Pétur Blöndal íhugar formannsframboð Boði Logason skrifar 25. júní 2010 15:55 Pétur Blöndal ætlar að hafa það opið að lýsa yfir framboði til formanns Sjálfstæðisflokksins. „
Ég ætla ekki að svara já eða nei, ég er á móti já og nei spurningum," segir Pétur Blöndal alþingismaður aðspurður um hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á morgun. Landsfundur sjálfstæðismanna hófst núna klukkan fjögur og verður kosið um formann og varaformann á morgun. Hann segir að aðrir menn séu að íhuga að hann bjóði sig fram en sækist svo sem ekki mikið eftir því sjálfur. Aðspurður hvort að hann útiloki framboð segir Pétur: „Ég hef aldrei skorast undan ábyrgð þannig séð, það verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig. Það eru allir í framboði og ég er ekkert á móti lýðræði," segi Pétur. En ætlar Pétur að lýsa því yfir á morgun að hann sækist eftir því að verða næsti formaður flokksins? „Ég hugsa ekki. Ég á eftir að tala við einhverja á fundinum og svo framvegis, ég læt það alveg vera opið. Ég er hlynntur lýðræði og hef aldrei skorast undan ábyrgð þegar hún er sett á mínar herðar." Aðspurður hvort hann sé búinn að semja ræðu til að flytja á fundinum um hugsanlegt framboð sitt segir Pétur: „Nei, mín sjónarmið eru það þekkt að ég myndi bara segja þau. Ég er aldrei með skrifaðar ræður, það er allavega mjög langt síðan. Þetta er bara spurning hvernig þetta vinnst á landsfundinum og þarna hittir maður mikið af gömlum og góðum félögum." Aðspurður um hvort hann gæti hugsað sér að leiða flokkinn segir Pétur það velkoma til greina að hann segi frá sinni skoðun. „Ef mér yrði falið það í kosningu þá myndi ég axla þá ábyrgð að sjálfsögðu. Formannskjörið er á morgun, ef að mjög margir hafa samband við mig, fleiri en fimm eða tíu, þá gæti vel verið að ég segi frá minni skoðun." Hann segist aldrei hafa beðið neinn um að styðja sig en hafi boðið sig fram í prófkjörum. „Ég lít ekki á kosningu sem keppni." Þegar blaðamaður bar það undir hann hvort hann gæti ekki bara svarað því já eða nei hvort hann ætli að bjóða sig fram svaraði Pétur: „Ég ætla ekki að svara já eða nei, ég er á móti já og nei spurningum."
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Sjá meira