Innlent

„Á meðal lætur Jóhanna reikna“

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
„Innan ríkisstjórnarinnar er augljós ágreiningur um leiðir," segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, í pistli á heimasíðu sinni. Hann segir ágreiningin innan VG þar sem Steingrímur J. og Ögmundur Jónasson séu á öndverðum meiði. „Þeir tala hvor gegn öðrum, á meðan Jóhanna lætur reikna. Innganga Ögmundar í ríkisstjórnina hefur gert hana óstarfhæfari en áður og er þá mikið sagt."

Björn rifjar upp að ríkisstjórnin hafi setið við völd síðan 1. febrúar 2009. Hann segir að þegar Jóhanna Sigurðardóttir settist í embætti forsætisráðherra hafi hún sagst ætla að láta hendur standa fram úr ermum.

„Það yrðu þáttaskil frá aðgerðaleysi til athafna. Forgangsraðað í þágu heimilanna, slegin yrði skjaldborg um heimilin. Nú er 16. október, 2010, og Jóhanna er að láta reikna fyrir sig," segir Björn í pistlinum sem hægt er að lesa hér.

http://www.bjorn.is/dagbok/




Fleiri fréttir

Sjá meira


×