Fleiri fréttir

Jónmundur: Ólafur sagði sig sjálfur úr flokknum

„Það er alveg kýrskýrt að Ólafur [Áki Ragnarsson. innskt. blm.] er ekki rekinn úr flokknum. Hvorki af mér persónulega, né af miðstjórn flokksins,“ segir Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins en Ólafur Áki, sem áður gegndi embætti bæjarstjóra í Ölfusi, sagðist hafa verið vísað úr flokknum.

Sveitarstjórnarkosningar gerðar upp hjá VG

Niðurstaða sveitastjórnarkosninganna verður meðal helstu mála sem rædd á flokksráðsfundi Vinstri grænna. Einnig verður rætt um hvernig tryggja megi eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sínum.

Afar sjaldgæft að menn séu reknir úr stjórnmálaflokkum

„Ég man ekki eftir því að nokkur hafi verið rekinn úr Sjálfstæðisflokknum,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnarmálafræðingur, um brottrekstur Ólafs Áka Ragnarssonar, fyrrverandi bæjarstjóra Ölfus, úr Sjálfstæðisflokknum.

Unnu 23 milljónir í lottó - miðinn var í hanskahólfinu

Það voru heppin hjón frá Suðurnesjunum sem komu til Íslenskrar getspár með vinningsmiða frá síðustu helgi uppá rúmar 23 milljónir. Heimilisfaðir fjölskyldunnar hafði brugðið sér inn í Brautarnesti í Keflavík á þjóðhátíðardaginn sjálfan og kippt með sér einum 10 raða sjálfvalsmiða. Það var svo ekki fyrr en á mánudagskvöldið sem hjónin athuguðu miðann sinn eftir að þau heyrðu að lýst væri eftir vinningshafa sem hafði keypt miða í Brautarnesti.

Eldur í kexverksmiðjunni Fróni

Eldur kviknaði í vél í kex-verksmiðjunni Frón í Árbæ í morgun. Eldurinn er minniháttar og er ein deild frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á vettvangi.

Rekinn úr Sjálfstæðisflokknum degi fyrir landsfund

„Mér var vísað úr flokknum í gær,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Ölfuss, en hann var rekinn úr Sjálfstæðisflokknum í gær. Það var framkvæmdarstjóri flokksins, Jónmundur Guðmarsson, sem hringdi í hann í gær og tilkynnti honum að miðstjórn flokksins hefði ákveðið að vísa honum úr flokknum.

Barnaheill tengist ekki golfmóti Hermanns

Barnaheill - Save the Children á Íslandi segir að félagið standi ekki að fjársöfnun í tengslum við golfmót Hermanns Hreiðarssonar, Herminator, sem fer fram í Vestmannaeyjum á morgun. Í tilkynningu sem félagið hefur sent fjölmiðlum segir að um er að ræða misskilning þar sem styrktarsjóður fyrir börn í Vestmannaeyjum er kynntur undir nafninu Barnaheill í Vestmannaeyjum.

Femínistar reiðir vegna kvennakvölds Besta flokksins

"Það eru vond vinnubrögð og óvirðing að borgin skuli vera að troða sér inn í skipulagningu dags sem væri ekki til án vinnu grasrótarhreyfingu kvenna," segir Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri Grænna.

Makríll veiðist um allan sjó

Tvö fjölveiðiskip eru nú á landleið með makríl, sem þau veiddu á Reykjaneshrygg, þannig að hann er farinn að veiðast um allan sjó, eins og sjómenn orða það.

SUS vill draga ESB umsóknina til baka

Samband ungra Sjálfstæðismanna (SUS) skorar á stjórnvöld að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka sem fyrst.

Tveir lyfjaðir ökumenn teknir úr umferð

Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í nótt. Annar er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna, en inn um að hafa ekið undir áhrifum löglegra lyfja, en að hafa neytt þeirra ótæpilega.

Rífandi gangur í laxveiðinni

Laxveiðin fer víða mun betur af stað en undanfarin ár, en veiði er byrjuð í öllum helstu laxveiðiánum.

Málþófið á Alþingi heyri sögunni til

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, lagði fram lagafrumvarp á Alþingi í gær um þingsköp Alþingis. Frumvarpið á að bæta umræðuhefð þingmanna og koma í veg fyrir málþóf. Siv sækir fyrirmyndina til norska þingsins þar sem hún segir að málþóf sé hætt og umræðuhefðin mun betri.

Styttist óðum í stóru ferðahelgarnar

„Stærstu helgarnar hafa verið fyrsta helgin í júlí og verslunarmannahelgin en umferð í júní hefur verið að aukast. Álagstímabilið er því frá lokum júní til verslunarmannahelgar,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ragnheiður er hæf í nefndina

Formaður þingnefndar sem á að fjalla um og bregðast við skýrslu rannsóknarnefndar, segir að hugsanlegt vanhæfi nefndarmannsins Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokks, hafi verið yfirfarið af nefndinni.

Spara í umhverfis- og forvarnamálum

Stöður sérfræðings í umhverfismálum og verkefnisstjóra í íþrótta-, forvarna- og menningarmálum í Árborg verða lagðar niður, gangi hugmyndir meirihlutans eftir. Tillögur þess efnis verða lagðar fram á fundi bæjarráðs í dag. Þá verður staða starfsmannastjóra lögð niður, en enginn hefur gegnt henni í tvö ár.

Tólf létu lífið í lestarslysi

Að minnsta kosti tólf týndu lífi í alvarlegu lestarslysi í bænum Castelldefels suður af Barcelóna á Spáni í fyrrinótt. Nokkrir eru alvarlega slasaðir.

Hjálpar þúsundum heimila

Alþingi samþykkti í gær heimilispakkann svokallaða, fimm lagafrumvörp sem miða að því að aðstoða fjárhagslega verst stöddu heimilin í landinu. Félagsmálaráðherra telur lögin koma til með að styðja við þúsundir heimila. Allt að 22 þúsund heimili í landinu þurfi á umtalsverðum skuldbreytingum að halda og með nýju lögunum fækki umtalsvert í þeim hópi. Allt að fimm þúsund heimili munu nýta sér úrræðin, að mati varaformanns félags- og tryggingamálanefndar.

Ágreiningur fyrir fundinn

Nú um helgina ætla leiðtogar tuttugu auðugustu ríkja heims að hittast á fundi í Kanada til að ræða efnahagsvandann í heiminum.

Fréttaskýring: Tveir andstæðir pólar í gengislánamáli

Tvær fylkingar takast á um næstu skref eftir að Hæstiréttur úrskurðaði ólögmæti gengistryggðra bílalána fyrir viku. Annar hópurinn segir vaxtatöflu Seðlabankans eiga að taka við af gengistryggingunni. Hinn krefst þess að upphaflegir samningsvextir standi.

Börðu og spörkuðu í lögreglu

Ríkissaksóknari hefur ákært tvö ungmenni í tveimur aðskildum málum fyrir árásir á lögreglumenn við skyldustörf.

Umhverfisvæn húsbygging

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tók Snæfellsstofu á Skriðuklaustri í notkun í gær. Snæfellsstofa er ný gestastofa fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og í tilefni dagsins var einnig opnuð umhverfisfræðslusýningin Veraldarhjólið í stofunni.

Bæta samband milli ríkjanna

Bandaríkjamenn og Rússar ætla að styrkja efnahagsleg tengsl og auka samvinnu í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti að loknum fundi með Dmitry Medvedev Rússlandsforseta í gær.

Braut gegn fjórtán ára stúlku

Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 200 þúsund í miskabætur. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa tvívegis haft samræði við fjórtán ára stúlku.

Skemmdir á tuttugu bílum

Hvítar málningarslettur á Suðurlandsveginum, rétt hjá Litlu kaffistofunni, skemmdu hátt í tuttugu bíla í gær. Sumir bílanna urðu óökufærir. Málningin hafði hellst á veginn úr fötu við vegarkantinn og biðu ökumenn í meira en tvo tíma eftir aðstoð lögreglunnar.

„Ég hefði aldrei farið fram á að vera starfandi stjórnarformaður“

Guðlaugur G. Sverrisson, fráfarandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir að hann hefði aldrei farið fram á að vera starfandi stjórnarformaður fyrirtækisins. Slíkt stríði gegn góðum venjum út frá eftirlitshlutverki stjórnarmanna. „Stjórn og stjórnarformaður eru til að hafa eftirlit með rekstrinum og það má því aldrei blanda þessu saman.“

Fangi át lunga klefafélaga síns

Franskur fangi var í dag dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að myrða klefafélaga sinn og borða lunga hans. Fanginn sem heitir Nicolas Cocaign er 39 ára gamall. Hann játaði að hafa að myrt Thierry Baudry í fangaklefa sem þeir voru vistaðir í fyrir þremur árum. Cocaign afplánaði þá dóm fyrir vopnað rán og beið auk þess eftir niðurstöðum úr tveimur öðrum dómsmálum, þar á meðal í nauðgunarmáli.

Upplýsandi fundur í Stjórnarráðinu

„Það var verið að kynna okkur ákveðnar sviðsmyndir sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafa verið að setja upp í framhaldi á dómi Hæstaréttar. Þær voru misdökkar eftir því hvaða forsendur voru gefnar,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Breskir hermenn létust af slysförum í Afganistan

Fjórir breskir hermenn létust af slysförum í Afganistan í dag. Þeir voru í bifreið sem lenti utanvegar og hafnaði í skurði í Helmand héraði Hermennirnir drukknuð að því er fram kemur á fréttavef bresku Sky fréttastöðvarinnar. Talsmaður breska hersins í Afganistan segir að ekkert benda til þess að Talíbanar hafi ráðist á bifreiðina.

Fíkniefnakóngurinn Coke framseldur

Fíkniefnakóngurinn Christopher Dudus Coke hefur verið framseldur til Bandaríkjanna þar sem hann er eftirlýstur fyrir fíkniefna- og vopnasölu. Hann ákvað að áfrýja ekki framsalsbeiðni Bandaríkjamanna þegar hann kom fyrir dómara í höfuðborginni Kingston í dag. Coke á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.

Fischer grafinn upp á næstu dögum

Undirbúningur þess að grafa upp lík skákmeistarans Bobby Fischers er hafinn. Tjaldað verður yfir gröfina meðan hún verður opnuð og lífsýni sótt. Þetta er gert til sannreyna kröfur í faðernismáli gegn dánarbúi Fischers.

Einar K.: Flokkurinn er ekki að klofna

Sjálfstæðismenn hafa ástæðu til að óttast klofning flokksins verði tillaga um að Ísland dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka borin upp á landsfundi flokksins. Þetta segir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður flokksins segir ummæli sem þessi minna á hótanir.

Jón Gnarr: Starfandi stjórnarformaður verndar almannahagsmuni

Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir í minnihluta borgarstjórnar segja skjóta skökku við að Besti flokkurinn og Samfylkingin ráði stjórnarformann til Orkuveitunnar fyrir tæpa milljón á mánuði á sama tíma og niðurskurður er boðaður í borginni. En nýi meirihlutinn í borginni hefur ákveðið að ráða starfandi stjórnarformann til Orkuveitunnar.

Mikill munur á lánum

Gríðarlegur munur er á eftirstöðvum lána þeirra sem tóku gengistryggð lán annars vegar og hefðbundin verðtryggð lán hins vegar eftir að Hæstiréttur dæmdi gengistryggingu lána ólöglega. Eftirstöðvar tveggja milljóna verðtryggðs láns sem tekið var árið 2008 eru nú 1,3 milljónir, en 275 þúsund af láni sem áður bar gengistryggingu.

Gylfi: Óásættanlegt að hluti Íslendinga fái lán á vildarkjörum

Viðskiptaráðherra segir óásættanlegt að hluti Íslendinga fái lán á vildarkjörum á kostnað samborgara sinna, eftir að Hæstiréttur dæmdi gengistryggingar lána ólöglegar. Forsætisráðherra segir ekki standa til að þing eða ríkisstjórn hlutist til um niðurstöðuna fyrr en dómstólar hafi skorið úr um ágreiningsefni.

Gert kleift að endurskipuleggja fjármálin

Alþingi samþykkti í dag lög sem gera einstaklingum í verulegum greiðsluerfiðleikum kleift að endurskipuleggja fjármál sín með því að fara í greiðsluaðlögun í allt að þrjú ár. Þeir sem sitja uppi með tvær fasteignir geta sett aðra fasteignina upp í skuldir sem hvíla á þeim báðum. Komið verður á fót embætti Umboðsmanns skuldara.

Funda í Stjórnarráðinu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra sitja ná á fundi í Stjórnaráðinu með fulltrúum Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Fundurinn hefst klukkan sex. Fundarefnið er dómur Hæstaréttar sem dæmdi gengistryggingu lána ólöglega í síðustu viku.

Fundum Alþingis frestað

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, frestaði fundum Alþingis skömmu eftir klukkan 17 í dag. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði að sumarhléið verði óvenju stutt að þessu sinni en þingnefndir koma saman um miðjan ágúst en fyrsti þingfundurinn verður haldinn í byrjun september. Hún sagði að verkefni þingmannanefndar sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis verði sett í forgang í störfum þingsins í ágúst og september.

Borgin kannar kosti sameiningar

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að kannaðir verði kostir sameiningar Reykjavíkurborgar og Sveitarfélagsins Álftaness og lýsir sig tilbúið til viðræðna við bæjarstjórn Álftaness. Borgarstjóri segir sjálfsagt að kanna málið því hann vilji að allir séu glaðir.

Húsleit hjá kaþólsku kirkjunni í Belgíu

Belgíska lögreglan framkvæmdi í dag húsleit í höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunnar þar í landi en lögreglan rannsakar nú ásakanir sem komið hafa fram um kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar. Saksóknari í Brussel staðfesti að höll erkibiskupsins í borginni hafi verið innsigluð en auk þess var leitað á heimili fyrrverandi erkibiskups landsins.

Erfið mál bíða umboðsmanns skuldara

Alþingi samþykkti á fimmta tímanum í dag lög um embætti umboðsmanns skuldara en því er ætlað mun viðameira hlutverk en Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur haft með höndum. Þingflokksformaður VG segir erfið mál bíða hins nýja embættis.

Sjá næstu 50 fréttir