Ákærendur óttast óvissu og tímaskort 22. júní 2010 05:00 Valtýr Sigurðsson segir það skjóta skökku við ef byggt er upp opinbert embætti nú þegar verið er að fækka stofnunum. „
Vilji menn setja tugi milljóna króna í nýtt embætti héraðssaksóknara þá þarf að fara að undirbúa það af krafti. En ég er þeirrar skoðunar að þetta verði aldrei.“ Þetta segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari. Fyrr í mánuðinum efndu Ákærendafélagið og ríkissaksóknari til fundar þar sem þetta nýja embætti var til umræðu. Í ályktun sem fundurinn samþykkti samhljóða segir að í lögum frá 2008 um meðferð sakamála sé gert ráð fyrir að ákæruvaldið skiptist í þrjú stjórnsýslustig í stað tveggja áður. Um verður að ræða ákæruvald lögreglu, héraðssaksóknara og ríkissaksóknara. Ákvörðun um stofnun embættis héraðssaksóknara var frestað tímabundið, fyrst til janúar 2010 og síðan til janúar 2012. „Fundur ákærenda og ríkissaksóknara skorar á dóms- og mannréttindaráðherra að hefja þegar undirbúning að stofnun embættisins ef til stendur að koma því á laggirnar,“ segir í ályktuninni. „Að öðrum kosti verði fallið frá þessu fyrirkomulagi og lögum breytt til samræmis við það.“ Fundurinn bendir á að erfitt sé að byggja upp ákæruvaldið í landinu meðan óvissa ríki um þetta mál, en fjölmörg atriði tengist breytingunni. „Eigi embætti héraðssaksóknara að taka til starfa 1. janúar 2012 þarf að hefjast handa án tafar með undirbúning þess, svo sem með því að skilgreina starfsmannafjölda, útvega húsnæði og tryggja nægilegt fjármagn. Fundurinn bendir á að frekari frestun á stofnun embættisins sé ekki forsvaranleg.“ Ríkissaksóknari segir marga hluti hanga á spýtunni varðandi uppbyggingu ákæruvaldsins. „Það gengur ekki að fresta þessu reglulega,“ segir hann. „Skatta- og efnahagsbrotadeild á samkvæmt lögunum að vera deild í embætti héraðssaksóknara. Þá er verið að breyta lögreglulögum í þá veru að frá 1. janúar 2012 verði umdæmin sex í stað fimmtán. Ég hef bent á að það þurfi ekki sérstakt héraðssaksóknaraembætti til að hafa umsjón með sex lögreglustjóraembættum, heldur ætti að efla ákæruvald lögreglunnar.“ Ríkissaksóknari segir það sitt mat að það skjóti skökku við ef eigi að byggja upp opinbert embætti þar sem verið sé að fækka stofnunum og sameina þær um allar trissur á sama tíma. jss@frettabladid.is
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Erlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira