Metfjöldi var á Landsmóti æskulýðsfélaga 18. október 2010 03:00 Unglingar á Landsmóti æskulýðsfélaga söfnuðu fé til að leysa börn á Indlandi úr skuldaánauð. mynd/Árni Svanur Daníelsson
Landsmót æskulýðsfélaga fór fram á Akureyri um helgina og tóku rúmlega sjö hundruð ungmenni þátt í mótinu í ár. Þrælabörn á Indlandi voru í brennidepli á mótinu sem var hið fjölmennasta sem haldið hefur verið. Mótið var hið stærsta sem haldið hefur verið, en í fyrra tóku um fjögur hundruð ungmenni þátt í Landsmótinu. Að sögn Árna Svans Daníelssonar, verkefnisstjóra á Biskupsstofu, var mótið virkilega vel heppnað. Þrælabörn á Indlandi voru í brennidepli á Landsmótinu í ár og var heilmikið átak í gangi á laugardeginum þar sem safnað var fé til styrktar börnum sem hafa verið seld í skuldaánauð af foreldrum sínum. Unglingarnir söfnuðu fé með sölu ýmissa muna sem þeir höfðu útbúið og var lagt upp með að frelsa eitt barn fyrir hverja götu á Akureyri. Markaður var settur upp á Glerártorgi á laugardeginum og þar seldu ungmennin muni sína. „Það var mjög gaman að fylgjast með krökkunum um helgina. Við þurfum öll á einhverju að halda sem fyllir okkur von og þegar maður sér krakka sem þessa koma saman og vinna í þágu góðs málefnis þá fyllist maður slíkri von. Krakkarnir voru með slagorð sem hljóðaði svo: „Enginn getur gert allt, en allir geta gert eitthvað“. Við erum öll í þeirri stöðu að geta lagt eitthvað að mörkum,“ segir Árni Svanur. Söfnunin gekk vel og telur Árni Svanur að nóg hafi safnast til að leysa um hundrað börn úr ánauð. Söfnuninni er þó ekki lokið því krakkarnir hyggjast halda áfram að safna fé til styrktar þrælabörnunum á komandi vikum. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, setti mótið. Í opnunarávarpi þakkaði hann framtak unglinganna og sagði þá góðar fyrirmyndir. „Við horfum á að það er gróska í æskulýðsstarfinu og við sjáum svo víða vaxtarsprota og góða ávexti af því sem hefur verið unnið að á undanförnum og það er mikið, óumræðilegt þakkarefni,“ sagði í ræðu hans. Biskup kvað jafnframt mikið þakkarefni að unga fólkið skuli nú ætla að beita kröftunum sínum að því að hugleiða fátæktina í heiminum og leggja sitt af mörkum til þess að leysa börn úr ánauð. „Það er undursamlegt og ég vona og bið að það megi ganga og verða þeim til góðs og blessunar.“ sara@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira