Stál í stál í Karphúsinu Andri Ólafsson skrifar 3. júní 2009 11:51
Fulltrúar fimm landssambanda ASÍ sitja nú á fundi í Karphúsinu og fara yfir stöðu mála í viðræðum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Mikil óvissu ríkir um framgang þeirra viðræðna en fulltrúar ASÍ og SA hafa ekki hist formlega síðan fyrir helgi. Síðan fulltrúar ASÍ og SA funduðu síðast á föstudaginn hafa aðildarfélög ASÍ hist og borið saman bækur sínar. Niðurstöðurnar eru til umræðu í þessum töluðu orðum á fundi fimm landssambanda ASÍ í Karphúsinu. Í viðræðunum er tekist á um tímasetningar launahækkana í gildandi kjarasamningi. SA hefur lagt til að taxtahækkunum, sem koma áttu til framkvæmda 1. júlí verði skipt í tvennt þannig að helmingur komi til framkvæmda þá og helmingur í nóvember. Jafnframt lögðu atvinnurekendur til að launahækkunum sem koma ættu til framkvæmda 1. janúar á næsta ári verði frestað til 1. september á því ári. Á meðal aðildarfélaga ASÍ er lítill vilji til að fresta launahækkunum frekar en orðið er og því hefur tillögum SA verið hafnað. Þannig hefur málið staðið alla hvítasunnuhelgina. Sem fyrr segir funda fulltrúar landssambanda ASÍ í Karphúsinu nú í hádeginu. Þar verða að öllum líkindum lagðar línu um hvort ganga eigi að tilboði SA eða hreinlega slíta viðræðunum. Þá hefur sá möguleiki einnig verið nefndur að landssamböndin semji hreinlega sitt í hvoru lagi. Það er að segja að sum samböndin gætu gengið að tilboði SA á meðan önnur fari í hart.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira