Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir leiðangrar keyrðir saman Hafrannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson eru nú í umfangsmiklum rannsóknaleiðangri umhverfis landið og í grænlenskri lögsögu. Þrjú rannsóknaverkefni eru sameinuð: stofnmæling botnfiska að haustlagi (haustrall), loðnumæling og mælingar á ástandi sjávar. 18.10.2010 04:30
Ræða samstarf við Rússland Sergei Shmatko, orkumálaráðherra Rússlands, kom í opinbera heimsókn til landsins í gær. Shmatko mun eiga fund með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra auk fulltrúa íslenskra orkufyrirtækja í dag þar sem samstarf milli þjóðanna á sviði orkumála verður rætt. 18.10.2010 04:15
Parkódín Forte til á næsta ári Gætt hefur skorts á algengum lyfjum í apótekum víða, hvort heldur er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Þetta á jafnt við um lyf sem seld eru í lausasölu og lyfseðilsskyld lyf. 18.10.2010 04:00
Endurunnið vekur athygli „Þetta er klapp á bakið. Það er okkar markmið að vinna með það sem til er og nota efni á annan hátt en þau voru ætluð fyrir upphaflega,“ útskýrir Erla Dögg Ingjaldsdóttir, sem hefur ásamt manni sínum, Tryggva Thorsteinssyni, hlotið R+D verðlaun bandaríska hönnunartímaritsins Architect Magazine. 18.10.2010 04:00
Um 130 nöfn þegar komin fram Allt stefnir í að frambjóðendur til stjórnlagaþingsins verði ríflega 150, en 126 nöfn voru fram komin í gærkvöldi. Af frambjóðendunum sem höfðu tilkynnt framboð sitt í gærkvöldi eru 40 konur. Alls eru 99 þessara frambjóðenda með skráð lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Þar af eru 76 Reykvíkingar. Framboðsfrestur rennur út um hádegið í dag. 18.10.2010 03:45
Náttúrufræði-stofnun flytur Náttúrufræðistofnun Íslands stendur þessa dagana í flutningum í nýtt húsnæði í Urriðaholti í Garðabæ. Húsið er 3.500 fermetrar að stærð og stendur við svokallað Jónasartorg, vestast á Urriðaholti. 18.10.2010 03:30
Skipta um trú í mótmælaskyni Bretland, AP Biskup og prestur innan ensku þjóðkirkjunnar tilkynntu nýverið að þeir ætli að gerast meðlimir rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Ástæðuna segja þeir vera óánægju með þau áform þjóðkirkjunnar að leyfa kvenkyns prestum að gegna stöðu biskups. 18.10.2010 03:15
Gat ekki valið á milli kvenna Pakistanskur maður að nafni Azhar Haidri ætlar að kvænast tvemur konum á innan við sólarhring. Hann gat ekki ákveðið hvort hann ætti að heiðra fjölskyldu sína og kvænast konunni sem hann hefur verið trúlofaður frá barnsaldri eða hvort hann ætti að leyfa hjartanu að ráða og kvænast ástinni sinni. Haidri ákvað því að besta lausnin væri að kvænast báðum konunum. 18.10.2010 03:00
Ágóði fer til BUGL Kiwanisklúbburinn Elliði safnaði 6,5 milljónum króna af sölu söngbóka. Ágóðinn rennur óskiptur til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL). Meðal þeirra verkefna sem urðu til út frá söfnuninni er þjálfunarherbergið Birtan, sem var formlega tekið í notkun í gær. Herbergið verður notað hjá BUGL til skynörvunar og eru þar ýmis tæki til þess. 18.10.2010 03:00
Metfjöldi var á Landsmóti æskulýðsfélaga Landsmót æskulýðsfélaga fór fram á Akureyri um helgina og tóku rúmlega sjö hundruð ungmenni þátt í mótinu í ár. Þrælabörn á Indlandi voru í brennidepli á mótinu sem var hið fjölmennasta sem haldið hefur verið. 18.10.2010 03:00
Kjarnorkuver reist í Venesúela Caracas, AP Hugo Chavez, forseti Venesúela, tilkynnti fyrir helgi að samningar hefðu náðst við Rússa um byggingu kjarnorkuvers í landinu. 18.10.2010 02:15
Frakkar bensínlausir í verkfallsaðgerðum PARÍS, AP Enn var þeim áformum ríkisstjórnar Nikolas Sarkozy, forseta Frakklands, að hækka eftirlaunaaldur úr sextíu árum í 62 ár mótmælt í gær þegar hundruð þúsunda streymdu út á götur í helstu borgum landsins. Einnig var mótmælt á laugardag og stendur til að halda mótmælum áfram á morgun, sem þá verða sjöttu stóru mótmælin á innan við mánuði í landinu. 18.10.2010 02:00
Öryggisdagar hjá Strætó bs. Öryggisdagar, átak sem Strætó bs. og VÍS standa fyrir næstu sex vikur, miða að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Átakið er liður í forvarnaverkefni sem Strætó bs. og VÍS hafa unnið saman að frá ársbyrjun 2008. 18.10.2010 02:00
Ástralar hafa eignast sinn fyrsta dýrling PÁFAGARÐUR, AP Benedikt páfi XVI. tilkynnti á sunnudag að áströlsk nunna yrði tekin í dýrlingatölu, fyrst Ástrala. 18.10.2010 01:30
Munnmök ástæða aukningar krabbameins í munni Munnmök eru talin orsök þess að tíðni krabbameins í munni og hálsi er orðið helmingi algengara en fyrir um 20 árum. Faraldsfræðingur segir veiru sem getur orsakað krabbameinið hafa smitast mjög víða hér á landi enda eigi Íslendingar yfirleitt fleiri rekkjunauta en gengur og gerist í öðrum löndum. 17.10.2010 19:19
Kennir opinberum álögum um minni umferð Miklu minni umferð mældist á vegum landsins í septembermánuði en í sama mánuði í fyrra, og hefur umferðin ekki verið minni síðan árið 2005. Formaður Félags íslenskra bifreiðareigenda kennir opinberum álögum um. 17.10.2010 19:09
Héðinsfjarðargöng dýrari en öll Fjallabyggð Héðinsfjarðargöng í Fjallabyggð kostuðu meira en samanlagt verðmæti allra fasteigna, lóða, landa og hlunninda í Fjallabyggð. 17.10.2010 19:00
Fréttir vikunnar: Gekk berserksgang og sögulegur sigur Fundarhöld um skuldavanda heimilanna héldu áfram í vikunni og á mánudagsmorgun voru forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna boðaðir til fundar með fimm ráðherrum í forsætisráðuneytinu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist aftur á móti ekki hafa fengið neitt fundarboð. Hann kvaðst vera tilbúinn í samstarf við ríkisstjórnina en um leið væri hann ekki tilbúinn að taka þátt í einhverju sýndarsamráði. Síðar um daginn kom í ljós að Bjarni var í raun boðaður á fundinn þegar Vísir birti tölvupóst sem sendur var til forystumanna stjórnarandstöðuflokkanna. 17.10.2010 17:30
Námuverkamennirnir fögnuðu Tólf að námuverkamönnunum 33 sem bjargað var úr námugöngunum í Chile í vikunni komu saman í dag í búðunum við koparnámnuna til að fagna björgun þeirra. Í frétt á BBC er haft eftir læknum að námuverkamennarnir séu ótrúlega vel á sig komnir. Einungis einn þeirra dvelur enn á sjúkrahúsi. 17.10.2010 16:38
Útvíkka forvarnarverkefni Strætó bs. og VÍS munu næstu sex vikur standa fyrir Öryggisdögum, átaki sem miðar að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Átakið er liður í forvarnarverkefni sem fyrirtækin hafa unnið saman að frá ársbyrjun 2008 og hefur leitt til fækkunar umferðaróhappa hjá Strætó, að því er fram kemur í tilkynningu. Með Öryggisdögum er verkefnið útvíkkað þannig að allir þátttakendur í umferðinni eru hvattir til að sýna aðgát, tillitssemi og ábyrga hegðun á götum úti. 17.10.2010 16:14
Undrast stefnubreytingu Jóhönnu Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, undrast það sem hann kallar 180 gráðu stefnubreytingu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, kemur kemur að skuldamálum heimilanna og hugmyndunum um niðurfærslu lána. 17.10.2010 16:00
Sjö látnir eftir skartgriparán Sjö létu þegar að skotbardagi braust út í miðborg Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag þegar þrjár skartgripaverslanir voru rændar. Meðal hinna látnu eru þrír starfsmenn verslananna og tveir lögreglumenn. Nokkrir almennir borgarar særðust. 17.10.2010 15:20
Chavez til fundar við Ahmadinejad Hugo Chavez, forseti Venesúela, er á leið til Írans þar sem hann hyggst funda með vini sínum Mahmoud Ahmadinejad, forseta landsins. Venesúela og Íran hafa styrkt mjög samband sitt á undanförnum árum og hafa forsetarnir verið duglegir að heimsækja hvern annan. Hugsunin með fundi þeirra er að styrkja samband ríkjanna ennfrekar. 17.10.2010 14:57
Björn Valur tekur gagnrýni ungliðanna alvarlega Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, tekur gagnrýni ungliðahreyfingar flokksins alvarlega. Hann hefði kosið að ungliðarnir kynntu sér betur forsendur málsins. Björn Valur hefur óskað eftir fundi með forystumönnum hreyfingarinnar. 17.10.2010 14:39
„Á meðal lætur Jóhanna reikna“ „Innan ríkisstjórnarinnar er augljós ágreiningur um leiðir,“ segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, í pistli á heimasíðu sinni. Hann segir ágreiningin innan VG þar sem Steingrímur J. og Ögmundur Jónasson séu á öndverðum meiði. „Þeir tala hvor gegn öðrum, á meðan Jóhanna lætur reikna. Innganga Ögmundar í ríkisstjórnina hefur gert hana óstarfhæfari en áður og er þá mikið sagt.“ 17.10.2010 13:46
Prinsessa í sjokki eftir bílslys Beatrice prinsessa, dóttir Andrews prins af Englandi, slapp með skrekkinn eftir bílslys skammt frá Buckingham höll í morgun. Prinsessan var í BMW bíl sínum ásamt lífverði í sex akreina hringtorgi skammt frá höllinni þegar hún bíllinn kramdist milli tveggja hæða strætisvagns og rútu. Bíllinn er mikið skemmdur en prinsessan og lífvörðurinn sluppu ómeidd. Hún er þó sögð hafa verið í sjokki eftir óhappið. 17.10.2010 13:34
Borgarstjóri spenntur fyrir Kópavogstattúi - vill sameiningu Jón Gnarr, borgarstjóri, segir að með því að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu myndu milljarðar sparast á ári hverju. Hann vill að Reykjavík og Kópavogur fari að huga að sameiningu. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu Jóns á samskiptavefnum Facebook. 17.10.2010 13:13
ASÍ: Ekki við okkur að sakast „Það er stjórnmálamannanna að svara því hvort vilji er til þess að fara þessa leið eða ekki og ef stjórnvöld vilja fara hana væri nær að fjármagna hana með almennum sköttum frekar en að láta þá sem lökust hafa lífeyrisréttindin taka skellinn með lækkun réttinda,“ segir í tilkynningu um greiðslu- og skuldavanda heimilanna á vefsíðu ASÍ. Þar segir að ýmsir aðilar hafi undanfarna daga leyft sér að rangtúlka og afvegaflytja afstöðu sambandins í málinu. Nú síðast Hagsmunasamtök heimilianna. 17.10.2010 12:14
Hefur verulegar áhyggjur af stöðu Íbúðalánasjóðs Lántakendur hjá Íbúðalánasjóði sem eru í greiðsluerfiðleikum geta breytt láni sínu í kaupleigusamning samkvæmt frumvarpi sem ríkisstjórnin afgreiddi á föstudag. Forsætisráðherra hefur verulegar áhyggjur af stöðu sjóðsins. 17.10.2010 12:11
Ættingjar bíða í ofvæni Ættingjar ellefu námuverkamanna sem eru fastir í kolanámu í Kína, eru komnir að námunni og bíða í ofvæni eftir fréttum af björgunarstörfum. Sprenging varð í námu sem er um 650 kílómetra suður af Peking. 26 námumenn fórust í sprengingunni. 17.10.2010 11:54
Fyrrverandi ráðherra íhugaði framboð til stjórnlagaþings Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Alþýðubandalagsins, íhugaði að gefa kost sér til stjórnlagaþings. Framboðsfrestur rennur út á mánudag og hefur framboðum rignt inn síðustu daga og hafa yfir 130 skráð sig til leiks. 17.10.2010 11:41
Milljarðamæringur hefur ekki gefið sig fram Breskur lottóspilari sem fékk ríflega 20 milljarða króna í vinning þegar stóri potturinn í Evrópulottóinu kom á einn miða fyrir níu dögum hefur ekki gefið sig fram. Það eina sem liggur fyrir er að miðinn var keyptur í Coventry. 17.10.2010 11:06
Funda um leiðir Sérfræðingahópur ríkisstjórnarinnar kemur saman í dag með fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna og fleirum seinnipartinn í dag til að fara yfir útreikninga sem unnið hefur verið að um helgina. Sigurður Snævarr efnahagsráðgjafi forsætisráðherra fer fyrir hópnum. 17.10.2010 10:23
Marinó gefur fullyrðingum Þórólfs falleinkunn Marinó G. Njálsson, ráðgjafi og stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, segir Þórólf Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, bregðast frumskyldu sinni sem fræðimanns. Ennfremur gefur Marinó fullyrðinum Þórólfs falleinkunn í pistli á heimasíðu sinni og heldur því áfram að gagnrýni fræðimenn sem hafa tjáð sig undanfarna daga um Hagsmunasamtök heimilanna og almenna niðurfærslu lána. 17.10.2010 10:19
UVG kalla Össur hervaldssleikju og segja Björn Val vanhæfan Ákvörðun utanríkisráðráðherra að undirrita samning um samstarf við Kanada í varnarmálum er pungspark í Vinstri græna og brýtur gróflega í bága við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að mati Ungra vinstri grænna. Félagið telur að Björn Valur Gíslason, þingmaður flokksins, hafi verið vanhæfur til að taka þátt í starfi starfshóps um endurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktunum sem samþykktar voru á landsfundi UVG um helgina. Á fundinum var Guðrún Axfjörð Elínardóttir kjörin nýr formaður félagsins. 17.10.2010 09:51
Fótboltastjarna keypti bassagítar bítils Bassagítar sem áður var í eigu bítilsins Paul McCartney var seldur á uppboði í Buenos Aires höfuðborg Argentínu á föstudag fyrir 4,2 milljónir króna. Fótboltastjarnan Javier Zanetti keypti gripinn. Bassinn var hluti af bítlaminjagripum úr safni Raul Blisniuk, sem sagður er mikilvægasti bítlasafnari í Suður-Ameríku. 17.10.2010 09:46
Sex teknir í dýrlingatölu Tugir þúsunda manna komu saman á Péturstorginu í Róm í morgun í messu þar sem sex einstaklingar verða teknir í dýrlingatölu. Dýrlingarinir nýju eru frá Ástralíu, Kanada, Póllandi, Ítalíu og Spáni. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar nafn Mary MacKillop nítjándu aldar nunnu frá Ástralíu var nefnt, en hún var um tíma bannfærð af kaþólsku kirkjunni eftir að hún greindi frá barnaníðingi í hópi presta. Hún er fyrsti Ástralinn til að vera tekin í dýrlingatölu. Fáni Qubecs héraðs í Kanada var áberandi á Péturstorginu. Andre Bessette, munkur sem fæddist í Montréal, var einnig tekinn í dýrlingatölu en hann er sagður hafa læknað marga sjúka með bænum sínum. 17.10.2010 09:38
Brutu rúður og gistu fangageymslur Tveir karlmenn voru handteknir fyrir að vinna eignaspjöll á skemmtistöðum í miðborg Reykjavíkur í nótt. Mennirnir brutu meðal annars rúður og voru ófærir um að vera á almannafæri sökum ölvunar, líkt og varðstjóri orðaði það í samtali við fréttastofu. Um tvö mál var að ræða því mennirnir svöluðu skemmdarfýsn sitt í hvoru lagi. Þeir voru fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu og gistu fangageymslur í nótt. 17.10.2010 09:31
Bandaríkin geta gert betur Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin þurfa að gera mun meira til að aðstoða mexíkósk yfirvöld í baráttu þeirra gegn skipulögðum glæpasamtökum. Hún líkir samtökunum við starfsemi hryðjuverkamanna og bendir máli sínu til stuðnings á að glæpasamtökin beiti nú óspart bílsprengjum. 17.10.2010 07:15
Tólf drukknuðu í flóðum Að minnsta kosti 12 drukknuðu í flóðum í suðurhluta Rússlands í gær en þar hefur verið úrhellisrigning undanfarna daga. Þriggja er saknað. Nokkur hundruð íbúar á flóðasvæðunum hafa verið fluttir burt frá heimilum sínum og þá hafa hermenn verið sendir til að aðstoða við fólksflutninga. 17.10.2010 07:15
Vann 57 milljónir Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann rúmum 56,8 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 29, 30, 31, 33 og 34. Miðinn var seldur í Snælandi við Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Sjö voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar 6. Þeir fá 111 þúsund krónur í sinn hlut. Þá var einn spilari með fimm réttar tölur í réttri röð í Jokernum og er hann tveimur milljónum ríkari. 16.10.2010 19:37
Þorbjörg Helga vill auglýsa stöðuna Tillaga um að breyta starfi skrifstofustjóra Reykjavíkurborgar og auka völd hans verður tekin til umfjöllunar eftir helgi. Starfið verður ekki auglýst, þrátt fyrir að um eitt valdamesta embætti í borginni sé að ræða. Það er yfirlýst markmið Besta flokksins og Samfylkingarinnar að auglýsa öll störf. 16.10.2010 19:28
Hyggst verja friðarverðlaununum til uppbyggingar skóla í Afríku Baráttukonan og rithöfundurinn Alice Walker ætlar að verja Lennon/Ono friðarverðlaununum til uppbyggingar skóla fyrir stúlkur í Kenya. Hún segir kynþáttamismunun enn eiga sér stað í Bandaríkjunum, enda séu fleiri svartir Bandaríkjamenn í fangelsum en í háskólum landsins. 16.10.2010 19:10
Frumvarp vegna gengislána lagt fyrir eftir helgi Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra í tengslum við gengisdóm Hæstaréttar verður að öllum líkindum lagt fram í ríkisstjórn á þriðjudag. 16.10.2010 18:40
Lýst eftir 16 ára stúlku Lögreglan höfuðborgarsvæðisins leitar að Ísold Önnu Árnadóttur. Ísold Anna er 16 ára, 165 sm á hæð með ljósskolhært millisítt hár. Hún er íklædd blárri flíspeysu og hvítri úlpu, ljósgrænum buxum og bleikum strigaskóm. 16.10.2010 18:31