Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstæðismenn vilja Geir í prófkjör Geir Sveinsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, og tengdasonur borgarfulltrúans Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar gæti verið á leiðinni í prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningar á næsta ári. Annaðhvort fyrir Sjálfstæðisflokkinn eða jafnvel nýtt framboð eftir því sem heimildir fréttastofu herma. 9.12.2009 14:01
Hæstiréttur efast um hjónavígslu Fischers Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að ekki þurfi að taka dánarbú Bobby Fisher til opinberra skipta. Það voru systursynir Fischers sem lögðu kröfuna fram. 9.12.2009 13:58
Mikki Jackson á hestbaki Málverk af Michael Jackson á hestbaki í konunglegum skrúða hefur verið selt fyrir um tuttugu milljónir íslenskra króna. Jackson pantaði sjálfur málverkið, en lést áður en því var lokið. 9.12.2009 13:46
Flugfreyjur kjósa um verkfallsheimild Flugfreyjur í Flugfreyjufélagi Íslands ákváðu í gær að efna til kosningar um verkfallsheimild. Kjörfundur stendur yfir til morguns. Ef verkfallsheimild verður samþykkt er gert ráð fyrir að verkfallið hefjist 2. janúar næstkomandi. Að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, formanns Flugfreyjufélagsins, snýst kjaradeila flugfreyja um forgangsréttarákvæði í leiguflugi erlendis og starfsaldursákvæði. 9.12.2009 13:25
Breskar lestar-löggur fá rafbyssur Lögregluþjónar sem starfa við lestarkerfi þriggja stórborga í Bretlandi verða vopnaðir rafbyssum á þriggja mánaða reynslutímabili. Borgirnar eru Lundúnir, Manchester og Cardiff. 9.12.2009 13:15
Ákveðið að fjölga í Barnavernd Reykjavíkur Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag samhljóða tillögu um að fjölga stöðugildum hjá Barnavernd Reykjavíkur. Í tillögunni felst að fjölgað verði í Barnavernd um eitt stöðugildi lögfræðings og tvö stöðugildi félagsráðgjafa. Þorleifur Gunnlaugsson lagði tillöguna fram í borgarráði en henni var siðan vísað til Velferðarráðs og var samþykkt þar í dag. 9.12.2009 12:41
Bjarni: Langsótt tilraun til að koma höggi á mig Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að frétt DV um að hann hafi verið þátttakandi í misheppnuðum fjárfestingum Sjóvár í Makaó sé langsótt tilraun til að koma höggi á hann fyrir að stunda brask. 9.12.2009 12:24
Vonbrigði að Ögmundur og Lilja fylgi ekki meirihlutanum Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir það vera vonbrigði að Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir hafi greitt atkvæði gegn Icesave frumvarpi ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Stjórnarþingmenn þurfi stundum að taka óvinsælar ákvarðanir. 9.12.2009 12:10
Yfir 19 þúsund manns skora á þingmenn vegna SÁÁ Yfir 19000 manns hafa skrifað undir áskorun til þingmanna um að hafna ráðagerðum um skerðingu á framlögum til áfengis- og fíkniefnameðferðar á vegum SÁÁ. Þetta kemur fram á vef SÁÁ, en þar fer söfnunin fram. 9.12.2009 11:28
Ómar Valdimarsson til Eþíópíu á vegum Rauða krossins Ómar Valdimarsson sendifulltrúi Rauða kross Íslands hélt í gærkvöldi til Eþíópíu þar sem hann mun starfa að upplýsingamálum vegna mikilla þurrka sem geisað hafa í landinu og valdið miklum matvælaskorti. 9.12.2009 11:14
Lögreglumenn á æfingu á Keflavíkurflugvelli Lögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu taka nú þátt í reglubundinni æfingu á Keflavíkurflugvelli. Lögreglubílar á vegum embættisins hafa því verið áberandi á Reykjanesbrautinni í morgun af þessari ástæðu. 9.12.2009 10:59
Tyggjó sprengdi af neðri kjálkann Tuttugu og fimm ára gamall nemandi í efnafræði fannst látinn á heimili sínu í borginni Konotop í Úkraínu á sunnudag og var af honum neðri kjálkinn. 9.12.2009 10:52
Verðum að handtaka eða drepa bin Laden Stanley McCrystal yfirhershöfðingi Bandaríkjanna í Afganistan kom í gær fyrir þingnefnd til þess að gera grein fyrir gangi mála í landinu. 9.12.2009 10:29
Ohio notar eitt lyf við aftöku - fyrst ríkja Ohio varð í gær fyrsta ríki Bandaríkjanna til þess að taka dauðadæmdan mann af lífi með því að nota aðeins eitt lyf. 9.12.2009 08:45
Ítarlegar upplýsingar um öryggisleit óvart á vefinn Samgönguöryggisstofnun Bandaríkjanna birti fyrir hreina slysni á heimasíðu sinni leiðbeiningar um öryggisleit á farþegum. 9.12.2009 08:42
Hershöfðingi skotinn til bana í Honduras Einn helsti andstæðingur eiturlyfjabaróna í Honduras, hershöfðinginn Julian Gonzalez, sem jafnframt er forstöðumaður eftirlitsstofnunar gegn eiturlyfjasmygli í landinu, var skotinn til bana í bíl sínum þar sem hann var á ferð í Tegucigalpa, höfuðborg Honduras, í gær. 9.12.2009 08:39
Ísbirnir éta hver annan í hungursneyð Ísbirnir á Norðurpólnum og í nágrenni hans eru farnir að éta hver annan í þeirri hungursneyð sem þeir hafa mátt sæta eftir að ísbráðnun á pólnum varð svo mikil að örðugt fór að verða fyrir birnina að veiða sér seli til matar en á ísbreiðunum náðu þeir helst í seli. 9.12.2009 08:13
Fiskveiðisamningum ESB og Noregs siglt í strand Viðræður Norðmanna og Evrópusambandsins um fiskveiðisamning fyrir árið 2010 fóru út um þúfur í gærkvöldi. Að sögn norskra ráðamanna strönduðu viðræðurnar aðallega á rétti Norðmanna til að veiða Makríl í lögsögu ESB. Lisbeth Hansen sjávarútvegsráðherra Noregs sagðist í gærkvöldi vera mjög vonsvikin yfir tregðu Evrópusambandsins til að komast að sameiginlegri niðurstöðu fyrir næsta fiskveiðiár. 9.12.2009 07:21
Innbrot í dekkjaverkstæði - róleg nótt að öðru leyti Brotist var inn í dekkjaverkstæði í Breiðholti rétt fyrir miðnætti í gær. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hvort þjófarnir hafi haft eitthvað upp úr krafsinu. Um svipað leyti var ökumaður stöðvaður og handtekinn annarsstaðar í borginni, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. 9.12.2009 07:06
Aldrei fleiri íbúar Bretlands fæddir utan landsins Meira en tíundi hver íbúi Bretlands er fæddur utan landsins og hefur hlutfallið aldrei verið hærra, en það hefur næstum því tvöfaldast á tveimur áratugum. 9.12.2009 07:05
Gætu verið útrásarvíkingar sem óttast frystingu eigna „Það eru óþolinmóðir Íslendingar og óþolinmóðir útlendingar, sem voru lokaðir inni með gjaldeyrishöftunum sem hafa farið þarna út,“ segir Þórólfur Matthíasson prófessor, spurður hvað hann lesi út úr upplýsingum sem fram hafa komið á Alþingi um að fjárhæðir meintra gjaldeyrissvika, sem Seðlabankinn rannsakar nemi 57,5 milljörðum króna á 10 mánaða tímabili. Hann segir að erlendu aðilarnir geti verið jöklabréfaeigendur. „En að því marki sem þetta eru óþolinmóðir Íslendingar, gætu það verið útrásarvíkingar sem óttast frystingu eigna sinna.“ 9.12.2009 06:00
Sársaukafull hagræðing í velferðarmálum Algerlega óásættanlegt er að borgarstjórnarmeirihlutinn fari í sársaukafulla hagræðingu í velferðarmálum, þvert á það sem talað hafi verið um, segir borgarfulltrúi Vinstri grænna. 9.12.2009 05:15
Ríkið borgar málskostnaðinn Íslenska ríkið var sýknað af kröfum landeigenda í tveimur þjóðlendumálum í Vopnafirði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í báðum tilvikum höfðu sækjendur fengið gjafsókn. Greiðist sá kostnaður, samtals 2,1 milljón króna, úr ríkissjóði. 9.12.2009 05:00
Á kafi í efnahagsbrotum Dönsk skattayfirvöld hafa síðustu misseri flett ofan af fleiri tugum umfangsmikilla efnahagsbrota, sem tengjast undanskoti á skatti. 9.12.2009 05:00
Leki skekur loftslagsráðstefnuna Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn er í uppnámi eftir að drögum að samkomulagi um samdrátt í losun koltvísýrings var lekið til breska blaðsins The Guardian í gær. Fulltrúar þróunarríkja brugðust ævareiðir við því sem fram kom í drögunum, sem kölluð hafa verið „Danski textinn“. 9.12.2009 05:00
Hafnfirðingar skoða framhald Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir nú skoðað hvort leitað verði eftir því að fá hnekkt ákvörðun Einkaleyfastofunnar um að bærinn fá ekki umbeðinn einkarétt á vörumerkinu Jólaþorpi. 9.12.2009 05:00
Engar skepnur sakaði í bruna Tvær geymslur á bænum Neðritungu í Örlygshöfn við Patrekshöfn gereyðilögðust í eldi í gærkvöldi. Eldurinn kom upp klukkan hálf sjö og hafði verið slökktur á tíunda tímanum. Hátt á fimmta tug lögreglu-, slökkviliðs- og björgunarsveitarmanna hjálpaði til við slökkvistarfið. 9.12.2009 05:00
Brutust inn með klaufjárni Piltarnir þrír sem kveiktu í skólastofu í Waldorfskóla brutust inn í hann með klaufjárni. Missagt var í Fréttablaðinu í gær að þeir hefðu verið nemendur í Waldorfskóla. Hið rétta er að þeir hafa verið nemendur í Fellaskóla. Í þeim skóla gerðu þeir ráðstafanir til þess að komast inn eftir að allir voru farnir heim, með því að troða bréfi í dyralæsingu. Þeim tókst ekki að kveikja í skólahúsnæðinu, þrátt fyrir nokkrar tilraunir, þar sem öryggisvörður varð eldsins var áður en hann náði að breiðast út. 9.12.2009 05:00
Fríhöfnin í Keflavík í klóm spillingarafla „Lengi vel var það alþekkt að allir sem fengu vinnu í Fríhöfninni voru tengdir ákveðnum pólitískum flokkum, annaðhvort beint eða í gegnum fjölskyldumeðlimi,“ segir í fimmtíu ára afmælisriti Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. 9.12.2009 04:45
Kanna sparnað með opnum hugbúnaði Heildarkostnaður ríkisins vegna hugbúnaðar nam 7,5 milljörðum króna á þriggja ára tímabili, 2006 til 2008. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar. 9.12.2009 04:30
Flest liggur fyrir og margt á island.is Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á ekki von á að neitt komi fram í nýrri meðferð fjárlaganefndar á Icesave-málinu sem breyti því að ráði eða bæti. Flestallt, ef ekki allt, liggi þegar fyrir. 9.12.2009 04:30
Vilhjálmur fær gögn um lán Skilanefnd Glitnis á að afhenda Vilhjálmi Bjarnasyni, lektor og fjárfesti, upplýsingar um 24 milljarða króna veðlaust lán Glitnis til fjárfestingarfélagsins Fons. Þrotabú Fons þarf hins vegar ekki að afhenda Vilhjálmi sambærileg gögn. 9.12.2009 04:30
Heimila á innflutning sæðis Heimild til innflutnings á djúpfrystu svínasæði verður til þess að efla, styrkja og auka svínarækt í landinu. Þetta kemur fram í áliti sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis vegna frumvarps um breytingu á lögum um innflutning dýra. 9.12.2009 04:30
Al Kaída og Baath kennt um Á annað hundrað manns fórust í fimm sprengjuárásum í Bagdad í gærmorgun. Hundruð manna særðust. 9.12.2009 04:30
Samningar samþykktir Samningar Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins voru samþykktir á kjörfundi á mánudag. Kjörsókn var lítil, tæplega ellefu prósent. 9.12.2009 04:15
Níu mánuðir fyrir dópakstur Kona á þrítugsaldri hefur verið dæmd í níu mánaða fangelsi og til ævilangrar sviptingar ökuréttar fyrir fíkniefnaakstur, auk skilorðsrofs. Konan var í tvígang á stuttu tímabili staðin að því að aka bifreið, þótt hún væri ófær um að stjórna henni vegna fíkniefnaneyslu. 9.12.2009 04:15
Fær greiddar milljóna bætur Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt Stykkishólmsbæ til að greiða fyrrverandi forstöðumanni Dvalarheimilis aldraðra 5,8 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. 9.12.2009 04:15
Langflestum er synjað um hæli Evrópusambandið hafnaði umsóknum 204 þúsund hælisleitenda á árinu 2008. Sama ár fengu 76 þúsund manns hæli í aðildarríkjum sambandsins. 9.12.2009 04:15
Laun verkafólks hækka mest Laun voru að meðaltali 0,7 prósentum hærri á þriðja fjórðungi ársins, en hjá verkafólki hækkuðu þau um 1,6 prósent og hækkar sú starfsstétt mest. Á sama tímabili hækkuðu laun stjórnenda um 0,1 prósent. 9.12.2009 04:15
Stálu skammbyssu og flatskjáum Sex ungmenni hafa verið ákærð fyrir fjölmörg innbrot og þjófnaði í umdæmi lögreglustjórans á Selfossi. Um er að ræða fimm unga menn og eina stúlku á aldrinum 18 til 22 ára. 9.12.2009 04:00
Rannsókn RLS verði rannsökuð Ríkislögreglustjóri hefur farið fram á að embætti Ríkissaksóknara rannsaki hvort lög hafi verið brotin þegar meint peningaþvætti í Landsbankanum árið 2006 var ekki rannsakað. 9.12.2009 04:00
Búast við 1.200 fram að jólum Fjölskylduhjálp Íslands gerir ráð fyrir að á bilinu 1.000 til 1.200 fjölskyldur muni sækja jólaaðstoð félagsins í desember. 9.12.2009 04:00
Hlustað á börn í forsjármálum Íslensk stjórnvöld ættu að endurskoða verklagsreglur í forsjármálum, leggja meiri áherslu á að hlusta á það sem börnin vilja sjálf en nú er gert og virða mannréttindi barnanna, segir í yfirlýsingu frá stjórn Kvenréttindafélags Íslands. 9.12.2009 04:00
Einn á gjörgæslu vegna svínaflensu Einn sjúklingur hefur verið lagður á legudeild Landspítalans síðastliðna viku með grun um svínainflúensu en tveir eru enn inniliggjandi. Það eru því þrír einstaklingar á spítalanum, einn á gjörgæsludeild en tveir á legudeildum. 8.12.2009 20:43
Framtíð stjórnarinnar gæti ráðist af atkvæði Þráins Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar var samþykkt með naumum meirihluta eftir aðra umræðu á Alþingi í dag en tveir stjórnarþingmenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Framtíð frumvarpsins og jafnvel ríkisstjórnarinnar gæti ráðist af atkvæði Þráins Bertelssonar, því einn stjórnarþingmaður til viðbótar gæti lagst gegn frumvarpinu við lokaafgreiðslu þess. 8.12.2009 19:27