Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjárlögin samþykkt: Hallinn næstum 100 milljarðar Fjárlög voru afgreidd með tæplega 100 milljarða halla á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan segir frumvarpið eins og illa skipulagða óvissuferð inn í framtíðina og vegið sé að velferðarkerfi þjóðarinnar. Fjármálaráðherra segir að tekist hafi að helminga halla ríkissjóðs sem geti orðið með afgangi árið 2013. 22.12.2009 11:47
Bobbinn í bobba: Ákærður fyrir kannabisræktun Sigurður Þorkelsson, sem leikur Bobbann í auglýsingum Sjóvá, hefur ásamt Teiti Ólafi Marshall, verið ákærður fyrir að rækta kannabisplöntur. Lögreglan stöðvaði ræktun þeirra sem fór fram að Freyjubrunni í Reykjavík þann 28. mars síðastliðinn. Samkvæmt ákæru höfðu þeir félagarnir þá í vörslum sínum 2 kíló af maríjúana og 181 kannabisplöntu en efnið var ætlað til sölu og dreifingar. 22.12.2009 11:25
Flautað á lánafyrirtækin á hverjum þriðjudegi í vetur Samtökin Nýtt Ísland boða til mótmæla í dag fyrir utan bílalánafyrirtæki borgarinnar líkt og gert var í síðustu viku. Á heimasíðu samtakanna segir að stefnt sé að því að mótmæla á hverjum þriðjudegi í vetur. 22.12.2009 10:50
Lést í bílslysi á Hafnarfjarðarvegi Annar mannanna sem lést í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi á föstudaginn hét Sæmundur Sæmundsson. Hann var 59 ára að aldri og búsettur í Hafnarfirði. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn en hann starfaði sem leigubílstjóri. Þriðji maðurinn liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Lögregla rannsakar slysið. 22.12.2009 10:08
Fíkniefnabrotum fækkaði um 10% í nóvember Alls voru skráð tæplega 6.000 hegningarlaga- umferðarlaga- og fíkniefnabrot í nóvember eftir því sem fram kemur í tölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir mánuðinn. 22.12.2009 09:58
Landsmönnum fækkaði um 0,7% Íbúar með lögheimili á Íslandi voru 317.593 þann 1. desember síðastliðinn. Ári áður var íbúafjöldi 319.756 og er fækkun milli ára því um 2.163 íbúa eða 0,7%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. 22.12.2009 09:33
Atkvæðagreiðsla hafin um fjárlagafrumvarpið Atkvæðagreiðsla hófst um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2010 laust eftir klukkan níu í morgun. Fyrst eru greidd atkvæði um einstaka greinar frumvarpsins og breytingatillögur við þær en síðan verður frumvarpið borið upp í heild sinni. 22.12.2009 09:22
IKEA innkallar LEOPARD barnastóla Forsvarsmenn IKEA verslananna biðja viðskiptavini sína sem eiga LEOPARD barnastól að hætta strax að nota stólinn og skila sætinu og grindinni til IKEA. Tekið er á móti stólnum í Skilað og skipt og verður hann að fullu endurgreiddur. 22.12.2009 09:06
Auschwitz-þjófar bara „venjulegir glæpamenn“ Fimmmenningarnir, sem handteknir voru um helgina í Póllandi, grunaðir um að hafa stolið hinu alræmda Arbeit Macht Frei-skilti Auschwitz-útrýmingarbúðanna, eru hvorki hægriöfgamenn né nýnasistar, að sögn pólsku lögreglunnar. 22.12.2009 08:35
Lögregla í Afríku lagði hald á jólasvein Sérkennilegu vopni var beitt þegar maður var barinn til bana í átökum í Suður-Afríku. 22.12.2009 08:16
Sprengigos yfirvofandi á Filippseyjum Tæplega 45.000 manns dvelja nú í sérstökum búðum í Albay-héraðinu á Filippseyjum og bíða þess sem verða vill með eldfjallið Mayon. 22.12.2009 08:09
Varð fyrir snjóbolta og dró upp byssu Myndskeið, sem nú má sjá á vefnum YouTube, sýnir, að því er virðist, hvar lögreglumaður á frívakt í Washington dregur upp skammbyssu eftir að snjóbolta var kastað í bíl hans á laugardaginn. 22.12.2009 08:01
Viðskiptavinir gripu ræningja Nokkrir viðskiptavinir í verslun í Østervrå á Norður-Jótlandi sýndu mikið snarræði í gærkvöldi þegar þeir hlupu uppi tvo ræningja og yfirbuguðu þá. 22.12.2009 07:58
Játar að hafa myrt stúlku árið 1983 Rúmlega fimmtugur Breti, kvæntur þriggja barna faðir, hefur játað á sig morð á sextán ára gamalli stúlku árið 1983. 22.12.2009 07:27
Bilið minnkar milli bresku flokkanna Munurinn á fylgi Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins í Bretlandi mælist nú aðeins níu prósent samkvæmt könnun sem birtist í breska blaðinu Independent og hefur ekki verið svo mjótt á munum síðan í maí. 22.12.2009 07:24
British Airways aflýsir öllu flugi Flugfélagið British Airways aflýsti öllu innanlandsflugi og flugi milli Bretlands og meginlandsins um Heathrow-flugvöll eftir klukkan sjö í gærkvöldi. 22.12.2009 07:20
Sjómenn almennt komnir í jólafrí Aðeins 30 fiskiskip eru nú á sjó við landið, en á góðum degi eru þau allt upp í sjö hundruð. 22.12.2009 07:18
Sinubrunar ógnuðu raflínum Töluverður sinubruni varð í grennd við Vík í Mýrdal í nótt. Eldurinn var magnaður og teygði sig í átt að staurastæðu háspennuraflínu, en slökkviliðinu tókst að verja hana og ráða niðurlögum eldsins. 22.12.2009 07:16
Nóttum fóru seggir Náttfari var enn á ferð á Selfossi í fyrrinótt og stal verðmætum úr þremur ólæstum bílum. Meðal þess sem hann stal voru greiðslukort og leikjatölva. 22.12.2009 07:13
Ný aðferðafræði við bílþjófnað Gerð var tilraun til óvenjulegs bílþjófnaðar í höfuðborginni í gær. Maður sem var nýbúinn að kaupa bíl og greiða hann að fullu sá hvar maður á bíl frá vörslusviptingarfyrirtæki gerði sig líklegan til að fjarlægja bílinn frá heimili kaupandans. 22.12.2009 07:12
Engir minnispunktar af 18 fundum Baldurs Engir minnispunktar eru til í fjármálaráðuneytinu um átján fundi, sem haldnir voru frá janúar 2007 til október 2008 og Baldur Guðlaugsson þáverandi ráðuneytisstjóri sat, ýmist með aðilum frá Seðlabankanum, ráðherrum eða fjármálaeftirliti. 22.12.2009 05:30
Dýrkeypt gæti orðið að selja varðskipið „Okkur vantar tilfinnanlega öflugt dráttarskip hingað til lands. Ef það kemur eitthvað fyrir þessi stóru olíuskip sem sigla hér við landið í vaxandi mæli þá verðum við að hafa skip til að bregðast við aðstæðum. Það gæti reynst okkur dýrt að selja skipið,“ segir Halldór B. Nellet, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar. 22.12.2009 05:00
Varar við verðlausu rafmagnsdóti Skemmdarverk eru víða unnin á heimilum á Íslandi þegar til þess ófaglærðir menn aftengja lögbundnar rafbindingar, svo íbúðirnar uppfylla ekki lengur staðla um raföryggi. Rafkerfið verður stórhættulegt og segulsvið getur rokið upp úr öllu valdi. Svo segir í ábendingu frá Guðlaugi Kristni Óttarssyni öreindafræðingi og kennara, sem hann sendi Neytendastofu á dögunum. 22.12.2009 04:30
Með byssusafn og fíkniefni Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir fíkniefnabrot og vopnalagabrot. 22.12.2009 04:00
Standa með Stalín Aðdáendur Jósefs Stalín, bæði í Rússlandi og Georgíu, minntust þess í gær að 130 ár eru liðin frá fæðingu þessa alræmda einræðisherra, sem stjórnaði Sovétríkjunum í tæpa þrjá áratugi. 22.12.2009 03:45
Segir reynt að hrekja sig af landareigninni „Undirrótin að öllum þessum látum er sú að vissir menn vilja okkur héðan í burtu,“ segir Stefanía Inga Lárusdóttir, bóndi á Stórhóli í Djúpavogshreppi. 22.12.2009 03:45
Þingmenn missi nefndarlaun Formaður Sjálfsstjórnarflokksins í Færeyjum, Kári P. Højgaard, segist tilbúinn til þess að þingmenn fái hér eftir ekki greitt sérstaklega fyrir embætti innan þings, svo sem þegar þeir fara með formennsku í þingnefndum, heldur verði þingfararkaup látið duga. 22.12.2009 03:30
Hjólaði á lögreglumann og situr inni í eitt ár Rúmlega fertugur karlmaður hefur verið dæmdur í Hæstarétti í eins árs fangelsi fyrir að hjóla á lögreglumann. 22.12.2009 03:00
Flugráðsfólki haldin jólaveisla í Perlunni „Ég er gestrisinn maður og alinn upp við góða mannasiði,“ segir séra Gunnlaugur Stefánsson, formaður Flugráðs, sem bauð ráðsmönnum og öðrum gestum í veglegt jólahlaðborð í Perlunni síðastliðið fimmtudagskvöld. 22.12.2009 03:00
Fimm menn handteknir Fimm menn voru handteknir seint á sunnudagskvöld fyrir stuld á járnskiltinu alræmda, sem var yfir hliði útrýmingarbúða nasista í Auschwitz í Póllandi. 22.12.2009 03:00
Samþykki nú nánast öruggt Demókratar í öldungadeild Bandaríkjanna telja nú nánast öruggt að frumvarp um nýja skipan heilbrigðistrygginga verði samþykkt í deildinni fyrir jól. 22.12.2009 02:30
Útskrifaðar fyrir afmælisdag Tvíburarnir Krishna og Trishna frá Bangladess voru útskrifaðir frá sjúkrahúsi í Ástralíu í gær, þar sem þær undirgengust erfiða aðgerð fyrir fimm vikum. 22.12.2009 02:00
Æsilegt áhlaup á Kristjaníu Jökull Gíslason lögreglumaður var í níu vikna skiptidvöl hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn á dögunum. Þar kynntist hann gengjastríðum, starfsemi Vítisengla, gagnsemi lögregluhunda, mansalsmálum og fleiru. Hann tók meðal annars þátt í áhlaupi á Kristjaníu með dönsku óreirðalögreglunni, sem hann segir frá hér. 22.12.2009 02:00
Hafró fann lítið af loðnu Árlegri loðnumælingu Hafrannsóknastofnunar að haustlagi er lokið og niðurstöður gefa ekki tilefni til þess að leggja til loðnukvóta á komandi vetrarvertíð. Lítið mældist af fullorðinni loðnu sem og ungloðnu. 22.12.2009 01:00
Sinueldur í Reynisfjalli Slökkvilið Mýrdalshrepps í Vík var kallað út í kvöld vegna elds austan í Reynisfjalli. Eldurinn var í sinu við eina staurastæðu raflínunnar sem þar er. 21.12.2009 23:49
Bráðabirgðaáhættumat IFS kynnt fjárlaganefnd Á fundi fjárlaganefndar í kvöld var farið yfir bráðbirgðaráhættumat frá IFS Greiningu á Icesave samningnum. Að sögn Guðbjarts Hannessonar formanns nefndarinnar hafði verið óskað eftir því að slíkt mat yrði unnið og féllst meirihlutinn á það en þó með þeim formerkjum að það myndi ekki tefja afgreiðslu málsins. Endanleg skýrsla IFS Greiningar kemur á Þorláksmessu en að sögn Guðbjarts er þó enn möguleiki á því að málið verði afgreitt úr nefndinni á morgun. 21.12.2009 21:34
Breskri leiðtogar í fyrsta sinn í sjónvarpskappræður Leiðtogar þriggja stærstu stjórnmálaflokka Bretlands munu mætast í kappræðum í sjónvarpi fyrir kosningar sem fyrirhugaðar eru einhverntíma á næsta ári, líklegast í maí. Þetta er í fyrsta sinn í breskri sögu sem þessi háttur er hafður á. Gordon Brown, Verkamannaflokki, David Cameron, Íhaldsflokki og Nick Clegg fyrir Frjálslynda demókrata munu mætast í kappræðum á sjónvarpsstöðvunum ITV, Sky og BBC. Kappræðurnar verða haldnar fyrir framan áhorfendur í sjónvarpsal og verður hver þáttur um 90 mínútna langur. 21.12.2009 21:30
Múlagöng lokuð í nótt Múlagöng verða lokuð í kvöld frá miðnætti og fram til kl 02:00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá er varað við hálkublettum og éljagangi á Norðurlandi eru hálkublettir og er éljagangur á Vatnsskarði og á Siglufjarðarvegi. Hálka og éljagangur er svo á Öxnadalsheiði en snjóþekja ásamt éljagangi á Víkurskarði. Á Norðausturlandi er víðast hvar hálka, snjóþekja og skafrenningur eða éljagangur. 21.12.2009 21:15
15 fengu ríkisborgararétt Alþingi samþykkti í dag að veita 15 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt. Fólkið er hvaðanæva að úr heiminum og á öllum aldri. Þrír eru fæddir hér á landi. Á meðal annara landa sem fólkið kemur upphaflega frá má nefna Taíland, Venesúela, Bandaríkin og Úkraínu. 21.12.2009 20:33
Tugþúsundir flýja eldfjall Tugþúsundum hefur verið fyrirskipað að yfirgefa heimili sín á Fillipseyjum en vísindamenn reikna með því að eitt stærsta eldfjall landsins fari að gjósa á næstu dögum. Fleiri en 9000 fjölskyldur, eða tæplega 45 þúsund manns, hafa verið fluttar í búðir sem reistar hafa verið í hæfilegri fjarlægð frá fjallinu Mayon. Sumir íbúar í nágrenninu kjósa þó heldur að halda sig heima og óttast margir að þjófar fari ránshendi um heimili þeirra yfirgefi þeir þau. 21.12.2009 20:14
Mál gegn Polanski ekki látið niður falla Áfrýjunardómstóll í Kalíforníu hefur hafnað beiðni kvikmyndaleikstjórans Romans Polanskis um að mál gegn honum verði látið niður falla. Polanski var árið 1977 ákærður og dæmdur fyrir barnaníð í ríkinu. Hann flúði til Evrópu og hefur aldrei snúið aftur á bandaríska grund. 21.12.2009 19:45
Friðarverðlaunahafi fyrirskipar mannskæðar loftárásir Barack Obama, Bandaríkjaforseti gaf sjálfur skipun um það fyrir helgi, að tvær sprengjuárásir yrðu gerðar í Yemen. 21.12.2009 19:23
Jólabjórinn búinn Jólabjór er nær uppseldur á landinu en um fimmtíu prósent meira hefur selst af slíkum bjór fyrir þessi jól en áður. Sérstakur jólabjór brugghúsanna hefur rokið út í desember og er nú nær ófáanlegur í vínbúðum. Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR segir að gert sé ráð fyrir því að almenn sala á áfengi í Vínbúðunum dragist örlítið saman í desember miðað við sama tíma í fyrra. Aukin sala á jólabjór er því nokkuð á skjön við það. 21.12.2009 19:19
Metaðsókn í mataraðstoð Aldrei hafa fleiri sótt um mataraðstoð fyrir jólin en búist er við að um tíu þúsund manns fái slíka aðstoð nú. Dæmi er um að fólk á tíræðisaldri hafi óskað eftir aðstoð. 21.12.2009 19:06
Vill ekki hafa börnin í heimavist á Hornafirði Húsmóðir á Svínafelli í Öræfum vill að látið verði reyna á lög sem heimila alþingismönnum, einum þegna, að eiga lögheimili á öðrum stað en makinn. Sjálf halda þau hjónin tvö heimili til að börn þeirra þurfi ekki að vera ein og umönnunarlaus á heimavist í grunnskóla fjarri heimaslóðum. 21.12.2009 19:00