Friðarhlaup hefst á morgun Gunnar Örn Jónsson skrifar 30. júní 2009 12:30
Tuttugu og fimm hlauparar frá fimmtán þjóðlöndum taka þátt í friðarhlaupinu sem hefst á morgun. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, ræsir hlauparana hjá gervigrasinu í Laugardal klukkan 11 í fyrramálið. Friðarhlaupið hóf göngu sína árið 1987 og hefur verið árlegur viðburður síðan þá. Hlaupararnir fara hringinn í kringum landið á rúmum tveimur vikum en hlaupinu lýkur í Reykjavík þann 16. júlí. Um er að ræða boðhlaup þar sem hver og einn hlaupari hleypur um það bil 15 kílómetra. „Tilgangurinn með hlaupinu er í raun vitundarvakning einstaklingsins, að hann geti lagt rækt við vináttu og búið í sátt og samlyndi við aðrar manneskjur. Einnig er lögð áhersla á innri frið einstaklingsins sem vonandi hefur þær afleiðingar að viðkomandi gefi af sér til annarra. Ef allar þjóðir sameinast í svona málum væri auðvelt að ná fram sátt og samlyndi í heiminum,“ segir Torfi Leósson, skipuleggjandi hlaupsins á Íslandi. Hlaupið er eingöngu haldið í þágu friðar og er engin pólitík í spilinu, allir þátttakendur gefa að sjálfsögðu vinnu sína. Hlaupið er haldið í yfir hundrað löndum, friðarhlaupinu lauk í Frakklandi í gær og næst fer hlaupið fram í Úkraínu. Hlaupararnir koma við í fjölmörgum bæjum á leið sinni og fá allir sem það vilja að hlaupa með kyndilinn. Hér má sjá viðkomustaði hópsins: 2 júlí: Vík í Mýrdal 3 júlí: Höfn í Hornafirði 4 júlí: Egilsstaðir 5 júlí: Austfirðir 6 júlí: Borgarfjörður Eystri 7 júlí: Akureyri 8 júlí: Hvammstangi 9 júlí: Hólmavík 10 júlí: Ísafjörður 11 júlí: Barðaströnd Hópurinn tekur ferjuna Baldur frá Brjánslæk og kemur við í Flatey á Breiðafirði. 13. júlí: Stykkishólmur 14. júlí: Borgarnes og Akranes 15. júlí: Komið við á höfuðborgarsvæðinu 16. júlí: Forseti borgarstjórnar slítur hlaupinu við Reykjavíkurtjörn
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira