Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Al Franken hafði sigur að lokum Demókratinn og fyrrum skemmtikrafturinn Al Franken fór með sigur í kosningum um öldungadeildarþingsæti fyrir Minnesota. Hæstiréttur ríkisins felldi þennan dóm í gær eftir að atkvæði höfðu verið talin á nýjan leik að ósk Frankens. 1.7.2009 07:10
Jökulsárlón orðið dýpsta vatn landsins Jökulsárlón er dýpsta vatn Íslands samkvæmt nýjustu mælingum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en eftir síðasta framhlaup Breiðamerkurjökuls, þar sem allt að 700 metrar munu hafa brotnað af jöklinum á köflum, er vatnið orðið dýpra en Öskjuvatn sem hingað til hefur hampað metinu. 1.7.2009 07:04
Nemandi veiktist af berklum Nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð veiktist nýverið af berklum. Hópur fólks, einkum nemendur í skólanum, hefur verið sendur í berklapróf í kjölfarið. Endanlegar niðurstöður liggja þó ekki fyrir fyrr en í haust. 1.7.2009 06:00
Ætla að urða um 800 tonn af færiböndum Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo ætlar að láta urða færibönd sem notuð voru til að koma grjóti og möl upp úr aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar. Færibandinu, sem var um hálfur metri á breidd, hefur verið rúllað upp í um 200 rúllur, sem hver um sig er um fjögur tonn. Samanlagt verða því um 800 tonn af gúmmíi, um fimmtíu vörubílshlöss, urðuð á urðunarstað Fljótsdalshéraðs á Tjarnarlandi á næstunni. 1.7.2009 06:00
Reykjanesbær kaupir land og jarðhitaréttindi í Svartsengi „Reykjanesbær er að kaupa land og jarðhitaréttindi til að tryggja að auðlindirnar séu í eigu almennings,“ segir Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Stjórn HS Orku samþykkti í gær að selja land og jarðhitaréttindi í Svartsengi til Reykjanesbæjar. 1.7.2009 06:00
Þjóðin sögð ráða við ábyrgðina á Icesave Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að það hvarfli ekki að henni að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave-samningsins verði fellt á Alþingi. 1.7.2009 06:00
Farsælast að samið yrði aftur „Ef eitthvað er hef ég enn styrkst í þeirri trú að allt of mörg vafaatriði séu í þessu máli. Aðalatriðið er að þetta er óráðsía, og það hjálpar ekki lánshæfismati landsins að lofa því að borga eitthvað sem við getum ekki staðið við,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, um frumvarp um ábyrgð ríkissjóðs vegna Icesave-skuldanna sem lagt var fyrir Alþingi í gær. 1.7.2009 05:30
Ekki til neitt plan B „Ég tel mig ekkert þurfa neitt Plan-B,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í gær aðspurð á blaðamannafundi hvaða áform ríkisstjórnin hefði, samþykki Alþingi ekki Icesave-samninginn. 1.7.2009 05:15
Kvótabrask í skjóli umdeilanlegra laga Kvótabrask útgerðarmanna vegna stórvægilegra galla á fiskveiðistjórnunarkerfinu veldur vannýtingu á tilteknum nytjastofnum og milljarðatapi þjóðarbúsins. Byggðirnar í landinu líða fyrir hráefnisskort og eftirlitsaðilar hafa brugðist hlutverki sínu. 1.7.2009 05:00
Selja sprautur á bensínstöðvum Nokkrar bensínstöðvar Skeljungs hafa undanfarið gert tilraun með sölu á sprautum, sem hugsaðar eru fyrir þá sem taka neftóbak í vörina. 1.7.2009 04:30
Helmingur þingheims tengdur hlutafélögum Alls eru 32 alþingismenn skráðir í hlutafélagaskrá, sem stjórnarmenn, prókúruhafar, framkvæmdastjórar, endurskoðendur eða meðstjórnendur samkvæmt nýrri greiningu Creditinfo Ísland fyrir Fréttablaðið. 1.7.2009 04:00
Varað við svína-flensupartíum Læknar í Bretlandi hafa varað almenning í landinu við því að halda svokölluð svína-flensupartí. 1.7.2009 03:15
Biðlistar hafa ekki verið styttri í tvö ár Staða á biðlistum í júní 2009 er almennt góð og hafa biðlistar styst fyrir nær allar aðgerðir. Enn er þó bið eftir tilteknum aðgerðum, svo sem gerviliðaaðgerðum og aðgerðum á augasteini, en færri einstaklingar bíða eftir slíkum aðgerðum nú en á sama tíma í fyrra. 1.7.2009 03:00
Mun snúa aftur til Hondúras Forseti Hondúras, Manuel Zelaya, ætlar að snúa aftur úr útlegð á morgun og endurheimta völd í landinu. Her landsins framdi valdarán á sunnudag eftir að hæstiréttur hafði fyrirskipað það. Zelaya var þá sendur í útlegð, en hefur síðan fundað með leiðtogum annarra ríkja í Rómönsku Ameríku og Sameinuðu þjóðunum. Hann hefur hlotið mikinn stuðning þjóðarleiðtoga, allt frá Barack Obama Bandaríkjaforseta til Hugo Chavez, forseta Venesúela. Aðalritari Sambands Ameríkjuríkja, Jose Miguel Insulza, ætlar að fylgja Zelaya aftur til Hondúras. 1.7.2009 02:15
Allir grunnskólanemendur komnir með skólavist „Allir sem eru að koma úr grunnskóla eru komnir með pláss,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. Mikil aðsókn var í framhaldsskóla í ár og var mörgum hafnað. Katrín segir marga þó ekki sátta við þann skóla sem þeir komust í. 1.7.2009 02:00
Ekið á hjólreiðamann við Hringbraut Ekið var á hjólreiðamann á móts við Landspítalann á Hringbraut á níunda tímanum í kvöld. Lögregla og sjúkrabíl komu á staðinn en sá er fyrir bílnum varð stóð upp að sjálfsdáðum og mun taldi ekki þörf á því flytja sig á sjúkrahús til nánari aðhlynningar. 30.6.2009 22:33
Sjö særðir eftir skotárás í Detroit Sjö manns, þar af allavega fimm menntaskólanemar, voru skotnir í dag á biðstöð strætisvagna í Detroit. Tvö fórnarlambana eru í lífshættu en hinir mikið slasaðir. 30.6.2009 21:39
Innbrotsþjófur lúbarinn af gamalmenni Innbrotsþjófur sem braust inn til 72 ára manns í Botley í Oxford síðasta sumar hefur eflaust ekki átt von á mikilli mótspyrnu frá húsráðendum áður en hann lét til skarar skríða. Það sem hann vissi hinsvegar ekki var að húsráðandi var fyrrum boxar. 30.6.2009 20:39
Hátekjuskattur leggst ekki á hjón heldur einstaklinga Hátekjuskatturinn leggst ekki á hjón heldur einstaklinga. Því geta hjón með tæplega fjórtán hundruð þúsund krónur í mánaðartekjur sloppið við hátekjuskatt á meðan hjón undir milljón í sameiginlegar tekjur geta þurft að greiða hátekjuskatt. 30.6.2009 19:00
Viðskiptaráðherra segir Ísland vel ráða við afborganir vegna Icesave Fjármálaráðherra segir að gögn sem fylgja með Icesave frumvarpinu sýni að engin önnur niðurstaða sé í boði. Viðskiptaráðherra segir að skuldbindingin sé íslensku efnahagslífi alls ekki ofviða. 30.6.2009 18:44
Icesave-frumvarp lagt fram Frumvarp um ábyrgð ríkissjóðs vegna Icesave var lagt fram nú fyrir stundu. Hart hefur verið deilt um frumvarpið en á blaðamannafundi sagði Steingrímur J. Sigfússon að niðurstaðan væri ásættanlegt. 30.6.2009 17:09
Stjórnlagaþing kostar 360 milljónir Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um ráðgefandi stjórnlagaþing til samræmis við 100 daga áætlun stjórnarinnar. Áætlað er að stjórnlagaþingið kosti um 360 milljónir. 30.6.2009 20:52
Smíði Hvítárbrúar við Flúðir komin á fullt skrið Fyrstu undirstöður nýrrar Hvítárbrúar við Flúðir í Árnessýslu voru reknar niður í árfarveginn í dag. Verktakinn segir það guðsgjöf að hafa hreppt verkið og oddviti Bláskógabyggðar segir brúna verða mikilvæga þvertengingu fyrir uppsveitir Suðurlands. 30.6.2009 18:41
Renault Scénic stolið úr Breiðholti Silfurlituðum Renault Scénic var stolið úr P-stæði við Æsufell 4 í Breiðholti í morgun eða nótt. Eigandi bílsins tók eftir þessu um níu leytið í morgun en hefur ekki hugmynd um á hvenær bílnum var stolið. 30.6.2009 14:49
Þingmaður: Alþingi eins og skólastofa Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður samfylkingarinnar, tók samþingmenn sína á hinu háa Alþingi á teppið í dag, en henni þótti ólæti og framíköll hafa keyrt um þverbak. 30.6.2009 14:33
Sviku út staðsetningatæki á kostnað björgunarsveitar Par á þrítugsaldrinum voru dæmd í eins og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að svíkja meðal annars út GPS staðsetningartæki á kostnað Björgunarsveitarinnar Kyndils á Kirkjubæjarklaustri. Staðsetningatækin voru keypt af R.Sigmundssyni. 30.6.2009 14:32
Álfheiður Ingadóttir vill ekki þjóðaratkvæði um Icesave Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, vill ekki að Icesave-málið fari fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta fullyrti hún í umræðum um störf þingsins í dag. 30.6.2009 14:12
Evrópumálið þokast áfram á þingi Búist er við að tillögur stjórnar og stjórnarandstöðu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði sameinaðar í utanríkismálanefnd og komist til seinni umræðu á alþingi á fyrstu dögum júlímánaðar. 30.6.2009 12:33
Leynd létt af Icesave Forsætisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í Alþingishúsinu klukkan 16:30 í dag. Á fundinum verður leynd aflétt af tugum skjala sem varða Icesave málið og fram eru lögð á Alþingi. Að auki verður fjallað um frumvarp fjármálaráðherra þar sem leitað er samþykkis Alþingis fyrir ríkisábyrgð lána vegna málsins. 30.6.2009 12:31
Friðarhlaup hefst á morgun Tuttugu og fimm hlauparar frá fimmtán þjóðlöndum taka þátt í friðarhlaupinu sem hefst á morgun. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, ræsir hlauparana hjá gervigrasinu í Laugardal klukkan 11 í fyrramálið. 30.6.2009 12:30
Tinna Gunnlaugsdóttir sækist eftir endurskipun Alls sóttu tíu manns um stöðu þjóðleikhússstjóra, en umsóknarfrestur rann út klukkan 16 síðastliðinn föstudag. Ein umsókn var dregin til baka. Menntamálaráðherra skipar þjóðleikhússtjóra í embætti til fimm ára í senn, frá og með 1. janúar 2010. Í embætti þjóðleikhússtjóra skal skipaður einstaklingur með menntun á sviði lista og staðgóða þekkingu á starfi leikhúsa. 30.6.2009 12:02
Ferjusiglingar Herjólfs ekki hluti af þjóðvegi Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að Eimskipi er heimilt að taka gjald af ferjusiglingum á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. 30.6.2009 12:02
Ríkisstjórnin vel á veg komin Ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar hefur afgreitt 32 af 48 málum sem eru á hundrað daga lista hennar samkvæmt tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Fimmtíu dagar eru síðan ríkisstjórnin hófst handa. 30.6.2009 11:39
Barn fannst á lífi eftir flugslys Björgunarmenn hafa fundið eitt barn á lífi eftir að frönsk flugvél brotlenti í Indlandshafi. Björgunarmenn hafa fundið einnig fundið nokkur lík farþega. 30.6.2009 10:27
Rýmingaræfing í Turninum Mikill viðbúnaður er fyrir utan Turninn í Kópavogi en þar má sjá slökkviliðsbíla og sjúkrabíl. Þegar haft var samband við slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom í ljós að ekki var allt eins og sýndist. Nú fer nefnilega fram rýmingaæfing samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins. 30.6.2009 10:08
Kristján Ara með 893 milljóna kúlulán Kaupþing lánaði starfsfólki sínu samtals 47,3 milljarða til hlutabréfakaupa í bankanum árið 2006. Þetta kemur fram í DV í dag en blaðið hefur lánabækur bankans frá árinu 2006 undir höndum. Í blaðinu er meðal annars greint frá því að Kristján Arason, þáverandi framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs hafi fengið 893 milljónir að láni í formi svokallaðs kúluláns. 30.6.2009 10:04
Brasilíski herinn leitar ekki að fleiri líkum Brasilíski herinn hefur hætt leit að líkum farþega Air France-flugslyssins 1. júní og segir nánast útilokað að finna fleiri lík úr þessu. 30.6.2009 09:04
Brack Obama og Susan Boil vinsælar villur Susan Boil, Rod Steward og paperview boxing eru í hópi algengustu misritana sem notendur leitarvélarinnar Yahoo! gera sig seka um þegar þeir leita sér upplýsinga um hugðarefni sín. 30.6.2009 08:34
Fyrstu líkin fundin eftir Yemenia-slysið Fyrstu lík þeirra sem fórust með Airbus-þotu jemenska flugfélagsins Yemenia, þegar hún hrapaði í Indlandshaf í nótt, eru fundin. 30.6.2009 08:10
Myrti forseti Írans Michael Jackson? Ótal samsæriskenningar um dauða Michaels Jackson fara nú sem eldur í sinu um netheima og virðast engin takmörk, eða að minnsta kosti lítil, fyrir því hvað fólki dettur í hug að hafi orðið poppgoðinu að aldurtila eða með hvaða hætti andlátið hafi borið að og hvers vegna. 30.6.2009 07:20
Ekki heitara í Bretlandi í þrjú ár Mesti hiti í þrjú ár mældist í Bretlandi í gær, 30,4 gráður í St James Park í London en Bretar hafa notið töluverðrar veðurblíðu undanfarna daga. 30.6.2009 07:17
Íraskar sveitir taka við af bandarískum Bandarískum hermönnum í Írak mun fækka ört næstu mánuði og munu íraskar öryggissveitir taka við hlutverki þeirra. 30.6.2009 07:15
Mannskætt lestarslys á Ítalíu Tíu manns eru látnir og tugir slasaðir eftir að lest fór út af sporinu í bænum Viareggio á Norður-Ítalíu í nótt og gastankar, sem hún flutti, sprungu. 30.6.2009 07:11
Björgunarsveit leitaði að ferðamanni Björgunarsveitarmenn frá Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit leituðu í gær að ferðamanni sem hafði ekki skilað sér á tilsettum tíma í skála. 30.6.2009 07:05
Flugslys í Indlandshafi: Óttast um 154 um borð Farþegaþota jemenska flugfélagsins Yemenia af gerðinni Airbus A310 hrapaði í Indlandshaf í nótt með 154 innanborðs, 143 farþega og ellefu manna áhöfn. Þotan var á leið frá Sanaa, höfuðborg Jemen, til borgarinnar Moroni á Comoro-eyjum sem eru í Indlandshafi undan austurströnd Afríku en flestir farþeganna eru frá eyjunum. 30.6.2009 06:52