Innlent

Barinn í höfuð með glerflösku

Mynd/Pjetur

Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.

Manninum er gefið að sök að hafa slegið annan mann í höfuðið með glerflösku. Flaskan brotnaði með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut mörg opin sár á höfði og áverka á hægra innra eyra sem leiddu til varanlegs heyrnartaps.

Maðurinn sem sleginn var gerir kröfu um greiðslu miska- og skaðabóta að upphæð ríflega 1,7 milljónir króna.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×