Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki fávitar Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, segir að það hafi alltaf legið fyrir að verði farið í almennar niðurfærslur lána verði hún bótaskyld. Þess vegna hafi samtökin talað fyrir þjóðarsátt. Hann gefur lítið fyrir yfirlýsingar lögfræðinga undanfarna daga og segir stjórnarmenn hjá samtökunum ekki vera fávita. 16.10.2010 15:08
Sérhæfðaþjónustu á að veita í Reykjavík og á Akureyri Læknaráð Landspítala telur skynsamlegt að veita sérhæfða sjúkrahúsaþjónustu á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ráðið fagnar þeirri framtíðarstefnu sem heilbrigðisyfirvöld hafa markað og snýst um að draga úr sérhæfðri sjúkrahúsaþjónustu á landsbyggðinni en efla í stað þess heilsugæslu og aðra grunnþjónustu. 16.10.2010 14:35
Vatn sprautaðist yfir rannsóknartæki „Það fór rör í loftinu í sundur þannig að vatn sprautaðist yfir rannsóknartæki," segir Bergur Gunnarsson, einn af umsjónarmönnum bygginga Háskóla Íslands. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan níu í morgun vegna vatnsleka í VR-III, húsnæði verkfræðideildar skólans við Hjarðarhaga. 16.10.2010 14:14
Góðkunningi Íslendinga slær í gegn í Ölpunum Gamall „góðkunningi“ Íslendinga gegnir stóru hlutverki við gerð Gotthard-jarðganganna í svissnesku Ölpunum. Þetta er risaborinn TBM-1, en hann var einn þriggja risabora sem boruðu aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar, milli Hálslóns og Fljótsdals. 16.10.2010 13:55
Formaður menntaráðs: Skólinn verður að vera hlutlaus í trúmálum Formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar vill draga skýra línu þegar kemur að ásælni trúfélaga inn í leik- og grunnskóla. Hún fagnar drögum að ályktun sem meirihluti mannréttindaráðs borgarinnar lagði fram í vikunni sem fjallar um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir að fermingarfræðsla skuli fara fram utan skólatíma. Auk þess verða heimsóknir starfsmanna trúar- og lífsskoðunarfélag á frístundaheimili, í leik- og grunnskóla óheimilar ef ályktunin verður samþykkt. 16.10.2010 13:46
Stjórnarþingmaður: Líf stjórnarinnar í höndum sérfræðinganefndar Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, segir líf ríkisstjórnarinnar vera í höndum sérfræðinganefndar sem hefur tekið til starfa. Falli niðurstöður nefndarinnar ekki í kramið hjá almenningi verða tunnumótmælin svokölluðu endurtekin. 16.10.2010 13:00
Hagsmunum landsbyggðarinnar ekki fórnað fyrir hátæknisjúkrahús Fullyrðingar um að verið sé að fórna hagsmunum landsbyggðarinnar fyrir hátæknisjúkrahús eru ómaklegar og beinlínis rangar segir forstjóri Landspítalans. 16.10.2010 12:59
Tuttugu námumenn fórust í Kína 20 námumenn fórust og allt að 30 eru innilokaðir í rústum eftir sprengingu í námu í Henan héraði í Kína í morgun. Ekki liggja fyrir upplýsingar um á hve miklu dýpi mennirnir 17 eru . Stutt er síðan 33 námumönnum var bjargað eftir tæpa 70 daga innilokun í námu í Chile, en þeir hafa allir nema tveir fengið að fara heim af sjúkrahúsi eftir björgunina. 16.10.2010 12:27
Reikna út kostnað við aðgerðir til handa skuldugum heimilum Sérfræðingar á vegum stjórnvalda munu um helgina reikna út hvað aðgerðir til handa skuldugum heimilum muni kosta ríkissjóð og aðra. Forsætisráðherra vonar að fyrstu skrefin liggi fyrir á næstu dögum en segir að nokkar vikur geti liðið áður en endanleg niðurstaða náist. 16.10.2010 12:11
Pétur Blöndal: Yfirdráttur er bannorð fyrir heimili Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist vilja horfa framtíðar og að hver einasti maður einsetji sér að eftir tíu til fimmtán ár skuldi hann einungis náms- og íbúðarlán. „Menn eiga ekki að taka lán fyrir öðru.“ 16.10.2010 11:27
Áströlsk nunna tekin í dýrlingatölu Beneditk sextándi páfi mun formlega taka Mary MacKillop, ástralska nunnu, í tölu dýrlinga við hátíðarmessu á morgun, en hún verður fyrsti Ástralinn til að komast í tölu heilagra innan kaþólsku kirkjunnar. MacKillop stofnaði hreyfinguna Systur heilags Jósefs og heimsótti Róm á árunum 1873 til 1874 í þeim tilgangi, eða um það bil sem Íslendingar fengu fyrstu stjórnarskrána frá Dönum. 16.10.2010 11:15
Hæstaréttarlögmaður: Almenn niðurfærsla lýsir taugaveiklun Formaður Lögmannafélagsins segir eignarréttinn varinn af stjórnskránni og Alþingi ekki geta með einu pennastriki svipt kröfueiganda eignum sínum. Hann segir að flokka eigi hugmyndir um niðurfærslu sem taugaveiklun og ráðaleysi. 16.10.2010 10:46
Kópavogsbær greiði 20 milljónir í bætur fyrir að eyðileggja skóg Hæstiréttur hefur dæmt Kópavogsbæ til að greiða Skógræktarfélagi Reykjavíkur um 20 milljónir í skaðabætur fyrir að ryðja niður skóg í leyfisleysi á útivistasvæði í Heiðmörk. Svæðið tilheyrir Reykjavík en var í umsjá Skógræktarfélagsins. 16.10.2010 10:11
Hart deilt um eftirlaunaaldur Frakkland logar í illdeilum vegna áforma ríkisstjórnar Nicolasar Sarkozy forseta landsins um að hækka lágmarks eftirlaunaaldur úr 60 árum í 62 ár. Verkalýðsfélög í Frakklandi boða til mótmæla í dag og vona leiðtogar þeirra að milljónir manna haldi út á götur borga landsins. Verkföll hafa truflað daglegt líf í landinu undanfarna daga, þannig að sumstaðar er skortur að verða á bensíni og flug frá Orly flugvelli í París raskaðist í gær vegna verkfalls hlaðmanna. Þá er búist við að lestarsamgöngur fari úr skorðum í dag. 16.10.2010 10:01
Segir almenna niðurfærslu vera eignarnám Almenn niðurfærsla lána telst eignarnám, að mati Karls Axelssonar, hæstaréttarlögmanns og dósents við lagadeild HÍ. Hann segir að niðurfærslan verði að eiga sér stað með lagasetningu frá Alþingi og eigendur skuldabréfanna, þ.e kröfuhafar, verði að fá mismuninn greiddan sem bætur frá ríkinu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. 16.10.2010 09:57
Slitastjórn Glitnis verði vikið frá Fyrrverandi starfsmaður Glitnis hefur sent formlega kvörtun til dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur yfir vinnubrögðum slitastjórnar Glitnis við skýrslutöku á hennar vegum. Hefur maðurinn, sem var viðskiptastjóri hjá Glitni, krafist þess að slitastjórnarmönnuum verði vikið frá og aðrir skipaðir í þeirra stað, að því er fram kemur í Morgunblaðinu. 16.10.2010 09:55
Støre: Viðbrögð Kínverja vonbrigði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, segist hafa tilkynnt kínverskum stjórnvöldum að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögð þeirra við því að Nóbelsnefndin norska hafi veitt Liu Xiaobo friðarverðlaun. Norska dagblaðið Aftenposten greinir frá því að Støre hafi sérstaklega varað Thorbjørn Jagland, formann nefndarinnar, við því að veita Liu Xiaobo friðarverðlaunin. 16.10.2010 09:48
Flatskjá og verkfærum stolið Lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um tvö innbrot í gærkvöldi þar sem brotist hafði verið í vinnuskúr og sumarbústað í Bláskógabyggð. Í Miðfellslandi var verkfærum stolið úr vinnuskúr og Skógarnesi var flatskjá og öðrum raftækjum stolið úr sumarbústað. Ekki liggur fyrir hvenær innbrotin áttu sér stað. 16.10.2010 09:46
Ölvaðir í kappakstri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvo ökumenn sem voru í kappakstri á Suðurlandsbraut í Reykjavík á þriðja tímanum nótt. Mennirnir voru færðir á lögreglustöðina við Hverfisgötu eftir að í ljós kom að þeir óku báðir undir áhrifum áfengis og auk þess án réttinda. Mennirnir eru báðir 22 ára. 16.10.2010 09:30
Ók undir áhrifum á ljósastaur Ungur ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði á ljósastaur í Reykjanesbæ skömmu eftir miðnætti. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn gisti fangageymslu í nótt og verður yfirheyrður síðar í dag. Bifreiðin er töluvert skemmd, að sögn varðstjóra. 16.10.2010 09:18
Upplifðu reynsluheim blindra Dagur hvíta stafsins, alþjóðlegur baráttudagur blindra og sjónskertra, var í gær og stóð Blindrafélagið fyrir margvíslegri dagskrá í tilefni dagsins. 16.10.2010 08:30
Uppgreiðsla lána rædd Marel á í formlegum viðræðum við takmarkaðan fjölda alþjóðlegra banka um hagkvæmari fjármögnun fyrirtækisins til lengri tíma litið. Í tengslum við fyrirhugaða fjármögnun mun Marel hefja viðræður við eigendur skuldabréfa um hugsanlega uppgreiðslu lána, að því er fram kemur í tilkynningu. 16.10.2010 08:00
Tíu í tíu löndum fengu 10 þúsund Samfélagssjóður Alcoa færði tíu félagasamtökum í tíu löndum tíu þúsund Bandaríkjadala í styrk sunnudaginn 10. október. Það er um 1,2 milljónir íslenskra króna. Björgunarsveitin Ársól á Reyðarfirði varð fyrir valinu á Íslandi. 16.10.2010 07:00
Hálfáttræður fastur í starfi sem húsvörður „Það er margt annað sem maður hefur áhuga á að gera áður en maður verður alveg ónýtur til alls. Fyrir mann sjálfan bara,“ segir Ásmundur Þórhallsson, sem verið hefur húsvörður á Eiðum á Héraði um árabil og lengur en hann kærir sig um. 16.10.2010 06:15
Miðar á Dísu ljósálf ruku út Tvö hundruð gjafamiðar á fjölskyldusöngleikinn Dísu ljósálf ruku út á fimmtán mínútum í Austurbæjarbíói í gær þegar Fréttablaðið gaf áhugasömum lesendum miða á sýninguna. 16.10.2010 06:00
Útlit fyrir töluverða fækkun í bændastétt Horfur eru á að bændum fækki mikið á næstunni, að því er segir í efnahagstímaritinu Vísbendingu. Fækkunin er sögð afleiðing breyttra aðstæðna í búrekstri og viðbragða bændastéttarinnar við þeim. „Eitt af því sem veldur því að íslenskir bændur eiga erfitt uppdráttar er minnkandi neysla á mörgum landbúnaðarafurðum,“ segir í Vísbendingu. 16.10.2010 06:00
Lífeyrissjóðir setji á fót íbúðaleigufélög „Bankar og Íbúðalánasjóður verða að taka sig saman og búa til félag sem kaupir fasteignir og setur á laggirnar þróað leigufélag. Það gæti verið í eigu lífeyrissjóða, verkalýðsfélaga eða fjárfesta,“ segir Svanur Guðmundsson, formaður Félags löggiltra leigumiðlara og framkvæmdastjóri leigumiðlunarinnar Húsaleiga.is. 16.10.2010 05:00
Landnemabyggðir rísa á ný Ísraelsk yfirvöld hafa bundið enda á óformlegt bann við byggingu landnemabyggða í austurhluta Jerúsalem. Framkvæmdir á svæðinu höfðu legið niðri undanfarna mánuði en þær eru horn í síðu Palestínumanna, sem hefur fundist þrengt að sér í palestínska hluta borgarinnar. 16.10.2010 05:00
Íbúar snúa heim eftir eðjuflóð Íbúar ungverska bæjarins Kolontar eru á leið heim aftur eftir að eðjuflóð skall á bænum í síðustu viku. Stífla við úrgangslón álverksmiðju í nágrenninu brast og rauð eitureðja flæddi um nærliggjandi sveitir. 16.10.2010 04:00
Jákvæð fyrir ísgangaverkefni Bæjaryfirvöld í Borgarbyggð hafa ekki tekið ákvörðun um hvort komið verði með beinum hætti að stofnun undirbúningsfélags fyrir ferðaþjónustuverkefni í Langjökli. Þau taka hins vegar vel í hugmyndirnar og hafa veitt leyfi til rannsókna á jöklinum. 16.10.2010 04:00
Leigja til margra ára í senn „Við töldum þetta vera næsta skref, að fólk myndi leigja til langs tíma. Við ákváðum því að koma til móts við markaðinn og bjóða leigusamninga, lengri uppsagnarfrest og aukið öryggi,“ segir Teitur Jónasson, framkvæmdastjóri Meira-leiguhúsnæðis. Félagið er í eigu bandaríska fjárfestisins Michaels 16.10.2010 04:00
Fjárheimildir hafa lækkað átta ár í röð Fjárheimildir til Landspítala hafa lækkað í átta ár eða frá árinu 2002. Á sama tíma hafa þær hins vegar vaxið á öðrum heilbrigðisstofnunum. Þetta kemur fram í tölum frá tölum frá Hagstofunni sem Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, fjallaði um í dag. 15.10.2010 18:45
Samiðn: Hægt gengur að ná lausnum fyrir hina skuldsettu Samiðn varar eindregið við hugmyndum um almennar niðurfærslur skulda sem fela það í sér að lífeyrisþegar þurfa að bera stærstan hluta kostnaðarins. Þetta kemur fram í ályktun Kjaramálaráðstefnu Samiðnar sem var haldin á Grand hótel í dag. Bendir Samiðn á að flestir almennu sjóðirnir hafa neyðst til að skerða réttindi sjóðsfélaga á sama tíma og lög kveða á um að opinberu sjóðunum skuli bætt tapið. 15.10.2010 17:50
Vilja frelsa eitt þrælabarn fyrir hverja götu á Akureyri Þrælabörn á Indlandi verða í brennidepli á Landsmóti æskulýðsfélaga verður sett á Akureyri klukkan sex í dag af biskupi Íslands. Þar munu 650 unglingar og sjálfboðaliðar gefa vinnu sína til að styrkja hjálparstarfsverkefni á Indlandi. Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni segir að verkefnið felist í því að frelsa þrælabörn á Indlandi úr ánauð og koma þeim í skóla. Fjáröflunin fer fram með söfnun meðal almennings og sölu á handverki unglingana og styrkja frá góðum fyrirtækjum og einstaklingum. 15.10.2010 16:48
15 þúsund lestum af sumargotssíld úthlutað Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að úthluta 15.000 lesta afla í sumargotssíld fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að um upphafsúthlutun sé að ræða, ekki liggi fyrir ákvörðun um endanlega úthlutun heildarafla. 15.10.2010 16:43
Hnífamaður reyndi að ræna verslun Gerð var tilraun til vopnaðs ráns í verslun 10-11 í Hafnarfirði í gær. Að sögn lögreglu voru málavextir þeir að seinni partinn í gær gekk ungur maður vopnaður hnífi inn í verslun 10-11 við Melabraut í Hafnarfirði. Hann ógnaði starfsmanni með hnífnum og heimtaði af honum peninga. 15.10.2010 16:37
Morðkennsla fyrir Al Kaida á Vesturlöndum Í veftímariti Al Kaida hryðjuverkasamtakanna sem ritað er á ensku er meðal annars að finna leiðbeiningar fyrir „rétt þenkjandi“ múslima á Vesturlöndum um hvernig best sé að drepa þá samborgara sína sem ekki játa rétta trú. 15.10.2010 16:26
Íslendingar treysta ekki Alþingi Traust til ríkistjórnarinnar, bankakerfisins, Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS) og Alþingis minnkar verulega samkvæmt könnun MMR 15.10.2010 15:31
Segja mannréttindaráð brjóta á mannréttindum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar telja meirihluta ráðsins hafa farið gegn mannréttindastefnu borgarinnar með því að gera ekki athugasemdir við að Bjarni Jónsson, annar tveggja fulltrúa Samfylkingarinnar í ráðinu sem er einnig varafulltrúi Siðmenntar sæti síðasta fund. Á þeim fundi voru lögð fram drög að ályktum um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög og lífsskoðunarhópa. 15.10.2010 15:19
Harður árekstur í Grafarvoginum Bílslys varð á Vesturlandsveginum rétt fyrir klukkan þrjú í dag. 15.10.2010 14:59
Smokkafargan á Samveldisleikum Það var óvenjumikið brölt og vandræði í kringum Samveldisleikana þetta árið. Í Samveldisleikunum taka þátt fyrrverandi nýlendur og yfirráðasvæði Breska heimsveldisins sem fengu sjálfstæði hvert af öðru upp úr síðari heimsstyrjöldinni. 15.10.2010 14:50
Trúboð presta í leikskólum bannað Meirihluti fulltrúa í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar hefur lagt fram drög að ályktun um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir að fermingarfræðsla skuli fara fram utan skólatíma. Auk þess verða heimsóknir starfsmanna trúar- og lífsskoðunarfélaga á frístundaheimili, í leik- og grunnskóla óheimilar ef ályktunin verður samþykkt. 15.10.2010 14:47
Dæmdir fyrir kannabisræktun en fá að halda peningunum Tveir karlmenn á þrítugsaldrinum voru dæmdir í 20 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands dag fyrir stórfellda kannabisræktun. Aftur á móti féllst dómari ekki á að gera tæpar tólf milljónir króna, sem fundust við húsleit, upptæka, né rúmlega 7000 evrur sem fundust einnig í fórum mannanna. 15.10.2010 14:44
Fékk sér sundsprett í höfninni - hringt á slökkviliðið Lögregla og slökkvilið voru kölluð að höfninni í Reykjavík nú rétt fyrir klukkan tvö en tilkynnt hafði verið um mann í höfninni. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að um sundgarp var að ræða sem þreytti sjósund sér til heilsubótar en ekki mann í nauð.Maðurinn synti í land og spjallaði við lögregluna og því var útkallið afturkallað. 15.10.2010 14:00
Fyrrverandi dómsmálaráðherra vill verða ráðuneytisstjóri Alls hafa 87 umsóknir borist um embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis, sem verður til 1. janúar 2011 með sameiningu heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins. 15.10.2010 13:36