Evrópumálin verða erfið 26. júní 2010 08:00 Katrín jakobsdóttir varaformaður VG ávarpaði flokksfélaga í gær. Hún segir góðan anda ríkja á fundinum. Mynd/Daníel Rúnarsson
Flokksráð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tekur í dag afstöðu til þess hvort samþykkja eigi ályktun um að Ísland dragi umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka. Ályktunin verður flokknum erfið og má eiginlega segja að hann geti hvorki hafnað henni né samþykkt. Heimildarmenn Fréttablaðsins segja að hafni flokkurinn ályktuninni muni þeir sem harðast eru á móti Evrópusambandinu líta á það sem stuðning við aðild. Verði ályktunin hins vegar samþykkt mun það fara illa í samstarfsflokkinn í ríkisstjórn; en í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um að Ísland skuli sækja um aðildina. Stjórnarsáttmálinn var samþykktur í flokksráði á sínum tíma. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins og formaður flokksráðsins, segir að góður andi ríki á fundinum. Vissulega séu skoðanir skiptar, en það sé eðlilegt þegar kemur að jafn umfangsmiklum málum. Kosið verður um ályktanirnar í dag. Þá er ljóst að breytingar á Stjórnarráðinu munu koma til umræðu, en skiptar skoðanir eru um þær innan flokksins. Heimildarmenn blaðsins telja ólíklegt að til mikilla átaka muni koma á fundinum; stemningin sé í þá veru að fólk muni frekar semja sig í gegnum deilurnar. Hins vegar þykir líklegt að á næsta fundi flokksráðsins, sem verður í haust, muni ýmis deilumál verða útkljáð. - kóp
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira