Innlent

Öryggisdagar hjá Strætó bs.

Fylgjast á sérstaklega með umferðaróhöppum Strætó.
Fréttablaðið/Vilhelm
Fylgjast á sérstaklega með umferðaróhöppum Strætó. Fréttablaðið/Vilhelm

Öryggisdagar, átak sem Strætó bs. og VÍS standa fyrir næstu sex vikur, miða að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Átakið er liður í forvarnaverkefni sem Strætó bs. og VÍS hafa unnið saman að frá ársbyrjun 2008.

Átakið felst meðal annars í því að jákvæðum skilaboðum verður komið fyrir á strætisvögnum til að hvetja ökumenn og aðra til að huga að akstri sínum og hegðun í umferðinni. Að auki munu strætisvagnabílstjórar leggja sérstaka áherslu á að vera til fyrirmyndar og sýna gott fordæmi. Til stendur að fylgjast sérstaklega með umferðaróhöppum Strætó á tímabilinu með það að markmiði að fækka óhöppum, auk þess sem regluleg umfjöllun verður um átakið og árangurinn í umferðinni á vefsíðunni Strætó.is. Þá er almenningur hvattur til að taka þátt með því að senda skilaboð og ábendingar til Strætó. - kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×