Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aukning á kynlífsathöfnum fyrir tóbak og áfengi Aukning hefur orðið á því að unglingsstúlkur gangist inn á kynlífsathafnir í skiptum fyrir tóbak og áfengi, ef marka má fjölgun á kærum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Dæmi eru um að brotin hafi átt sér stað á salernum verslunarmiðstöðva og skóla og jafnvel leitt til nauðgunar. 3.6.2009 18:23
Bolli aftur ráðuneytisstjóri Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, skipaði í dag Bolla Þór Bollason, hagfræðing, ráðuneytisstjóra í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðuneytisins í dag. 3.6.2009 18:07
Rændi söðlasmið á níræðisaldri Bíræfinn þjófur rændi söðlasmið á níræðisaldri um miðjan maí. Söðlasmiðurinn er með verkstæði í Mosfellsbæ. Ræninginn virðist hafa gengið inn á verkstæði söðlasmiðsins í kringum tíunda maí síðastliðinn. Hann var með hnakk sem hann vildi að söðlasmiðurinn gerði við. 3.6.2009 17:26
Svindlaði sér inn í Arkitektaskólann í Árósum 25 ára gamall Íslendingur hlaut í dag 40 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Vestur Landsrétti Danmerkur fyrir skjalafals. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa falsað inntökubréf í Arkitektaskólann í Árósum. 3.6.2009 17:17
Tillaga um lægri hámarkshraða svæfð í nefnd Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og óháðra, segir að vegna hræðslu við að taka taka af skarið hafi meirihluti borgarfulltrúa sameinast um að svæfa tillögu sína um lækkun hámarkshraða um tilteknar götur í borginni í nefnd. 3.6.2009 17:00
Ríkisstjórnin þorir ekki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin þori ekki að taka af skarið þegar komi að aðstoða fjölskyldur og fyrirtæki í landinu. Hann segir ríkisstjórnina hafa vanrækt að upplýsa Alþingi um stöðu mála. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir skuldavanda heimilanna minni en talið hefur verið. 3.6.2009 15:42
Meira brak fundið úr vél Air France Meira brak sem talið er vera úr flugvél Air France sem hrapaði yfir Atlandshafi hefur fundist. Þar á meðal er um sjö metra langt stykki úr vélinni. Í gær hafði fundist meira brak sem talið er vera úr sömu vél. 3.6.2009 15:01
Steingrímur: Össur er frjáls ferða sinna „Hæstvirtur utanríkisráðherra er frjáls ferða sinn og stjórnar sínum ferðaplönum. Ég geri ráð fyrir að hann hafi talið sig eiga erindi á þennan vettvang. Kannski var hann þarna fyrst og fremst í fræðsluskyni,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, í umræðum á Alþingi í dag um ferð Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, til Möltu. 3.6.2009 14:37
Lík rjúpnaskyttu fannst í Selgilsbökkum Í gær barst lögreglunni á Selfossi tilkynning um líkfund í Selgilsbökkum sem eru við Þverá, rúman einn og hálfan kílómetra norðnorðaustur af bænum Fossnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. 3.6.2009 14:19
Húsleit hjá Hannesi Smárasyni Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit að Fjölnisvegi 9 og 11 í morgun en þau hús eru skráð á eiginkonu Hannesar Smárasonar annarsvegar og hinsvegar á eignarhaldsfélag sem er í eigu Hannesar. Einnig var gerð húsleit hjá lögfræðistofunni Logos í tengslum við málið. 3.6.2009 14:15
Gylfi: Þjóðverjar þrýstu ekki á okkur Viðskiptaráðherra sagði í umræðum á Alþingi í dag að það væri rangt að Þjóðverjar hefðu hótað Íslendingum með einhverjum hætti. Verið væri að gera Þjóðverjum upp ansi miklar sakir. 3.6.2009 14:01
Viðræðum um Icesave haldið áfram Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í umræðum á Alþingi í dag að ekki stæði til á næstu dögum að skrifa undir samkomulag við bresk stjórnvöld um Icesave-reikninga Landsbankans. 3.6.2009 13:50
Lalli Johns í tíu mánaða fangelsi Lárus Björn Svavarsson, betur þekktur sem Lalli Johns, var í dag dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir tilraun til þjófnaðar og húsbrot. Lalli var dæmdur fyrir að brjótast inn í hús við Grænumörk í Hveragerði. 3.6.2009 13:41
Húsleit gerð hjá Logos í morgun Menn á vegum Ólafs Þórs Haukssonar sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerðu í morgun húsleit á lögfræðistofunni Logos í Efstaleiti samkvæmt heimildum fréttastofu. Logos er einnig með starfsstöðvar í Kaupmannahöfn og London. Ólafur vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu þegar fréttastofa náði sambandi við hann en staðfesti að húsleit hefði verið framkvæmd í morgun. 3.6.2009 13:11
Fjórtán féllu í gildru lögreglu við Gullteig Fjórtán voru staðnir að hraðakstri á Gullteig í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. 3.6.2009 13:05
Aðstæður á leitarsvæðinu afar erfiðar Óttast er að flugritar Air France farþegaflugvélarinnar sem talið er að hrapað hafi í Atlantshaf finnist ekki þar sem aðstæður á svæðinu þar sem brak hefur fundist eru mjög erfiðar. 3.6.2009 13:02
Sjö handteknir með fíkniefni á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók í gærkvöldi alls sjö aðila á aldrinum 18-40 ára í þremur aðskildum málum og framkvæmdi húsleit í þremur íbúðum í bænum. Í þessum málum var lagt hald á um 112 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu. Allir voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum og teljast málin upplýst. 3.6.2009 12:56
Staða heimilanna rædd Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, verður til andsvara í utandagskrár umræðu um stöðu heimilanna á Alþingi í dag. Málshefjandi er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks. 3.6.2009 12:06
Sendiherra Íslands í Kína tekinn á teppið Sendiherra Íslendinga í Kína var kallaður á fund í kínverska utanríkisráðuneytinu gær vegna heimsóknar Dalai Lama hingað til lands. 3.6.2009 12:00
Hefur ekki séð hótunarbréfið Viðskiptanefnd situr nú á fundi, en Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, hafði óskað eftir afriti af bréfi þýskra stjórnvalda til skilanefndar Kaupþings. Í bréfinu var ýjað að því að ef þýskir Edge innistæðueigendur fengju ekki greitt hið snarasta myndu þýsk stjórnvöld beita sér í viðræðum Íslendinga við Evrópusambandið og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. 3.6.2009 11:55
Stál í stál í Karphúsinu Fulltrúar fimm landssambanda ASÍ sitja nú á fundi í Karphúsinu og fara yfir stöðu mála í viðræðum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Mikil óvissu ríkir um framgang þeirra viðræðna en fulltrúar ASÍ og SA hafa ekki hist formlega síðan fyrir helgi. 3.6.2009 11:51
Vísar á kínversk stjórnvöld „Þetta er mál Kínverja og við vitum ekkert meira um það og staðfestum ekkert til eða frá," segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, aðspurður hvort að utanríkisráðuneytinu eða utanríkisráðherra hafi borist tilkynning um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. 3.6.2009 11:31
Barðastrandarræningjum líklegast sleppt úr haldi Ólíklegt er að farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðald yfir Barðarstrandarræningjunum svokölluðu. Gæsluvarðhald yfir mönnunum rennur út í dag en þeir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá 27. maí. 3.6.2009 11:13
Fé finnst í landi Kaupþingsmanna Síðastliðinn mánudag heimtust kindur frá bænum Álftártungu á Mýrum sem ekki hafa komið á hús síðan vorið 2005 þegar fær voru lömb. Það þykir teljast til undantekninga að kindur komi ekki í hús svo lengi. Fréttamiðillinn Skessuhorn segir frá málinu í dag en þar segir að líta beri á að kindurnar héldu sig til á jörð sem eignamenn úr Reykjavík eiga og þar sé sjaldan smalað og nánast enginn umgangur. 3.6.2009 10:58
Annar ráðherra Browns segir af sér Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Hazel Blears, ráðherra sveitastjórnarmála í Bretlandi, hafi sagt af sér embætti sökum óheimilla útgjaldaliða. 3.6.2009 10:42
Svínaflensan rædd á fundum um allt land Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðisstarfsmenn á alls fimmtán fundum víðs vegar um landið núna í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs. 3.6.2009 10:39
Ákærður fyrir fíkniefnabrot í Mosfellsdal Mál gegn 31 árs karlmanni verður þingfest fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn er ákærður fyrir fíkniefnalagabrot sem áttu sér stað í júlí 2008. 3.6.2009 10:37
Mótmæla skelfilegri þróun í öryggismálum sjómanna Félag skipstjórnarmanna mótmælir harðlega þeirri skelfilegu þróun sem átt hefur sér stað í öryggismálum sjómanna og skorar á stjórnvöld að sjá til þess öryggi sjófarenda verði tryggt. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar félagsins. 3.6.2009 10:13
Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. 3.6.2009 09:56
Tilnefndur hættir í valnefnd Grímunnar Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri sýningarinnar Steinar í djúpinu, sem hlaut tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar, í ár skipaður af Félagi leikstjóra á Íslandi til setu í valnefnd Grímunnar, hefur óskað þess að vera alfarið leystur frá störfum í nefndinni og komi ekki að kjöri á verðlaunahöfum Grímunnar. 3.6.2009 09:19
Skákbókasafn Bobbys Fischer á uppboð Hundruð skákbóka, og annarra gagna sem tengjast skák, úr safni Bobbys heitins Fischer fara á uppboð í New York og á uppboðssíðu Bonhams í næstu viku. 3.6.2009 08:25
Harkaleg viðbrögð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið. 3.6.2009 08:24
Loka fjölda netsíðna til að hindra umfjöllun um torgið 1989 Kínversk stjórnvöld hafa lokað aðgangi að vissum hlutum Netsins til að fyrirbyggja of mikla umfjöllun um atburðina á Torgi hins himneska friðar fyrir 20 árum. 3.6.2009 08:10
Vinstristjórn líkleg á Grænlandi Þingkosningar fóru fram á Grænlandi í gær. Kosningarnar voru þær síðustu sem fram fara áður en Grænlendingar öðlast aukið sjálfstæði 21. júní. 3.6.2009 08:00
Þyrla sótti færeyskan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF var kölluð út rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi eftir að grænlenski togarinn Polar Nanoq hafði samband við Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð þyrlunnar. 3.6.2009 07:48
Ráðuneytismenn fá námskeið í uppistandi Líf japanskra embættismanna er allt annað en hlægilegt þessa dagana og liggur stjórnarandstaðan þeim meðal annars á hálsi fyrir að sóa fé skattborgaranna ráðleysislega á krepputímum. 3.6.2009 07:36
Málverk á uppboð eftir nær öld í einkaeigu Löngu horfið málverk eftir franska listmálarann Jacques-Louis David var sýnt opinberlega í fyrsta sinn í 84 ár í New York í gær. 3.6.2009 07:27
Las ræningja pistilinn og sneri honum til trúar Verslunareigandi nokkur á Long Island í New York sneri vörn í sókn þegar maður, vopnaður hafnaboltakylfu, gerði tilraun til að ræna verslun hans nú fyrir mánaðamótin. 3.6.2009 07:24
Hundruð þúsunda dollara hrundu úr bíl Tveir heiðarlegir vegfarendur skiluðu til lögreglu rúmlega 275.000 bandaríkjadollurum sem hrundu út úr peningaflutningabíl í Syracuse í New York í síðustu viku en dyrum bílsins hafði ekki verið lokað almennilega áður en haldið var af stað. 3.6.2009 07:23
Erfitt gæti reynst að finna flugrita Air France-þotunnar Enn er leitað að Airbus-þotu franska flugfélagsins Air France sem hvarf yfir Atlantshafi um helgina með 228 farþega innanborðs. Brak, sem talið er að sé úr vélinni, hefur sést í sjónum en það voru leitarflugmenn frá Brasilíu sem komu auga á það í gær. 3.6.2009 07:17
Stolin Mazda eftirlýst Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bifreið sem var stolið í bænum í nótt. Maður sem var í heimsókn í heimahúsi tók lyklana ófrjálsri hendi og ók á brott á bílnum sem er af gerðinni Mazda 323, árgerð 1998. 3.6.2009 07:09
Veifaði sveðju og kveikti í teppi Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í nótt í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Maðurinn var vopnaður sveðju og ógnaði fólki í stigagangi fjölbýlishúss. Hann er einnig grunaður um að hafa lagt eld að gólfteppi í stigaganginum. 3.6.2009 07:04
Ráðherrar í stjórn Browns segja af sér Breski innanríkisráðherrann Jacqui Smith ætlar að segja af sér embætti á næstu dögum, að því er breskir fjölmiðlar greindu frá í gær. 3.6.2009 07:00
Vaxtalækkun forsendan „Við hjökkum í sama flaginu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um gang mála í stöðugleikaviðræðum samtakanna við Alþýðusamband Íslands og opinbera aðila. 3.6.2009 06:45
Upplifun að hitta Dalai Lama „Það er alltaf upplifun að hitta jafn merka menn og Dalai Lama er. Ég hef ekki kafað djúpt ofan í málefni Tíbets en þessi fundur vakti áhuga minn enn frekar á þeim málum,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, sem í gær átti stuttan fund með Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. 3.6.2009 06:15