Vill ekki hafa börnin í heimavist á Hornafirði 21. desember 2009 19:00
Húsmóðir á Svínafelli í Öræfum vill að látið verði reyna á lög sem heimila alþingismönnum, einum þegna, að eiga lögheimili á öðrum stað en makinn. Sjálf halda þau hjónin tvö heimili til að börn þeirra þurfi ekki að vera ein og umönnunarlaus á heimavist í grunnskóla fjarri heimaslóðum. Sex bæir eru í Svínafelli en grunnskóli sveitarinnar er í næstu bæjaþyrpingu, að Hofi. Skólinn er þó ekki fyrir elstu árgangana. Til að taka níunda og tíunda bekk þurfa börnin að fara 130 kílómetra í burtu á Hornafjörð á heimavist, nokkuð sem Hafdís Roysdóttir í Svínafelli kærði sig ekki um fyrir fjórtán ára dóttur sína, Svanhvíti Helgu. Hafdís segir að aðeins 3 börn séu í heimavistinni á Hornafirði og þau búi þar ein í íbúðarhúsi. Þetta hafi sér ekki fundist ásættanlegt. Sá sem hugsi um heimavistina búi annarsstaðar, reyndar í sömu götu, og börnin borði þar eina máltíð. Að öðru leyti hugsi börnin mikið um sig sjálf. Þetta hafi ekki verið kostur sem hún vildi fyrir sitt barn. Fjölskyldan leigði sér því hús í fyrra á Kirkjubæjarklaustri, Hafdís fékk þar kennarastarf, setti Svanhvíti og yngri strákinn, Sigurð Pétur, þar í skóla, en þau fara svo um helgar og í skólafríum heim í Svínafell, þar sem eiginmaðurinn sér um búreksturinn. Hafdís segir að börn verði ekki sjálfráða fyrr en 18 ára og sér finnist að foreldrum beri skylda til að sjá um þau fram að því, allavega, og hafa eitthvað um það að segja hvað þau borða, hvenær þau fara að sofa og hvort þau læri heima. Þetta hafi hún viljað gera sjálf en ekki láta aðra um að sjá um fyrir sig. Það er hins vegar óvíst hvort þau geti haft þennan háttinn á. Sveitarfélagið Hornafjörður neitar að greiða skólakostnað fyrir börnin á Klaustri og þangað getur hún ekki flutt lögheimili sitt, en vill láta reyna á hvort það standist jafnræðissjónarmið, að alþingismönnum einum þegna leyfist að hafa annað lögheimili en makinn hefur. Það er hins vegar dýrt að halda tvö heimili. Þann kostnað segir Hafdís að þau taki á sig með glöðu geði því þau sjái að þetta fyrirkomulag gefst vel.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Sjá meira