Sendiherra Íslands í Kína tekinn á teppið Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 3. júní 2009 12:00
Sendiherra Íslendinga í Kína var kallaður á fund í kínverska utanríkisráðuneytinu gær vegna heimsóknar Dalai Lama hingað til lands. Kínversk stjórnvöld kölluðu Gunnar Snorra Gunnarsson sendiherra Íslands á sinn fund í Peking í gær vegna heimsóknar Dalai Lama. Í samtali við fréttastofu sagði Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, að á fundinum hefðu Kínverjar lýst yfir áhyggjum af því að heimsókn Dalai Lama hefði á sér full opinberan blæ þar sem trúarleiðtoginn væri farinn að hitta ráðherra. Kínverjar komu einnig óánægju sinni með heimsóknina á framfæri hér á landi en Zhang Keyuan, kínverski sendiherrann á Íslandi, fór í gær á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til að koma á framfæri skoðun kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins á heimsókn Dalai Lama og fundum hans með íslenskum ráðamönnum. Tvennum sögum fer af því hvort að heimsókn Dalai Lama og móttökur Íslendinga hafi það í för með sér að kínverski sendiherrann verði kallaður heim. Fréttastofa Ríkisútvarpsins sagði í gær að hún hefði heimildir fyrir því að kalla ætti sendiherrann heim vegna málsins. Í samtali við fréttastofu í gær sagði sendiherrann sjálfur það algjöra vitleysu og að hann væri ekki á förum fram á landinu. Urður Gunnarsdóttir hjá utanríkisráðuneytinu vildi ekki tjá sig um málið í morgun en sagði þó að henni væri ekki kunnugt um það að Kínverjar hafi rætt það við íslenska sendiherrann í Kína að kalla sendiherra sinn hér á landi heim vegna málsins. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki náðst í kínverska sendiherrann í morgun. Ekki hefur heldur tekist að fá formleg svör vegna málsins hjá utanríkisráðuneytinu í Kína.
Tengdar fréttir Vísar á kínversk stjórnvöld „Þetta er mál Kínverja og við vitum ekkert meira um það og staðfestum ekkert til eða frá," segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, aðspurður hvort að utanríkisráðuneytinu eða utanríkisráðherra hafi borist tilkynning um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. 3. júní 2009 11:31 Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. 3. júní 2009 09:56 Sendiherra Kína ekki á förum Sendiherra Kína, Zhang Keyuan, segir að það sé algerlega fráleitt að hann hafi verið kallaður heim til Kína vegna heimsóknar Dalai Lama til Íslands. 2. júní 2009 18:26 Harkaleg viðbrögð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið. 3. júní 2009 08:24 Ráðamenn hissa kalli Kínverjar sendiherrann heim „Ég er hissa á því ef Kínverjar slíti eða dragi úr stjórnmálaasmskiptum vegna heimsóknar Dalai Lama," segir Steingrímur J. Sigfússon í viðtali við RÚV vegna fréttar Ríkisútvarpsins af því að Kínverjar hafi kallað kínverska sendiherrann heim vegna málsins. 2. júní 2009 22:09 Sendiherrann kallaður heim Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár. 3. júní 2009 05:45 Ráðherrar funda með Dalai Lama Fundur tveggja ráðherra og tveggja þingflokksformanna með Dalai Lama hófst á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 13 en forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sætt gagnrýni fyrir að eiga ekki fund með trúarleiðtoganum á meðan að hann dvelur hér á landi. 2. júní 2009 13:12 Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum. 2. júní 2009 15:52 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Sjá meira
Vísar á kínversk stjórnvöld „Þetta er mál Kínverja og við vitum ekkert meira um það og staðfestum ekkert til eða frá," segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, aðspurður hvort að utanríkisráðuneytinu eða utanríkisráðherra hafi borist tilkynning um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. 3. júní 2009 11:31
Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. 3. júní 2009 09:56
Sendiherra Kína ekki á förum Sendiherra Kína, Zhang Keyuan, segir að það sé algerlega fráleitt að hann hafi verið kallaður heim til Kína vegna heimsóknar Dalai Lama til Íslands. 2. júní 2009 18:26
Harkaleg viðbrögð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið. 3. júní 2009 08:24
Ráðamenn hissa kalli Kínverjar sendiherrann heim „Ég er hissa á því ef Kínverjar slíti eða dragi úr stjórnmálaasmskiptum vegna heimsóknar Dalai Lama," segir Steingrímur J. Sigfússon í viðtali við RÚV vegna fréttar Ríkisútvarpsins af því að Kínverjar hafi kallað kínverska sendiherrann heim vegna málsins. 2. júní 2009 22:09
Sendiherrann kallaður heim Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár. 3. júní 2009 05:45
Ráðherrar funda með Dalai Lama Fundur tveggja ráðherra og tveggja þingflokksformanna með Dalai Lama hófst á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 13 en forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sætt gagnrýni fyrir að eiga ekki fund með trúarleiðtoganum á meðan að hann dvelur hér á landi. 2. júní 2009 13:12
Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum. 2. júní 2009 15:52