Innlent

Þyrla sótti færeyskan sjómann

MYND/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF var kölluð út rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi eftir að grænlenski togarinn Polar Nanoq hafði samband við Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð þyrlunnar.

Grunur lék á að 48 ára færeyskur maður um borð væri með innvortis blæðingar. Þyrlulæknir ræddi við skipstjóra og talið var nauðsynlegt að sækja manninn. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að Polar Nanoq hafi samstundis snúið við og haldið á fullri ferð til móts við þyrluna en togarinn var staðsettur um 188 sjómílur SV af Reykjanesi.

Togarinn var á siglingu til Grænlands eftir að hafa landað á Íslandi. Þyrlan fór frá Reykjavik klukkan hálfeitt og var komin að skipinu kortér yfir tvö. Þyrlulæknir seig um borð ásamt stýrimanni og undirbjuggu þeir sjúkling fyrir hífingu. Maðurinn var síðan hífður um borð og var hann kominn til Reykjavíkur klukkan fjögur í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×