Ríkið borgar málskostnaðinn 9. desember 2009 05:00 Allnokkur þjóðlendumál í Vopnafjarðarhreppi hafa endað fyrir dómstólum. Fréttablaðið/Sig.Jökull
Íslenska ríkið var sýknað af kröfum landeigenda í tveimur þjóðlendumálum í Vopnafirði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í báðum tilvikum höfðu sækjendur fengið gjafsókn. Greiðist sá kostnaður, samtals 2,1 milljón króna, úr ríkissjóði. Annars vegar var staðfestur úrskurður óbyggðanefndar um að landsvæði norðvestan Kistufells væri þjóðlenda og utan landamerkja jarðanna Þorvaldsstaða og Hamars í Vopnafirði. Um leið var fallist á að sama landsvæði væri í afréttareign Þorvaldsstaða og Hamars. Hins vegar var staðfestur úrskurður um að land Mælifells og Selsárvalla í Vopnafirði væri þjóðlenda, en afréttareign stefnenda í málinu. Landeigendur höfðuðu málin tvö, en auk einstaklinga eiga þar hlut að máli Veiðiklúbburinn Strengur ehf., Sunnudalur ehf., Heljardalur ehf. og Hofsárdalur ehf. Farið var fram á að úrskurðir óbyggðanefndar frá maílokum 2007 yrðu felldir úr gildi. Í úrskurði um gjafsóknarkostnað kemur fram að litið sé til þess að lögmaðurinn sem fór með málið fyrir hönd sækjenda hafi annast rekstur fleiri sambærilegra mála vegna aðliggjandi landsvæða í Vopnafirði. Í öðru málinu var kostnaðurinn 1,0 milljón króna en 1,1 milljón í hinu. - óká
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira