Þriðja endurskoðun líklega afgreidd hjá AGS fyrir sumarlok Þorbjörn Þórðarson. skrifar 21. júní 2010 18:30
Ekkert bendir til annars en að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni endurskoða efnahagsáætlun fyrir Ísland í þriðja sinn áður en sumarið er úti, en sendinefnd á vegum sjóðsins er nú hér á landi og á í viðræðum við íslensk stjórnvöld. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður hér á landi til 28. júní næstkomandi en nefndin er nú að skoða hvort íslenska ríkið hafi staðið við skuldbindingar sínar gagnvart sjóðnum og því sem lofað var með síðustu viljayfirlýsingu. Meðal annars er verið að kanna hvort ýmsar aðgerðir er snúa að fjárlagahallanum séu á áætlun, eða með öðrum orðum, hvort ríkið sé ekki örugglega að spara peninga og skera niður kostnað. Fram kom í síðustu skýrslu starfsliðs sjóðsins að hann reikni með því að hagvöxtur milli fjársfjórðunga hefjist á Íslandi á þessu ári. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ekkert komið fram í þessum viðræðum um að Íslendingar hafi ekki staðið við sinn hluta samkomulagsins og því séu talsverðar líkur á því að lán númer þrjú verði afgreitt, en það verður þó ekki fyrr en síðsumars eða snemma í haust. Þegar endurskoðuð efnahagsáætlun fyrir Íslands var samþykkt af stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í apríl síðastliðnum og lán númer tvö var afgreitt kom fram í viljayfirlýsingu íslenska ríkisins og sjóðsins að Ísland hefði nú þegar skuldbundið sig til þess að endurgreiðsla breska og hollenska ríkinu Icesave-fjárhæðina með sanngjörnum skilmálum, að því gefnu að samkomulag milli ríkjanna myndi nást. Samkvæmt heimildum fréttastofu leggur AGS áherslu á að ljúka málinu, en það að málið sé óleyst stendur þó ekki endurskoðaðri efnahagsáætlun fyrir þrifum. Það mun þó skýrast síðar í sumar hvort sjóðurinn muni gera lausn málsins að skilyrði fyrir frekari lánveitingum til íslenska ríkisins. Engar formlegar viðræður eru komnar á dagskrá í Icesave-málinu en óformleg samskipti hafa átt sér stað við bresk og hollensk stjórnvöld í hverri viku að undanförnu.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira