Pétur Blöndal í formanninn 26. júní 2010 08:54 Pétur Blöndal tilkynnti framboð í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins nú í morgun.
Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins ætlar að bjóða sig fram til formanns í flokknum gegn sitjandi formanni Bjarna Benediktssyni og kynnir framboð sitt í upphafi annars dags landsfundar í dag í Laugardalshöll. Pétur segir að hann vilji að fólk hafi kost á því að kjósa milli fólks til forystuembætta í flokknum. Hann vilji að lýðræðið fái að njóta sín og hann sé ekki að bjóða sig fram gegn einum né neinum. „Ég veit ekki hvort ég á möguleika á kjöri, ég er bara að bjóða mig fram," sagði Pétur í samtali við Vísi nú í morgun. Pétur segist aldrei áður hafa beðið fólk um að kjósa sig til embætta í flokknum. Hann segir að dálítil umræða hafi átt sér stað að undanförnu milli hans og fólks í flokknum um framboð hans. Vísir greindi frá því í gær að Pétur útilokaði ekki formannsframboð, en aðspurður hvort hann hyggðist bjóða sig fram svaraði Pétur því til að hann ætlaði ekki að svara já eða nei, hann væri á móti já eða nei spurningum. Pétur staðfesti framboð sitt því ekki fyrr en nú í morgun, rétt áður en framboðsræður hefjast, en þær byrja klukkan 9:15. Bjarni er ekki á mælendaskrá samkvæmt heimildum fréttastofu. Formannskosningin hefst klukkan 13:30 í dag, en að forminu til eru allir landsfundarfulltrúar í kjöri á fundinum. Alls eiga um 1.380 fulltrúar seturétt á fundinum, en það var nokkuð fámennt í salnum í Laugardalshöll þegar Pétur staðfesti framboð sitt Búast má við að fjölga taki í salnum og verða líklegast flestir viðstaddir fundinn um það leyti sem kosningin fer fram. Landsfundurinn sem nú fer fram er aukalandsfundur. Boðað var til hans fyrir um tveimur mánuðum til að kjósa nýjan varaformann eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér varaformennsku, en að óbreyttu hefði næsti landsfundur verið haldinn í september 2011. Í apríl síðastliðnum sagði Bjarni Benediktsson að það að flýta fundinum gæfi flokksmönnum tækifæri til að veita kjörnum forystumönnum flokksins endurnýjað umboð eða kjósa nýtt fólk til þeirra starfa. Þetta er annar landsfundurinn í röð þar sem tekist er á um formannssætið, en þar áður hafði ekki verið formannsslagur í flokknum í 18 ár. Þá bauð Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sig fram gegn Bjarna með skömmum fyrirvara, þó ekki jafnskömmum og Pétur, og beið lægri hlut með 40,4% atkvæða gegn 58%. Kjör varaformanns fer fram klukkan 15 síðdegis, en þar eru tvær konur í framboði; þær Ólöf Nordal, alþingismaður og Lára Óskarsdóttir, íslenskukennari.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira