Útvíkka forvarnarverkefni 17. október 2010 16:14
Strætó bs. og VÍS munu næstu sex vikur standa fyrir Öryggisdögum, átaki sem miðar að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Átakið er liður í forvarnarverkefni sem fyrirtækin hafa unnið saman að frá ársbyrjun 2008 og hefur leitt til fækkunar umferðaróhappa hjá Strætó, að því er fram kemur í tilkynningu. Með Öryggisdögum er verkefnið útvíkkað þannig að allir þátttakendur í umferðinni eru hvattir til að sýna aðgát, tillitssemi og ábyrga hegðun á götum úti. Forvarnarstarf fyrirtækjanna efur m.a. falist í atvikaskráningu, áhættugreiningu, eftirfylgni og þjálfun starfsfólks og hefur það leitt til árlegrar fækkun tjóna síðustu ár. Árið 2006 voru tjónin 304, árið 2007 voru þau 297, árið 2008 fóru þau niður í 268 og á síðasta ári var tjónafjöldi orðinn 197. Það sem af er ári virðist sem enn meiri fækkun tjóna náist í ár. Gera mistök eins og aðrir „Markmið Öryggisdaganna eru í sjálfu sér einföld - við hjá Strætó bs. ætlum að vera öðrum fyrirmynd í umferðinni svo við getum öll komist heil heim," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. „Í umferðinni eru vagnstjórar, sem og aðrir atvinnubílstjórar, oft sagðir fara ógætilega, sýna tillitsleysi og fylgja ekki lögum og reglum. Oftast er þetta ómaklegt, en á því miður stundum við rök að styðjast. Við erum mannleg og gerum okkar mistök eins og aðrir." Eilífðarverkefni Gísli Nils Einarsson, forvarnarfulltrúi hjá VÍS, segir árangur Strætó bs. í forvörnum og fækkun slysa síðustu ár aðdáunarverðan. „Ég hvet alla til að taka skilaboðin sem felast í Öryggisdögunum til sín, fylgja fordæmi strætisvagnabílstjóranna og leggja sitt af mörkum til að gera umferðina sem öruggasta. En ég minni líka á að við erum ekki bara að tala um næstu sex vikur, heldur er þetta eilífðarverkefni - sem þarf engu að síður að hefjast strax í dag, segir Gísli.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira