ASÍ: Ekki við okkur að sakast 17. október 2010 12:14 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Mynd/Pjetur „
Það er stjórnmálamannanna að svara því hvort vilji er til þess að fara þessa leið eða ekki og ef stjórnvöld vilja fara hana væri nær að fjármagna hana með almennum sköttum frekar en að láta þá sem lökust hafa lífeyrisréttindin taka skellinn með lækkun réttinda,“ segir í tilkynningu um greiðslu- og skuldavanda heimilanna á vefsíðu ASÍ. Þar segir að ýmsir aðilar hafi undanfarna daga leyft sér að rangtúlka og afvegaflytja afstöðu sambandins í málinu. Nú síðast Hagsmunasamtök heimilianna. ASÍ segist hafa lagt mikla áherslu á að frá fram breytingar á lögum og reglum svo hægt væri að takast með trúverðugum og sanngjörnum hætti á við mikinn greiðslu- og skuldavanda þeirra heimila sem verst hafa orðið úti í efnahagshruninu. „Krafa okkar er að þetta verði gert með aðlögun á greiðslubyrði í formi hagstæðari greiðslu- og lánaskilmála og beinni afskrift eða lækkun skulda – sérstaklega hjá ungu fólki sem keypti sína fyrstu íbúð á árunum 2006-8.“Vilja hjálpa þeim sem eru í mestum vanda Ennfremur segir í tilkynningunni: „Í öðru lagi hefur ASÍ aldrei sett sig á móti því að stjórnvöld fari þá leið að lækka skuldir allra þeirra sem eitthvað skulda – óháð hvort þeir eru í einhverjum vanda með skuldir sínar eða ekki. ASÍ hefur óskað eftir upplýsingum um það með hvaða hætti fjármagna eigi slíka aðgerð – sem almennt er viðurkennt að kosti á bilinu 220-230 miljarða króna.“ Þá segir ASÍ a gera verði greinarmun á andstöðu sambandsins við að lífeyrissparnaður verði tekin ófrjálsri hendi og afstöðunnar til almennrar lækkunar skulda óháð þörf. „Þó okkar barátta hafi fyrst og fremst snúist um að hjálpa þeim sem eru í mestum vanda – þeirra sem eru að missa heimili sín – er það einfaldlega rangt að við höfum brugðið fæti fyrir almenna lækkun skulda allra. Þeir sem sett hafa slíkar tillögur á oddinn hljóta hins vegar að bera ábyrgð á því að finna haldbærar og lögmætar leiðir til að fjármagna slíka aðgerð í stað þess að láta málið snúast um tillögu um að lífeyrissparnaður almenns launafólks sé tekin ófrjálsri hendi.“Ekki við ASÍ að sakast ASÍ segir með ólíkindum að stjórnmálamenn hafi sett þessa umræðu af stað ef forsenda hennar hafi frá upphafi hvílt á samþykki forystu Alþýðusambandsins fyrir því að lífeyrissparnaður félagsmanna þess yrði tekin ófrjálsri hendi. „Það er enn furðulegra að halda því fram, að andstaða forystu ASÍ við slíkri óréttlátri og ólögmætri ráðstöfun sé andstætt hagsmunum þess. Hitt get ég tekið undir með talsmönnum Hagsmunasamtaka heimilanna að ríkisstjórnin hafi ,,dregið þau á asnaeyrunum’’ en það er ekki við ASÍ að sakast í því efni.“
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira