Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ungmennum bannað að tjalda á Írskum dögum - aftur Bæjarráð Akraness hefur nú ákveðið að fara að tilmælum stjórnar Akranesstofu að ungmennum á aldrinum 18-23 ára verður ekki heimilaður aðgangur á tjaldsvæði bæjarins, nema þá sem fjölskyldumeðlimum, foreldrum með börnum eða börnum með foreldrum, þegar bæjarhátíðin Írskir dagar fara fram. Þetta ákvæði var einnig sett árið fyrir tveimur árum eftir mikil slagsmál og drykkju ungmenna árið áður, eða 2007. 22.6.2010 10:57
Ekið á níu kindur í síðustu viku Ekið var á níu ær og lömb á þjóðvegum Vestfjarða í síðustu viku og drápust þau öll. Þar af urðu tvö lömb fyrir bifhjóli, og munaði minnstu að ökumaður þess slasaðist. 22.6.2010 10:55
Dæmdir fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum á Keflavíkurflugvelli 16. og 17. júní síðastliðinn. 22.6.2010 10:51
Þúsund manns saknað í Brasilíu Eittþúsund er saknað og hundrað þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín í Norð-austurhluta Brasilíu síðustu daga í kjölfar gríðarlegra flóða. Vitað er um 38 dauðsföll vegna flóðanna en sjónarvottar segja að heilu þorpin á svæðinu séu horfin. Flkisstjórinn í Alagoas sagði í morgun að líkum væri enn að skola upp á land en hann sagðist biðja til guðs að hinir týndu muni finnast á lífi. 22.6.2010 10:33
Leikstjóri dæmdur fyrir að skalla mann Leikstjórinn og tónlistarmaðurinn Ágúst Bent Sigbertsson var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás árið 2008 í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 22.6.2010 10:14
Neytendasamtökin: Samningar eiga að standa Neytendasamtökin telja að gengistryggðir samningar, sem voru dæmdir ólöglegir í Hæstarétti á dögunum, eigi að standa óbreyttir, það eigi einnig við ákvæði um vaxtakjör að mati samtakanna. 22.6.2010 09:50
Grunar að brennuvargur gangi laus á Suðurnesjunum Grunur leikur á að brennuvargur, eða vargar, leiki lausum hala á Suðurnesjum,en að sögn lögreglu liggur engin sérstakur undir grun. 22.6.2010 07:52
Rændu Bengal tígur og tveimur kameldýrum Forráðamenn dýragarðs í Nova Scotia í Kanada hafa miklar áhyggjur af afdrifum Bengal tígurs og tveggja kameldýra sem stolið var þegar flytja átti dýrin frá Montreal til Nova Scotia. 22.6.2010 07:39
Ökumaður torfæruhjóls fluttur á slysadeild eftir árekstur Ökumaður torfæruhjóls slasaðist og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans, þegar hann ók inn í hlið bíls, sem ekið var eftir Víkurbraut, á móts við Festi í Grindavík, um níuleitið í gærkvöldi. 22.6.2010 07:36
Dönsk skólastúlka fékk milljónir vegna mistaka Vegna mistaka í bókhaldinu hjá bæjarfélaginu Frederikssund í Danmörku fékk 17 ára gömul skólastúlka 175 þúsund danskar krónur eða 3,6 milljón krónur inn á bankareikning sinn síðasta haust í stað venjulegs skólastyrks sem hún var á hjá bæjarfélaginu. 22.6.2010 07:32
Skaftá flæddi yfir veg við bæinn Skaftárdal Skaftá flæddi í gærkvöldi yfir veginn heim að bænum Skaftárdal, en hlaupið hefur ekki aukist í nótt. 22.6.2010 07:29
Peningastraumur frá Bandaríkjaher til Talibana Ný rannsókn leiðir í ljós að peningar streyma frá bandaríska hernum í Afganistan til Talibana í landinu. 22.6.2010 07:27
Ölvaðir ökumenn ollu tjóni í Reykjavík Tveir ölvaðir ökumenn ollu tjóni með þvi að aka utan í bíla í Reykjavík í nótt. Annar þeirra stakk af frá vettvangi, en var handtekinn skömmu síðar. 22.6.2010 07:25
Danskir hermenn hvattir til að skila heiðursmerkjum sínum Mikil reiði ríkir nú meðal fyrrum hermanna í danska hernum í garð Gitte Lillelund Bech varnarmálaráðherra Danmerkur. 22.6.2010 07:23
Vélarvana fiskibátur dreginn til hafnar Lítill fiskibátur varð vélarvana í nótt og var dreginn til hafnar á Austfjörðum. Veður var gott og ekki var talin hætta á ferðum. 22.6.2010 07:21
Stofnandi Wikileaks kominn fram eftir mánuð í felum Julian Assange stofnandi Wikileaks er kominn fram í sviðsljósið eftir að hafa verið mánuð í felum. 22.6.2010 07:16
Pétri Blöndal er skapi næst að hætta á þingi Pétur Blöndal þingmaður segir að sér sé skapi næst að hætta á Alþingi. Starfið sé mannskemmandi og illa borgað. Svo sé honum stillt upp „eins og glæpamanni" vegna styrkjamála. 22.6.2010 06:15
Sjö hvolpar til fíkniefnaleitar Lögregluyfirvöld og tollgæsla hafa nú stigið fyrsta skrefið í ræktun eigin fíkniefnaleitarhunda hér á landi. Til þessa hafa hundar úr viðurkenndum ræktunum verið fluttir frá útlöndum með verulegum tilkostnaði. Þeir hafa verið þjálfaðir hér á landi. 22.6.2010 06:00
Opnum fundum frestað og reynt að semja Anthony Liverpool, varaformaður Alþjóðahvalveiðiráðsins, frestaði opnum fundum á ársfundi ráðsins í tvo daga, nokkrum mínútum eftir að fundurinn var settur í Marokkó í gær. Þess í stað funduðu aðildarríkin í lokuðum rýmum til að reyna að ná samkomulagi. 22.6.2010 05:45
Gróður byrgði ökumanni sýn Gróður byrgði ökumanni sýn á Selfossi með þeim afleiðingum að hann ók á barn á hjóli. Barnið slasaðist ekki við áreksturinn en það sá að líkindum ekki bílinn koma aðvífandi. 22.6.2010 05:30
Bíður tillagna frá ríkissaksóknara „Ákveðið var með lögum að fresta stofnun embættis héraðssaksóknara til 2012, þar sem ekki voru til fjármunir,“ útskýrir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra spurð um stöðuna á stofnun embættis héraðssaksóknara. 22.6.2010 05:30
Hvalur skorinn í danskri höfn Í bænum Vejle á Jótlandi hafa íbúar fylgst grannt með dauðastríði hvals nokkurs, sem strandaði í firðinum fyrir utan. Í fimm daga var reynt með öllum ráðum að koma hvalnum aftur út á haf, en þegar það mistókst var hann dreginn á land og skorinn. 22.6.2010 05:30
Deilur tefja fyrir styttingu hringvegarins Tillögur Vegagerðarinnar um styttingu hringvegarins á tveimur stöðum á Norðurlandi hafa strandað á viðkomandi sveitarstjórnum. Um er að ræða annars vegar styttingu um sex kílómetra í Skagafirði og hins vegar fjórtán kílómetra styttingu nálægt Blönduósi, hina svokölluðu Húnavallaleið. 22.6.2010 05:15
Fréttaskýring: Verður hægt að stöðva olíulekann í Mexíkóflóa? Kostnaður breska olíufélagsins BP vegna olíulekans í Mexíkóflóa er kominn upp í tvo milljarða Bandaríkjadala. Sú fjárhæð samsvarar nærri 260 milljörðum króna. Ljóst þykir að fjárútlátin eigi eftir að aukast, því engan veginn er séð fyrir endann á þessu máli. 22.6.2010 05:15
Framkvæmdir hefjist í haust Landsvirkjun auglýsti um liðna helgi útboð á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) á þremur stærstu verkþáttum framkvæmda vegna Búðarhálsvirkjunar. Gangi áætlun eftir er áformað að framkvæmdum við Búðarhálsvirkjun verði lokið haustið 2013. 22.6.2010 05:00
Ákærendur óttast óvissu og tímaskort „Vilji menn setja tugi milljóna króna í nýtt embætti héraðssaksóknara þá þarf að fara að undirbúa það af krafti. En ég er þeirrar skoðunar að þetta verði aldrei.“ Þetta segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari. 22.6.2010 05:00
Ætlað að keppa við iPad-tölvur Japanska tæknifyrirtækið Toshiba kynnti spjaldtölvu í gær, sem talið er að gæti hæglega keppt við iPad-tölvuna frá Apple. Tölvan, sem nefnist Libretto W100, kemur á markað í tilefni af 25 ára afmæli fyrirtækisins. Hún er með tveimur sjö tommu snertiskjáum og má nota annan þeirra sem lyklaborð. 22.6.2010 04:45
Fékk kaffihús að gjöf á afmælisdaginn „Þetta hefur verið draumur hjá mér í mörg ár,“ segir María Sigurðardóttir, afmælisbarn og kaffihúsaeigandi á Hvammstanga. Eiginmaður Maríu, Örn Gíslason, gaf henni kaffihúsið í afmælisgjöf þegar hún varð fimmtíu og tveggja ára og fékk það nafnið Hlaðan. Eins og nafnið gefur til kynna er kaffihúsið hýst í gamalli hlöðu en húsið var byggt árið 1928. 22.6.2010 04:30
Barinn í höfuð með glerflösku Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 22.6.2010 04:00
Stal dyrabjöllu og frosnu kjöti Síbrotamaður hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir mörg þjófnaðarbrot. Hann stal meðal annars á annað hundrað kílóum af frosnu kjöti úr gámi á Höfn á síðasta ári. 22.6.2010 04:00
Icesave hamlar aðild að ESB David Cameron, forsætisráðherra Breta, segist munu nota aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu í samningaviðræðum vegna Icesave. Hann segir að Bretland ætti að vera góðvinur Íslands og styðja umsókn þess að sambandinu, en Íslendingar skuldi Bretum 2,3 milljarða punda. 22.6.2010 04:00
32 milljónir sendar til Haítí Hjálparstarf kirkjunnar hefur safnað 19,5 milljónum króna til hjálpar- og uppbyggingarstarfs á Haítí. Að auki hefur utanríkisráðuneytið lagt fram þrettán milljónir króna. 22.6.2010 03:30
Ekkert samráð verið haft um skattamál Starfshópur fjármálaráðherra um breytingar á skattkerfinu hefur ekki enn hitt samráðshóp hagsmunaaðila um málið, þrátt fyrir að hafa verið starfandi í tvo mánuði. Hópurinn á að skila áfangaskýrslu eftir rúmar þrjár vikur, 15. júlí. 22.6.2010 00:01
Vatnsleki í Bókasafni Hafnarfjarðar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu fyrir klukkan níu í kvöld að Bókasafni Hafnarfjarðar við Strandgötu vegna vatnsleika. Þar flæddi heitt vatn um kjallara hússins og fór dælubíll á vettvang. 21.6.2010 21:36
Fingurbraut barnsmóður sína Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á barnsmóður sína í júlí 2008. Maðurinn réðst á konuna, reif í hár hennar og veitt henni nokkur hnefahögg í höfuð, handleggi og hendur með þeim afleiðingum að hún hlaut mar í andliti, mar á vinstri upphandlegg og brot á litla fingri hægrihandar. Manninum er gert að greiða barnsmóður sinni 250 þúsund krónur með vöxtum í miskabætur. 21.6.2010 20:17
Aðstoðuðu vélarvana bát Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði var kölluð til aðstoðar vélarvana bát rúmlega 20 sjómílur út af Skrúð og var Hafdís, nýfenginn björgunarbátur sveitarinnar, sendur í sitt þriðja útkall sem tókst vel, að því er fram kemur í tilkynningu. Þrjá tíma tók að toga bátinn að landi. 21.6.2010 19:51
Segir Kaupþing hafa veitt ólögmæt lán Forveri Arion banka, Kaupþing, veitti ólögmætt gengistryggt húsnæðislán, segir hæstaréttarlögmaður og véfengir þar með yfirlýsingu Arion banka um að lánasamningar hans séu löglegir. 21.6.2010 19:22
Bíða eftir viðbrögðum Uppgjör gengistryggðra lána veltur á viðbrögðum fjármálafyrirtækja, segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar alþingis - og vill svör frá þeim fyrir fimmtudag. Samtök fjármálafyrirtækja kalla hins vegar á að ríkisstjórnin beini samræmdum tilmælum til bílalánafyrirtækja og banka um hvernig eigi að bregðast við gengislánadómum hæstaréttar. 21.6.2010 19:07
Mikið verk óunnið Mikið verk er óunnið í jafnréttisbaráttu kvenna og konur eru í hlutfallslega fáum áhrifastöðum þrátt fyrir tækifæri í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta segir ráðskona Femínistafélagsins sem veitti í dag fjórum karlmönnum hvatningarverðlaunin Bleika steininn. 21.6.2010 18:51
Mál Baldurs og Exeter meðal þeirra sem lengst eru komin Enn hafa engar ákærur verið birtar í rannsóknum á vegum sérstaks saksóknara og embættið hefur ekki lokið neinum rannsóknum með tilkynningum til sakborninga. Einn sakborningur segir óþolandi að hafa málið hangandi yfir sér og geta ekki skipulagt framtíðina. 21.6.2010 18:45
Þriðja endurskoðun líklega afgreidd hjá AGS fyrir sumarlok Ekkert bendir til annars en að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni endurskoða efnahagsáætlun fyrir Ísland í þriðja sinn áður en sumarið er úti, en sendinefnd á vegum sjóðsins er nú hér á landi og á í viðræðum við íslensk stjórnvöld. 21.6.2010 18:30
Kyrrsetning eigna felld úr gildi Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms sem felldi úr gildi ákvörðun sýslumanns um kyrrsetningu eigna Skarphéðins Bergs Steinarssonar þar sem lagalegar heimildir skorti. 21.6.2010 17:56
Ræddu um samvinnu í fiskveiðimálum og viðskiptum Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með með Vladimir Titov, varautanríkisráðherra Rússlands. Á fundinum ræddu þeir málefni norðurslóða og samskipti landanna, m.a. samvinnu í fiskveiðimálum, viðskiptum, orkumálum og menningarmálum. Þá fundaði Titov ennfremur með ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins og öðrum embættismönnum. 21.6.2010 17:51
Hlaut þyngri dóm fyrir að berja Guðmund í Byrginu Hæstiréttur hefur dæmt Ragnar Hauksson í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrgisins, eignaspjöll á bifreið Guðmundar, húsbrot og hótanir. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki klæmst við 17 ára stúlku. 21.6.2010 17:25
Sýknaður af sérstaklega hættulegri líkamsárás Maður fæddur 1989, sem dæmdur var í níu mánaða fangelsi í héraðsdómi og til greiðslu hálfrar milljónar í skaðabætur fyrir að slá annan mann með glasi var í dag sýknaður í Hæstarétti. Tveimur dómurum af þremur fannst ekki sannað að ákærði hafi framið það afbrot sem hann er ákærður fyrir og var hann því sýknaður. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði þar sem hann segir að þótt ýmsa annmarka megi finna á rannsókn lögreglu á málinu leiði það ekki til ómerkingar héraðsdóms og vildi hann því staðfesta dóm héraðsdóms. 21.6.2010 17:13