Fleiri fréttir

Nauðgað á hommabar í Kaupmannahöfn

Fjörutíu og þriggja ára karlmaður, sem nauðgaði 25 ára karlmanni í eldhúsi á hommabar í Kaupmannahöfn um helgina, var handtekinn skömmu síðar og dvelur nú á réttargæslugeðdeild.

Eigandi H&M kaupir breskt þorp

Sænski milljarðamæringurinn Stefan Persson, eigandi tískuverslunarkeðjunnar H og M, hefur ákveðið að kaupa heilt þorp nálægt Hampshire á Englandi.

Reglusemi skilyrði skotvopnaleyfis

Sett verða skilyrði um reglusemi til að fá skotvopnaleyfi, samkvæmt drögum nefndar að frumvarpi til nýrra vopnalaga. Þetta kemur fram í athugasemum við frumvarpið sem birtar eru á heimasíðu Skotíþróttasambands Íslands.

Karfavertíð hafin af krafti

Árleg karfavertíð er nú hafin af fullum krafti á Reykjaneshrygg og afla íslensku togararnir vel. Þar eru nú 16 íslenskir togarar að veiðum, um 30 sjómílur innan við 200 mílna fiskveiðilögsögumörkin, en 24 erlendir togarar eru að veiðum rétt utan við lögsögumörkin.

Kalla eftir frekari aðgerðum

„Okkur finnst þetta hrikalegt,“ segir Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands, aðspurður um viðbrögð við frétt blaðsins í gær um að um 2.300 manns fái ekki vinnu hjá Reykjavíkurborg næsta sumar. Stærsti hlutinn er framhalds- og háskólanemar.

Ekki farið gegn vilja kennara

„Það verður ekki farið fram gegn vilja kennara í þessum efnum. Það er mikilvægt að allar svona aðgerðir séu ákveðnar í góðri sátt og við munum ræða málin á þeim nótum,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Katrín fundar í dag með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) um hugmyndir þeirra um tímabundna fækkun lögbundinna skóladaga grunnskólanemenda.

150 plöntur í 101 Reykjavík

Kannabisræktun var stöðvuð í íbúð í miðbæ Reykjavíkur um miðjan dag á föstudag. Við húsleit fundust um 150 kannabisplöntur. Helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar.

Ekkert hótelfyrirtæki boðið samstarf

„Allar athuganir okkar af þessu tagi eru reistar á grun um brot á samkeppnislögum,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sem á miðvikudag í síðustu viku aflaði gagna með húsleitarheimild á skrifstofum þriggja hótelrekanda.

Flatskjá stolið í Gerðubergi

Innbrotstilfelli voru 22 um helgina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Brotist var inn í bíla, fyrirtæki og heimahús. Ekki var um nein stórinnbrot að ræða. Mikið hefur verið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu undanfarið.

Arðsemismat stendur þótt aðstæður breytist

Arðsemismat eigin fjár vegna Kárahnjúkavirkjunar verður ekki endurskoðað þrátt fyrir að forsendur hafi breyst gríðarlega undanfarið með lækkandi álverði. Matinu var breytt í janúar í fyrra þar sem álverð hafði hækkað umtalsvert. Í desember sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, í samtali við Fréttablaðið ekki ólíklegt að matið yrði endurskoðað. Það verður ekki.

Nýtt nafn samþykkt

Almannaheill, samtök þriðja geirans, er nýtt nafn á regnhlífarsamtökum almannaheillasamtaka, sem samþykkt var á aðalfundi samtakanna 19. maí síðastliðinn. Þau hétu áður Samtökin almannaheill.

Húsið verði fjölnota listahús

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur hreyft þeirri hugmynd að Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði nýtt betur með því að fá sem flestar listgreinar þangað inn. Hluti af þessu endurmati sé að flytja Íslenska dansflokkinn og Íslensku óperuna þangað. Með því sparist annað húsnæði. Þá sé einboðið að fá þurfi samstarfsaðila í reksturinn.

Gaf Færeyingum ævistarfið

„Það var bara mjög góð tilfinning að sjá á eftir þessu til þeirra,“ segir Magnús Magnússon kvikmyndagerðarmaður, sem gaf færeysku þjóðinni nær allt ævistarf sitt; það eru sextíu heimildarmyndir og þættir.

Upplýst umræða um ESB-aðild lykilatriði

Að fram fari upplýst opinber umræða um það sem felst í fullri aðild að Evrópusambandinu er einhver mikilvægasta forsendan fyrir inngöngu nýrrar aðildarþjóðar í sambandið. Þetta segir Graham Avery, sem starfaði um áratugaskeið í framkvæmdastjórn ESB og kom sem háttsettur fulltrúi hennar að aðildarsamningum margra ríkja, en hann er nú heiðursfélagi St.Antony‘s College við Oxfordháskóla og ráðgjafi rannsókna- og ráðgjafarstofnunarinnar European Policy Centre í Brussel.

Fyrningarleið ógnar búsetu

„Áform stjórnvalda um fyrningarleið valda óvissu um starfsgrundvöll sjávarútvegsins til framtíðar og leggst bæjarráð Fjarðabyggðar því eindregið gegn þeim,“ segir í ályktun bæjarráðs Fjarðabyggðar sem segir það vera hlutverk stjórnvalda að hlúa að starfsumhverfi sjávarútvegs og sníða annmarka af fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Ólafur Ólafsson segist fullviss um sakleysi sitt

Ólafur Ólafsson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna húsleitar sérstaks saksóknara í tengslum við kaup félagsins Q Iceland Finance ehf. á hlutafé í Kaupþing. Hann staðfestir að rannsóknaraðilar hafi lagt hald á tölvugöng sem voru í húsakynnum í hans eigu á Íslandi. Hann segst einnig fullviss um að vönduð rannsókn muni leiða í ljós algert sakleysi sitt af þeim ávirðingum sem á hann hafa verið bornar í fjölmiðlum.

Tamílar viðurkenna fall leiðtoga síns

Uppreisnarmenn Tamíl tígra á Sri Lanka hafa í fyrsta skipti viðurkenn fall leiðtoga þeirra, Velupillai Prabhakaran. Í yfirlýsingu frá tígrunum segir að hinn „óviðjafnanlegi leiðtogi“ þeirra hafi látist og þeir hafi verið í sorg undanfarna viku. Talsmaður hópsins sagði BBC einnig að nú myndu þeir hætta öllu ofbeldi í baráttunni gegn réttindum tígranna.

Göngugarpurinn á Ingólfsfjalli fundinn

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Árnessýslu og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna manns sem saknað var á Ingólfsfjalli líkt og Vísir sagði frá fyrr í kvöld.

Lögregla lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni. Ekki er vitað hvar hann heldur sig. Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu. Jón er fæddur árið 1993.

Þingmenn á Bretlandi segja af sér

Fjórir þingmenn hafa nú sagt af sér í Bretlandi vegna misnotkunar á hlunnindum. Tveir til viðbótar hafa verið reknir og sex sagt að þeir muni ekki gefa kost á sér í næstu þingkosningum.

Telur líklegt að Evróputillaga verði samþykkt

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist vera þess fullviss að þingsályktunartillaga um aðildarviðræður við Evrópusambandið verði samþykkt. Hann segir ótímabært að velta því fyrir sér hvort Samfylkingin eigi að slíta stjórnarsamstarfi við Vinstri græna verði tillagan felld.

Starfsmanni á meðferðarheimili sagt upp störfum - sætir rannsókn á kynferðisbroti

Starfsmaður á meðferðarheimli fyrir unglinga á Norðurlandi sem kærður var fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn þremur stúlkum hefur verið sagt upp störfum. Þetta staðfestir Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu í samtali við fréttastofu en rannsókn á málinu er ekki lokið. Maðurinn er grunaðru um að hafa brotið gegn stúlkunum sem voru á umræddu meðferðarheimili en maðurinn er á fertugsaldri.

Leitað að göngumanni á Ingólfsfjalli

Lögreglan ásamt björgunarsveitum af Selfossi og Hveragerði leita nú að sjötugum göngumanni sem varð viðskila við hóp sem var á fjallinu í dag. Hópurinn kom niður um hádegisbil en maðurinn skilaði sér ekki niður. Mikil þoka er á fjallinu og maðurinn ekki með búnað til þess að rata niður að sögn varðstjóra hjá lögreglu.

Ógreiddur reikningur þrefaldaðist vegna innheimtukostnaðar

Ógreiddur reikningur vegna lækniskostnaðar nærri þrefaldaðist eftir að lögfræðistofa rukkaði sjúklinginn um 12 þúsund krónur í innheimtukostnað. Gjörsamlega siðlaust, segir sjúklingurinn sem ætlar ekki að greiða innheimtukostnaðinn.

Rosalega flott

Þessi frétt er eiginlega skrifuð bara vegna þess hvað það er rosalega flott mynd sem fylgir henni.

Hoppaðu þá helvítið þitt

Reiður vegfarandi hrinti í vikunni manni fram af brú í Gunagzhou í Kína. Maðurinn sagðist ætla að fremja sjálfsmorð vegna skulda en hafði staðið á brúarhandriðinu í fimm klukkustundir.

Vilja lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára

Hátt í sex þúsund manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem vill lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára. Á síðu hópsins segir að sjálfræðisaldurinn á Íslandi sé 18 ára en ekki megi kaupa áfengi þó þeim aldrei séð náð. Kosningarétt fá þeir sem eru 18 ára og þeir verða einnig fjárráða við þann aldur. Þú mátt skuldbinda þig annarri manneskju við 18 ára aldurinn en mátt ekki skála í tilefni dagsins segir á síðunni.

Dorrit með Rolls Royce í Rússlandi

Associated Press fréttastofan hefur birt meðfylgjandi mynd af Dorrit Moussaieff forsetafrú ásamt stjórnarformanni Rolls Royce, þar sem þau eru í Sankti Pétursborg í Rússlandi.

Grunur um tvö svínaflensutilfelli í viðbót

Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A (H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni nú í dag. Það hafa því tvö tilfelli bæst við en í gær lék grunur á að fjórir fjölskyldumeðlimir mannsins hefðu smitast.

Meiri reiði í fólki nú en í Búsáhaldabyltingunni

Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar tók sæti á Alþingi nú eftir kosningar. Hann var virkur þátttakandi í hinni svokölluðu Búsáhaldabyltingu og má segja að hún hafi komið honum inn á þing. Hann segir að fólk hringi í sig oft á dag uppfullt af reiði og sé tilbúið til þess að gera hvað sem er. Hann segir meiri reiði í fólki nú en í Búsáhaldabyltingunni.

Geimferjan getur ekki lent í Flórída

Geimferjan Atlantis hefur enn ekki getað lent í Flórída vegna veðurs. Hún er nú búin að vera í geimnum tveim sólarhringum lengur en áætlað var. Í Flórída er lágskýjað og rok og rigning.

Öryggisgæsla Bretadrottningar brást

Talsmaður bresku konungsfjölskyldunnar segir að verið sé að rannsaka fréttir þess efnis að blaðamönnum frá slúðurblaðinu News of The World hafi tekist að komast inn í íbúð Elísabetar drottningar í Lundúnum.

Harðar loftárásir í Pakistan

Pakistanskar orrustuþotur gerðu í dag harðar loftárásir á víghreiður talibana í Orkazi héraði. Jafnframt börðust hermenn við talibana á jörðu niðri í stærsta bænum í Swat héraði.

Fangageymslurnar fullar hjá lögreglu

Fimmtán aðilar gista nú fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og eru þær nánast fullar að sögn varðstjóra. Ellefu gistu í nótt en fjórir bættust við í morgun. Töluverður erill var í bænum í nótt enda margir stúdentar að útskrifast í gær. Engar alvarlegar líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu en nokkuð var um smá pústra.

Vilja ræða við grunaðan barnaníðing

Foreldrar Madeleine McCann hafa biðlað til grunaðs barnaníðings að „sýna skilning" og vinna með einkaspæjara sem skoðar málið. Einkaspæjarateymi hjónanna vill fá að yfirheyra hinn 64 ára gamla Raymond Hewlett á næstu dögum með von um að hann geti varpað ljósi á hvarf dóttur þeirra úr sumarfríi í Portúgal í maí 2007.

Býst við fleiri svínaflensutilfellum hér á landi

Fyrsta tilfelli H1N1-flensu, svokallaðri svínaflensu, hefur verið staðfest hér á landi. Sóttvarnalæknir gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi Íslendinga greinist með flensuna á næstu vikum og mánuðum. Smitið barst hingað frá Bandaríkjunum og beðið er niðurstöðu rannsókna á fjórum einstaklingum til vibótar.

Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu framdi sjálfsmorð

Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu hefur framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af klettum skammt frá heimili sínu. Í bréfi sem hann skildi eftir sig bað hann um að lík hans yrði brennt. Þar segir einnig að áframhaldandi líf hans yrði aðeins byrði fyrir aðra.

Vel mætt í Þvottalaugagönguna

Fjöldi borgarbúa tók þátt í Þvottalaugagöngunni LAUGA VEGURINN 2009 - gengið á vit sögunnar sem Listahátíð í Reykjavík og listamannahúsið START ART stóðu fyrir í dag. Um var að ræða glæsilegan gjörning tileinkaður þeim konum sem þvoðu þvott í gömlu þvottalaugunum í Laugardal. Safnast var saman við útitaflið í Lækjargötu þar sem nemar í Listaháskóla Íslands, uppáklæddir eins og þvottakonur klæddust fyrr á öldum, brugðu á leik með þvottahrúgu og harmonikkusveitin Vaskar Konur spiluðu harmonikkulög.

Sjá næstu 50 fréttir