Fleiri fréttir

Bjarni sigraði í formannskjöri

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur verið endurkjörinn í embættið á landsfundi flokksins sem nú stendur yfir. Bjarni hlaut 573 atkvæði í kjörinu en Pétur Blöndal alþingismaður sem bauð sig fram á móti Bjarna fékk 281 atkvæði. Alls greiddu 925 atkvæði í kjörinu en auðir seðlar voru 50.

Jóhanna: Við þurfum að breikka faðminn

Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi flokksins að fjögur höfuðmál muni skipta miklu máli um þróun málefnagrundvallar flokkakerfisins á næstu árum og heildarhagsmuni þjóðarinnar. Innganga í Evrópusambandið, að festa auðlindir í stjórnarskrá sem sameign þjóðarinnar, nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi og ný stjórnarskrá eru mál af þessu tagi að mati Jóhönnu og segir hún að flokkurinn eigi að taka forystu í þeim efnum. Öll þessi mál vill Jóhanna leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslum. Að sögn Jóhönnu þarf flokkurinn einnig að breikka faðminn og bjóða fleiri velkomna í flokkinn.

Blöðruturn á Austurvelli

Listahópurinn MOMS mun fljúga blöðruturni á Austurvelli í dag milli klukkan tvö og sex. Blöðruturninn er verk sem MOMS framkvæmdi í fysta sinn á síðasta Feneyjartvíæringi en nú á að endurtaka leikinn í rokinu á Íslandi. „Við höfum starfað saman í nokkur ár og sýnt víða innanlands sem erlndis auk þess að fást við margt annað s.s. tísku, hönnun og músík,“ segja forsvarsmenn MOMS.

Davíð mættur

Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, er mættur á landsfund flokksins í Laugardalshöll. Hann vildi ekki veita fréttastofu viðtal þegar þess var farið á leit við hann og svaraði í engu hvort hann hyggðist taka til máls á fundinum.

Götusmiðjan: Vill að félagsmálaráðuneytið komi að málinu

Guðmundur Týr Þórarinsson forstöðumaður Götusmiðjunnar sem lokað var í gær af Barnaverndarstofu, krefst þess að félagsmálaráðuneytið komi að lausn ágreiningsins sem uppi er á milli Guðmundar og Barnaverndarstofu. Hann fullyrðir að Bragi Guðbrandsson forstöðumaður Barnaverndarstofu hafi boðist til að kaupa Götusmiðjuna af Guðmundi. Síðar hafi hann hætt við kaupin.

Þriðja konan vill í embætti varaformanns

Steinunn Ruth Stefnisdóttir tilkynnti um framboð sitt til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins nú fyrir stundu. Steinunn er þar með þriðji frambjóðandinn í embætti varaformanns en áður höfðu þær Ólöf Nordal þingmaður og Lára Óskarsdóttir kennari lýst yfir framboði.

Krafðist afsagnar Guðlaugs og Gísla

Séra Halldór Gunnarsson kom í pontu nú fyrir stundu á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins og flutti tillögu sem fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu samþykkti á fundi á dögunum.

Afrísk stemning á Vitatorgi

Félagasamtökin Veraldarvinir standa í dag fyrir afrískri hátíð í samstarfi við Reykjavíkurborg. Hátíðin fer fram á Vitatorgi við Hverfisgötu og hefjast leikar í hádeginu og standa fram á kvöld.

Gnarr gróðursetur tré í Heiðmörk á fjölskylduhátíð

Fjölskylduhátíðin í Heiðmörk verður á Vígsluflöt í dag og nær þar með afmælisvika Heiðmerkur hápunkti. Jón Gnarr brogarstjóri mætir með fríðu föruneyti, ávarpar samkomuna og gróðursetur tré, eins og forveri hans Gunnar Thoroddsen gerði fyrir 60 árum. Borgarstjóri mun einnig taka þátt í að vígja lengstu þrautabraut landsins í skógi á Vígsluflötinni.

Ók á lögreglubíl í Vestmannaeyjum

Ungur piltur ók á lögreglubíl í Vestmannaeyjum í nótt þegar lögregla reyndi að stöðva för hans. Bíll ökumannsins er nokkuð skemmdur að sögn lögreglu en lögreglubíllinn skemmdist minna. Pilturinn er yngri en sautján ára og því ekki kominn með ökuréttindi. Til að bæta gráu ofan á svart reyndist hann síðan undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Af landsfundi: Ríkisstjórnin eins og Rómverjar

Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins flutti skýrslu sína á landsfundi flokksins rétt í þessu. Hann segir Alþingiskosningarnar í apríl hafa verið þær erfiðustu í sögu flokksins og mikið verk væri fyrir höndum að endurvinna traust kjósenda. Jónmundur segir Sjálfstæðisflokknum einum hafa verið kennt um efnahagshrunið og styrkjamál hafi gert hlut flokksins enn verri, þrátt fyrir að flokkurinn hafi hafið endurgreiðslu styrkjanna en aðrir flokkar ekki.

Tveir alvarlega slasaðir eftir slys á Sæbraut

Tveir eru alvarlega slasaðir eftir alvarlegt umferðarslys á Sæbraut á móts við Olís Klöpp. Slysið varð um klukkan þrjú í nótt og voru fjórir í í bifreiðinni, tveir slösuðust alvarlega og er annar þeirra nýkominn úr aðgerð og hinn á leið í aðgerð á Landspítalanum að sögn vaktahandi læknis.

Pétur Blöndal í formanninn

Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins ætlar að bjóða sig fram til formanns í flokknum gegn sitjandi formanni Bjarna Benediktssyni og kynnir framboð sitt í upphafi annars dags landsfundar í dag í Laugardalshöll.

Evrópumálin verða erfið

Flokksráð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tekur í dag afstöðu til þess hvort samþykkja eigi ályktun um að Ísland dragi umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka. Ályktunin verður flokknum erfið og má eiginlega segja að hann geti hvorki hafnað henni né samþykkt.

Handrukkari stórslasaði mann með hnúajárni

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir handrukkun. Fórnarlambið, sem var stórslasað eftir líkamsárásina, neitaði að bera vitni fyrir dómi af ótta við það sem gæti hent stæði hann við fyrri frásögn sína í málinu. Handrukkarinn var engu síður dæmdur á grunni skýrslu sem fórnarlambið hafði gefið hjá lögreglu, vætti tveggja lögreglumanna sem komu á vettvang, svo og vettvangs- og læknisrannsókn og fleiri gagna.

Biður samkynhneigt fólk um fyrirgefningu

Biskup Íslands hvetur fólk til að horfa fram á veginn og taka höndum saman um stofnunina hjónabandið, í ljósi þess að Alþingi hefur nú breytt hjúskaparlögum og leyft hjónaband samkynhneigðra.

Fyrirmyndir finnast víða

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, er einn talsmanna átaksins Til fyrirmyndar. Stefán telur að fyrirmyndir megi finna alls staðar og mikilvægt sé fyrir Íslendinga, sem og aðrar þjóðir, að líta í kringum sig eftir því sem er vel gert í samfélaginu, sérstaklega á tímum sem þessum. Fólk eigi að vera óhrætt við að dást að öðrum og sækja sér fyrirmyndir til þeirra sem gera hlutina best, hverjir svo sem það eru.

Man ekki til að neinn hafi verið rekinn

„Ég minnist þess ekki að neinn hafi beinlínis verið rekinn úr Sjálfstæðisflokknum,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Hann segir það hafa komið mjög til tals þegar Gunnar Thoroddsen myndaði sína stjórn og eins þegar hann studdi Ásgeir Ásgeirsson, tengdaföður sinn, í forsetakjöri gegn frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins; Bjarna Jónssyni dómkirkjupresti árið 1952, það hafi hins vegar aldrei verið gert.

Mega veiða fleiri hvali

Frumbyggjar á Grænlandi hafa fengið heimild til að veiða fleiri hvali. Á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem hófst síðasta mánudag í Marokkó, var samþykkt tillaga frá Danmörku, fyrir Grænlands hönd, um árlegan kvóta upp á níu hnúfubaka, sem kemur til viðbótar við núverandi frumbyggjaveiðar þeirra.

Leyniskjöl opinberuð eftir 64 ár

Leynilegur samningur sem gerður var í upphafi kalda stríðsins um samstarf leyniþjónustu Bandaríkjanna og Bretlands var opinberaður í gær.

Hvernig er nýja hjónavígsluformið?

Þjóðkirkjan hefur lokið við drög að nýju hjónavígsluformi og sent til presta Þjóðkirkjunnar vítt um landið. Það tekur mið af nýjum hjúskaparlögum, sem leyfa hjónaband samkynhneigðra.

Starfsþjálfunartíminn styttur

Á árinu 2009 gerðist það í fyrsta sinn að lögregluliðin á landinu gátu ekki tekið við grunnnámsnemum í launaða starfsþjálfun. Ákveðið var að stytta starfsþjálfunartímann úr átta mánuðum í fjóra og skólinn greiddi dagvinnulaun nemenda þann tíma.

Kosningarnar gerðar upp

Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundar í dag í þriðja skipti á árinu. Meginefni fundarins eru úrslit sveitarstjórnarkosninganna og eru allir félagar í Samfylkingunni velkomnir til fundarins.

Dæmdar fjórtán milljónir í bætur

Karlmanni hafa verið dæmdar tæpar fjórtán milljónir króna í bætur eftir að hann slasaðist við vinnu sína er gólfborð í vinnupalli féll niður. Talið var að ástæðan hefði annars vegar verið galli í festingum á gólfborðinu, en hins vegar röng uppsetning á vinnupallinum.

Jafna útgjöldin frekar en tekjur

Starfshópur samgönguráðherra hefur lagt til að kerfi jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði breytt í tveimur áföngum. Núverandi tekjujöfnunarkerfi verði lagt niður og nýtt fyrirkomulag útgjaldajöfnunar.

Er óheimilt að vera í Sjálfstæðisflokknum

Tveimur félögum í Sjálfstæðisflokknum, þeim Guðmundi Skúla Halldórssyni og Ólafi Áka Ragnarssyni, er óheimilt að vera félagar í flokknum. Báðir hafa þeir gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn; Guðmundur var formaður Félags ungra sjálfstæðismanna í Borgarnesi og Ólafur bæjarstjóri í Ölfusi.

Stjórnvöld verða að stíga á sviðið

Fjármálafyrirtækin hafa að undanförnu velt upp ýmsum möguleikum um hvernig leysa eigi úr málum þeirra sem eru með myntlán. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin.

Vilja efla innlenda atvinnu

Stjórnvöld efna nú til hvatningarátaks til að efla innlenda atvinnustarfsemi, verslun og þjónustu. Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög þess, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands taka þátt í verkefninu.

Forstöðumaður Götusmiðjunnar vísar ásökunum um ofbeldi á bug

Forstöðumaður Götusmiðjunnar íhugar málaferli gegn Barnaverndarstofu sem lokaði heimilinu í kvöld og sendi átta ungmenni heim. Forstöðumaðurinn, Guðmundur Týr Þórarinsson gjarnan kallaður Mummi, segir börnin hafi verið fjarlægð með ólögmætum hætti úr meðferð Götusmiðjunnar. Hann vísar ásökunum líkamsmeiðingar á bug.

Götusmiðjunni lokað - átta ungmenni send heim

Meðferðarheimilinu Götusmiðjunni hefur verið lokað og voru allir skjólstæðingar heimilisins sendir heim í kvöld að kröfu barnaverndaryfirvalda. „Undirrótin er fyrst og fremst stjórnunarvandi á staðnum og þegar vandinn var farinn að bitna á meðferðinni og skaða börnin fannst okkur ekki annað hægt en að grípa til þessara aðgerða,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.

Árni Páll: Dapurleg skilaboð Bjarna til almennings

„Þetta eru dapurleg skilaboð til almennings og fyrirtækja í landinu sem þurfa fyrst og síðast á því að halda að fá fyrirheit um að losna við þann ömurlega óstöðugleika sem fylgir hinni íslensku krónu. Skuldavandi heimila og fyrirtækja er bein afleiðing krónunnar og þeirra ofurvaxta og óstöðugleika sem einkennt hafa hana alla tíð. Það er tímanna tákn að Sjálfstæðisflokkurinn treystir sér ekki til þess að mæta þörfum atvinnulífsins um nothæfan gjaldmiðil og eðlileg samskipti við önnur ríki,“ segir Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, um ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, á landsfundi flokksins í dag.

„Landsfundurinn er grín"

Þórlindur Kjartansson, fyrrverandi formaður SUS, gagnrýnir landsfund Sjálfstæðisflokksins harðlega og segir lítið rúm fyrir gagnrýnar umræður. Illa sé staðið að skipulagi fundarins.

Taka þarf ákvörðun um gjaldskrá Orkuveitunnar

Guðlaugur Sverrisson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir ljóst að eitt fyrsta verkefni nýrrar stjórnar fyrirtækisins verði að ákveða Orkuveitunni gjaldskrá til næstu ára. „Í mínum er það ekki spurning um hvort það verður gert, heldur hvenær. Við þurfum að átta okkur á því að orkuverð hér á landi er mjög lágt. Þrátt fyrir að gjaldskrár verði leiðréttar verður það áfram lágt," segir Guðlaugur í skýrslu sem hann lagði fyrir aðalfund Orkuveitunnar í dag en á fundinum tók ný stjórn við.

Evrópusamtökin: Bremsuyfirlýsing Bjarna

Evrópusamtökin kalla orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um Evrópumál á landsfundi flokksins bremsuyfirlýsingu. Í ræðu sinni sagði Bjarni að við núverandi aðstæður væri réttast að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka en ef umsókninni verði haldið til streitu beri að vinna að því að tryggja hagsmuni Íslands.

Bankarnir ekki að leggja lokahönd á samræmdar aðgerðir

„Fyrirtæki á fjármálamarkaði hafa eðlilega verið óróleg líkt og viðskiptavinir þeirra,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Vonast hafi verið að stjórnvöld myndu stíga inn í tómarúmið þar sem enn ríki óvissa um útreikning á gengistryggðum lánum eftir dóm Hæstaréttar í síðustu viku.

Norðmenn aðstoða sérstakan saksóknara

Hópur sérfræðinga frá norsku efnahagsbrotadeildinni Økokrim er nú staddur á Íslandi til að aðstoða embætti sérstaks saksóknara. Norðmennirnir eru hér á landi til þess að veita embættinu sérfræðiaðstoð og leggja grunn að frekara samstarfi embættanna tveggja.

Steingrímur á von á kraftmiklum fundi

Flokksráðsfundur Vinstri grænna hófst klukkan fimm í dag. Niðurstaða sveitastjórnarkosninganna verður meðal helstu mála sem rædd verða fundinum.

Ísland standi við lágmarkstryggingu

Forseti Eftirlitsstofnunar EFTA segir stofnunina ekki hafa neina skoðun á lánakjörum Breta og Hollendinga vegna Icesave samninganna við Íslendinga. Hins vegar telji stofnunin ótvírætt á Íslendingar eigi að greiða sem svarar til um 21 þúsund evrum á hvern Icesave reikning.

Kristján Þór leggur mannorð sitt að veði

„Hér er ekki verið að grafa neitt, ekki skjóta neinu á frest né komast hjá erfiðum umræðum,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á landsfundi flokksins í dag. Hann mun fara fyrir svokallaðri Framtíðarnefnd sem ætlað er það hlutverk að endurskoða og móta áherslur í skipulagi og starfi Sjálfstæðisflokksins.

Haraldur verður tímabundið í fullu starfi hjá OR

Ný stjórn tók við á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Á fundinum lagði Jón Gnarr, borgarstjóri, fram áherslur Reykjavíkurborgar í rekstrinum. Haraldur Flosi Tryggvason er nýr stjórnarformaður og auk hans skipa stjórnina þau Helga Jónsdóttir, Aðalsteinn Leifsson, Kjartan Magnússon, Sóley Tómasdóttir og Hrönn Ríkharðsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar er Björn Bjarki Þorsteinsson. Haraldur verður tímabundið í fullu starfi sem stjórnarformaður.

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærmorgun. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust nokkrir tugir kannabisplantna. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Bjarni Ben vill leggja aðildarumsókn til hliðar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að við núverandi aðstæður væri réttast að leggja aðild að Evrópusambandinu til hliðar. Þetta kom fram ræðu hans á setningu Landsfundar Sjálfstæðisflokksins klukkan fjögur í dag.

Pétur Blöndal íhugar formannsframboð

„Ég ætla ekki að svara já eða nei, ég er á móti já og nei spurningum," segir Pétur Blöndal alþingismaður aðspurður um hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á morgun. Landsfundur sjálfstæðismanna hófst núna klukkan fjögur og verður kosið um formann og varaformann á morgun.

Leggja til að tekjujöfnunarframlag verði lagt niður

Starfshópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggur til að regluverki sjóðsins verði breytt í tveimur áföngum. Fyrst verði tekið upp nýtt kerfi útgjaldajöfnunar og síðan gerð grundvallarbreyting á jöfnunarkerfinu.

Sjá næstu 50 fréttir