Svínaflensan rædd á fundum um allt land 3. júní 2009 10:39 Haraldur Briem sóttvarnarlæknir.
Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðisstarfsmenn á alls fimmtán fundum víðs vegar um landið núna í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og Almannavarnardeildar RLS. Þá segir að með þessu eigi að samræma aðgerðir í héraði og á landsvísu ef inflúensa A (H1N1) breiðist út hérlendis. Fyrsti fundurinn af þessu tagi var á Akranesi í gær og tókst vel að því er segir í tilkynningunni. Á morgun er hliðstæður fundur á Selfossi og á föstudag í Stykkishólmi og á Suðurnesjum. Áætlað er að vinnu við svæðisáætlanir ljúki fyrir 1. september 2009. Inflúensa A (H1N1) breiðist áfram út í heiminum. Alls hafa nú verið greind 19.159 tilfelli, þar af 605 í ríkjum ESB og EFTA. Skráð dauðsföll af völdum veikinnar eru 117 talsins, þar af 97 í Mexíkó, 17 í Bandaríkjunum, 2 í Kanada og 1 í Kosta Ríka. - Á Íslandi hefur einungis eitt tilfelli sýkingar af völdum hinnar nýju inflúensu A (H1N1) verið staðfest. - Læknar eru áfram hvattir til að senda sýni til veirugreiningar samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnalæknis. - Viðbúnaðarstig hér á landi er óbreytt, þ.e. unnið er samkvæmt hættustigi. - Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur enn ekki aukið viðbúnað sinn og farið upp á sjötta og efsta stigið. Stofnunin hefur því ekki lýst yfir heimsfaraldri og jafnvel þótt hún geri það verður óbreyttur viðbúnaður hérlendis, enda inflúensufaraldurinn vægur. Nánari upplýsingar Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A (H1N1) eru birtar á influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi, einnig á landlaeknir.is og á heimasíðum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira