefur ennfremur komið í veg fyrir að menn geti dælt olíu af Renu sem er 236 metrar á lengd og í eigu grísks skipafélags. 11.10.2011 08:19
Fullur braut sér leið inn í íbúð í Keflavík Maður sem var ofurölvi linnti ekki látum fyrr en honum tókst að brjóta sér leið inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Keflavík í nótt, en þar var hann ekki velkominn. 11.10.2011 08:08
Enginn þingmaður mætti í Fljótin Engin Alþingismaður sá ástæðu til að þiggja boð um að sitja aðalfund samtakanna Landsbyggðin lifi, sem haldinn var að Ketilási í Fljótum á laugardag. 11.10.2011 08:02
Vilja viðbragðsáætlun fyrir íbúa Umhverfisvaktin við Hvalfjörð leggur til við Umhverfisstofnun að gerð verði viðbragðsáætlun fyrir íbúa í nágrenni Grundartanga. Tilefnið er mengunarslys sem þar varð 21. september síðastliðinn og nágrannar voru ekki látnir vita af strax. 11.10.2011 07:59
Vatnslitamynd eftir Ásgrím seldist á tvær og hálfa milljón Vatnslitamynd frá Hornafirði, eftir Ásgrím Jónsson, var slegin á tvær og hálfa milljón króna auk uppboðsgjalda, á listmunauppboði Gallerís Foldar í gærkvöldi. 11.10.2011 07:56
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent