Innlent

Stjórnin pukrast að mati Geirs

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ríkisstjórnina hafa pukrast með breytingar á stjórnarskránni.

Málið var rætt á Alþingi í gær en forsætisráðherra mælti fyrir því á föstudag.

Geir sagði það rangt sem stjórnarliðar héldu fram að haft hefði verið samráð við Sjálfstæðisflokkinn um málið. Honum hafi jú verið sýnt blað með málinu en ekki gefinn kostur á að gera við það athugasemd. Aukinheldur hafi málinu verið breytt í þrígang áður en það var lagt fram.

- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×