Allir sem fylgst var með fái miskabætur 11. mars 2009 06:00 Vilhjálmur Vilhjálmsson
Lögmaður manns sem fékk dæmdar 250 þúsund króna bætur vegna ólöglegs eftirfararbúnaðar lögreglu segir það standa upp á yfirvöld að bæta öllum þeim skaðann sem hinu ólögmæta úrræði var beitt gegn. Úrræðið, staðsetningarbúnaður sem notaður er til að fylgjast með ferðum fólks, rataði í reglur frá ríkis-saksóknara um sérstakar rannsóknar-aðferðir lögreglu árið 1999. Það átti sér hins vegar ekki stoð í lögum fyrr en nú um síðustu áramót og var fram að því ólöglegt, samkvæmt úrskurði héraðsdóms, og raunar áður dóms Hæstaréttar einnig. Lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson segir að ætla verði að búnaðurinn hafi verið notaður sem almennt rannsóknarúrræði hjá lögreglu frá 1999 hið minnsta. „Við erum því að tala um að búnaðurinn hefur verið notaður með ólöglegum hætti, og brotið þannig á rétti íslenskra ríkisborgara, í tæp tíu ár,“ segir hann. „Ég tel að það hvíli ótvíræð skylda á ríkisvaldinu að láta fara fram nákvæma könnun á því í hversu mörg skipti þessi ólögmæti eftirfararbúnaður hefur verið notaður og að hverjum aðgerðirnar hafa beinst,“ segir Vilhjálmur. „Síðan þarf að upplýsa viðkomandi um það að svona búnaður hafi verið notaður til að fylgjast með þeim og benda þeim á rétt þeirra til að sækja skaðabætur eða bjóða fram skaðabætur að fyrra bragði,“ segir hann. Nauðsynlegt sé að yfirvöld hafi frumkvæði að því vegna þess að þeir sem hafa sætt eftirfylgninni viti ekki endilega af því sjálfir. Eiríkur Tómasson lagaprófessor er ekki á sama máli og Vilhjálmur. „Ég get ekki séð að það sé nokkur lagaskylda sem hvílir á ríkinu að gera þetta en auðvitað getur ríkið gert þetta ef það þykir rétt,“ segir hann. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segist munu bíða með viðbrögð við málinu þar til ljóst verður hvort ríkislögmaður áfrýjar dómnum til Hæstaréttar. Stefán Eiríksson lögreglustjóri tekur í sama streng og Ragna, en bendir þó á að reglur ríkissaksóknara um eftirfararbúnaðinn séu byggðar á niðurstöðum skýrslu frá árinu 1999 sem unnin var af fulltrúum lögreglu- og ákæruvalds, auk Bjargar Thorarensen, nú prófessors í stjórnsýslurétti, og Atla Gíslasonar, nú þingmanns Vinstri grænna. Mat skýrsluhöfunda hafi verið að ekki þyrfti dómsúrskurð fyrir notkun eftirfararbúnaðar af þessu tagi, þótt héraðsdómur hafi nú komist að annarri niðurstöðu. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira