Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stórbruni í Síðumúla 34 - Bein útsending Mikill eldur braust út í Síðumúla 34 í Reykjavík. Slökkviliðið sendi allt tiltækt lið á vettvang. Í húsinu eru meðal annars fyrirtækin Ferskar kjötvörur, Adagio hárstofa og Mótorsport. 10.3.2009 16:02
Segir NTC borið röngum sökum Svava Johansen eigandi tískukeðjunnar NTC segir að eigendur E-Label beri fyrirtæki sitt röngum sökum þegar því hefur verið haldið fram að NTC hafi látið stoppa framleiðslu E-Label. 10.3.2009 15:59
Ábyrgir foreldrar kæra Blátt áfram Félag ábyrgra foreldra á Akureyri hafa lagt inn kæru til sýslumanns á Akureyri á hendur forsvarmanni Blátt áfram, Sigríði Björnsdóttur, þar sem hún er sökum um lögbrot við fjársöfnun. Að auki kærir félagið Önnu Hermínu Gunnarsdóttur fyrir sama brot, en hún er ótengd Blátt áfram. 10.3.2009 15:25
Heimilt að taka út séreignasparnaðinn Frumvarp um útgreiðslu séreignarsparnaðar var samþykkt á Alþingi í dag með 44 samhljóða atkvæðum. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fólk geti tekið út í áföngum séreignasparnað sinn, að hámarki einni milljón króna. 10.3.2009 14:49
Mannskæð sjálfsmorðsárás í Bagdad Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir sjálfsmorðsárás sem gerð var í Abu Ghraib hverfinu í vesturhluta Bagdad í Írak í dag. 46 eru særðir og á meðal látinna er háttsettur hershöfðingi í íraska hernum. Árásin var gerð þegar hátt settir menn í írösku þjólífi komu saman á ráðstefnu sem ætlað var að sætta stríðandi fylkingar í landinu. 10.3.2009 14:33
Kaupir bækur af sjálfum sér fyrir stuðningsaðila Barnaspítalans Góðgerðarfélagið Stoð og styrkur hefur undanfarið hringt í einstaklinga og beðið um fjárframlög fyrir Barnaspítala Hringsins. Söfnunin er ekki á vegum Hringsins heldur er gerð í samráði við stjórnendur Barnaspítalans. Karl Helgason forsvarsmaður góðgerðarfélagsins segist hafa unnið í sjálfboðavinnu fyrir félagið frá árinu 1998. Þeir sem leggja hærri upphæð en 2.500 krónur í söfnunina fá bók sem þakklætisvott. Góðgerðarfélagið kaupir bækurnar af Bókaútgáfu Æskunnar, sem er að hluta til í eigu Karls Helgasonar. 10.3.2009 13:53
Kjartan Ólafsson: Vill selja listaverk bankanna Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, vill að listaverkasafnið sem nýverið komst í hendur ríkisins þegar bankarnir hrundu, verði selt. Í áskorun til forsætisráðherra segir hann að á þessum þrengingatímum þurfi Íslendingar að leita allra skynsamlegra leiða til að afla fjármagns svo ríkisvaldið geti komið til bjargar fólki og fyrirtækjum í landinu. „Nægir þar ekki að horfa eingöngu til hefðbundinna tekjustofna heldur verðum við jafnframt að leita nýrra leiða,“ segir þingmaðurinn. 10.3.2009 13:44
Dæmdur fyrir hnífstungu: Útilokar ekki að stinga litaðan mann aftur Hinn átján ára gamli Ari Dagur Sigurðsson var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að stinga mann í bakið í verslun 10-11 á nýársdag. Ari stakk mann ef erlendum uppruna vegna orðaskipta en í dómsorði hélt Ari því fram að maðurinn hefði verið með ógnandi tilburði. Þá hafi Ari lagt til hans með hnífnum. 10.3.2009 13:33
Eva Joly kölluð til hjálpar Eva Joly, sem kölluð hefur verið einn fremsti rannsakandi efnahagsbrota í heiminum, hefur verið ráðinn sérstakur ráðgjafi ríkisstjórnarinnar. Joly, sem gat sér gott orð í ELF málinu í Frakklandi á sínum tíma, mun veita ríkisstjórninni og þeim aðilum sem rannsaka aðdraganda bankahrunsins ráðgjöf á komandi misserum. 10.3.2009 13:21
Brunabíla-Ragnar dæmdur til að greiða fimm milljónir Fyrrum skemmtistaðaeigandinn Ragnar Magnússon, stundum kallaður Brunabílaragnar, var dæmdur, ásamt konu, bróður og föður, til þess að greiða Ölgerð Egils Skallagrímssonar fimm milljónir vegna ógreiddra reikninga. 10.3.2009 12:48
Íslenskt skip á sjóræningjaslóðum Fiskiskipið Skinney SF, sem er á leið frá Taiwan til Hornafjarðar, mun næstu þrjá sólarhringana sigla í herskipavernd meðfram ströndum Sómalíu, þar sem sjóræningjar hafa herjað á skip síðustu misserin. 10.3.2009 12:22
Biden segir Afganistan ógn við hinn vestræna heim Varaforseti Bandaríkjanna segir að síversnandi ástandið í Afganistan sé ógn við allan hinn vestræna heim. Joe Biden sat í dag fund í höfuðstöðvum NATO í Brussel þar sem hann hvatti aðildarþjóðirnar til þess að hjálpa Bandaríkjamönnum að koma böndum á Talibana í Afganistan. 10.3.2009 12:18
Dræm þátttaka í VR kosningum Aðeins um fimmtungur félagsmanna í VR hefur tekið þátt í kosningum um formann, stjórn og trúnaðarráð félagsins.Kosningunum lýkur á hádegi á morgun. 10.3.2009 12:15
Össur: Jón Magnússon leiðir Sjálfstæðisflokkinn Össur gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega í bloggfærslu sem hann birtir á Eyjan.is en þar segir hann að Jón Magnússon, fyrrum þingmaður Frjálslynda flokksins, nú Sjálfstæðisflokksins, leiði málþóf á lágu plani. Og það sem meira er; flokkinn sjálfan. 10.3.2009 10:12
Vísbendingar um að brennisteinninn skemmi mosann Vísbendingar eru um að brennisteinsvetni eigi þátt í þeim mosaskemmdum sem orðið hefur vart við í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar. Þetta kemur fram í rannsókn sem Orkuveitan lét framkvæma en hún leiddi í ljós að ekki er unnt að fullyrða með óyggjandi hætti að brennisteinsvetni sé að drepa mosa næst Hellisheiðarvirkjun. 10.3.2009 10:07
Mörg þúsund myndbönd tekin af YouTube í kvöld Mörg þúsund tónlistarmyndbönd verða fjarlægð af myndskeiðavefnum YouTube í kvöld þar sem samningar náðust ekki við eigendur höfundarréttar. 10.3.2009 08:13
Haukur Björnsson hættur hjá Eskju Haukur Björnsson, sem hefur starfað hjá Eskju á Eskifirði í 35 ár, þar af sem framkvæmdastjóri í fjögur ár, hefur látið af störfum. 10.3.2009 08:07
Segir handritshöfundum hafa farið aftur Höfundur margra þekktustu setninga kvikmyndanna segir handritshöfundum hafa farið mjög aftur. 10.3.2009 07:27
Farsímar á sjúkrahúsum sýklabrunnur Farsímar starfsfólks á sjúkrahúsum eru oft þaktir sýklum sem geta haft slæm áhrif á heilsufar sjúklinga sem starfsfólkið umgengst. Þetta sýnir tyrknesk rannsókn sem fram fór á sjúkrahúsi í Samsun í Tyrklandi. 10.3.2009 07:26
Spá 9,4 prósenta atvinnuleysi vestra Búist er við að atvinnuleysi í Bandaríkjunum nái 9,4 prósentum á þessu ári og verði áfram mikið, að minnsta kosti út árið 2011 samkvæmt spá sem fréttavefurinn Bloomberg greinir frá. 10.3.2009 07:23
Áttræð sýningardama lætur engan bilbug á sér finna Elsta tískusýningarstúlka Bretlands fagnar áttræðisafmæli sínu um þessar mundir og hefur verið tæp 60 ár í sýningarbransanum. Þetta er Daphne Selfe sem sýnir föt meðal annars fyrir Dolce & Gabbana og á orðið fjögur barnabörn. 10.3.2009 07:21
Lögreglumaður skotinn til bana á Norður-Írlandi Lögreglumaður var skotinn til bana í bæ skammt frá Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Hann var í útkalli þegar atvikið átti sér stað. 10.3.2009 07:16
Ræningja enn leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manns, sem framdi vopnað rán í söluturni í Seljahverfi í Reykjavík um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Hann ógnaði afgreiðslustúlku með hnífi og komst undan með nokkra fjármuni, en vann stúlkunni ekki mein. 10.3.2009 07:14
Nældi sér í buxur í kvenfataverslun Brotist var inn í kvenfataverslun í Mörkinni í Reykjavík í nótt og þaðan stolið nokkrum kvenbuxum og skúffum úr sjóðsvélum, með skiptimynt í. Þjófurinn braut sér leið inn í verslunina með því að brjóta rúðu með gangstéttarhellu. 10.3.2009 07:12
Stjórnarandstaðan sökuð um málþóf Til snarpra orðaskipta kom hvað eftir annað á Alþingi í gærkvöldi við þriðju og síðustu umræðu um frumvarp um útgreiðslu á séreignarsparnaði, sem stóð fram yfir miðnætti. 10.3.2009 07:07
Urðu óvænt að ólöglegum innflytjendum Hópur Letta og Eista af slavneskum uppruna fékk fyrir misskilning réttindi á Íslandi á við þegna á EES-svæðinu. Sumir voru búnir að koma börnum sínum í skóla þegar upp komst um misskilninginn og þeim var gert að fara úr landi. 10.3.2009 06:00
Krefur Fréttablaðið um 5 milljónir Björk Eiðsdóttir, blaðamaður á Vikunni, hefur hótað ritstjórum Fréttablaðsins málshöfðun vegna ummæla um hana sem birtust í Fréttablaðinu 6. mars síðastliðinn. Ummælin voru höfð beint eftir Ásgeiri Davíðssyni, eiganda nektardansstaðarins Goldfinger. Björk krefst fimm milljóna króna í miskabætur, ella fari hún í mál. 10.3.2009 05:30
Lögmæti Portus-kaupa kannað Fjárlaganefnd Alþingis ákvað í gær að fá álit Ríkisendur-skoðunar á því hvort yfirtaka Austurhafnar á framkvæmdum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík samræmist lögum. Er sjónum beint að fjárreiðulögum og tilteknum heimildum í fjárlögum. 10.3.2009 05:30
Mikið tilstand við að leiðrétta frétt Talsvert tilstand varð í íslensku stjórnsýslunni eftir að viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson forseta birtist í þýska Financial Times 10. febrúar. Fyrirsögn viðtalsins var á þá leið að innstæður Þjóðverja hjá Kaupþingi væru glataðar og var haft eftir Ólafi að þar sem Íslendingar hefðu tapað öllu væri ekki hægt að bjóða þeim upp á að þurfa að borga tap þýskra sparifjáreigenda. 10.3.2009 05:15
Telja að kröfuhafar hafi verið blekktir Lögmenn Glitnis og Íslandsbanka halda því fram að Baugur Group hafi meðvitað reynt að blekkja kröfuhafa í tengslum við greiðslustöðvun. Algerlega staðlausir stafir, segir lögmaður Baugs. Misskilningur, segir fjármálastjóri félagsins. 10.3.2009 05:00
Straumur gagnrýnir FME Heimildir innan Straums gagnrýna framgöngu Fjármálaeftirlitsins við yfirtöku bankans. FME og fjármálaráðherra segja Straum bjaga atburðarásina. „Það setur að mér ugg“, segir stjórnarformaður FME. 10.3.2009 05:00
Efnahagsbrotadeild fær gögn Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er heimilt, samkvæmt dómi Hæstaréttar, að fá gögn um sölu fjögurra flugvéla, sem áður voru í eigu eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf. Félagið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. 10.3.2009 04:45
Obama hefur afnumið bann Barack Obama Bandaríkjaforseti felldi í gær úr gildi bann við því að ríkið styrkti rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum. Forveri hans í embætti, George W. Bush, hafði sett þetta bann í lög af trúarástæðum. Obama sagðist lofa því að engar vísindarannsóknir yrðu framar „afbakaðar eða hafðar í felum til þess að þjóna pólitískum markmiðum“. Obama undirritaði tilskipun um málið í Hvíta húsinu, og var salurinn fullur af vísindamönnum sem fögnuðu ákaft þessum tímamótum. Stuðningsmenn stofnfrumurannsókna telja mögulegt að þær leiði af sér lækningu á ýmsum alvarlegustu sjúkdómum mannkyns.- gb 10.3.2009 04:45
Vikið af vegi sáttar við lagabreytingar Grundvallarlögum er breytt án þverpólitískrar sáttar. Rík hefð er fyrir samstöðu um breytingar á stjórnarskrá og lögum um Seðlabankann og kosningar. 10.3.2009 04:45
Skorar á aðra frambjóðendur Tryggvi Þór Herbertsson, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur birt upplýsingar um fjárhagsleg tengsl sín, og skorar á aðra stjórnmálamenn að gera slíkt hið sama. 10.3.2009 04:30
Lifa bara fyrir náð og miskun „Við erum undir náð og miskunn opinberra aðila komnir, við getum ekki þrætt fyrir það,“ segir Agnar Hansson, bankastjóri Sparisjóðbankans. Bankinn átti 150 milljarða króna kröfur í föllnu bönkunum. Kröfuhöfum á Sparisjóðabankann var í febrúar kynnt áætlun um niðurfellingu skulda, lengingu lána og breytingu krafna í hlutafé. Bankinn hefur einu greiðslumiðlunargáttina við útlönd fyrir utan Seðlabankann. 10.3.2009 04:30
Byrjað að yfirheyra embættismenn Rannsóknarnefnd um bankahrunið hefur hafið skýrslutökur af lykilmönnum úr stjórnsýslunni til að afla sér upplýsinga um orsakir og aðdraganda hrunsins. Verkið er seinunnið, segir formaðurinn Páll Hreinsson. 10.3.2009 04:30
Jóhanna býst við lækkun í næstu viku Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gerir ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir í næstu viku en næsti vaxtaákvörðunardagur er fimmtudaginn 19. mars. 10.3.2009 04:15
Eftirfararbúnaður ólöglegur Íslenska ríkið hefur verið dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni 250 þúsund krónur í miskabætur vegna eftirfararbúnaðar lögreglu sem maðurinn fann undir bíl sínum í nóvember 2007. Maðurinn hafði krafist tíu milljóna úr ríkiskassanum. 10.3.2009 04:15
Björgólfur tapar 39 milljörðum Hluthafar Straums tapa langmestu af ríkisvæðingu bankans í gær eða um 17,7 milljörðum króna. Óvissa er um kröfur lánadrottna, sem flestir eru erlendir. Líklegt er að þeir fái upp í kröfur sínar nema eignir fari á brunaútsölu. 10.3.2009 04:15
Sonur Kims er ekki á þinginu Norður-Kóreustjórn skipaði hersveitum sínum að vera í viðbragðsstöðu í gær og hótaði „stríði“ ef önnur ríki reyna að skjóta niður gervihnött, sem hún sagðist ætla að skjóta á loft. 10.3.2009 04:15
Kúgaði fé út úr ríkum konum Helg Sgarbi, 44 ára gamall svikahrappur sem nú er jafnan nefndur „svissneski flagarinn“ viðurkenndi fyrir dómi að hafa svikið milljónir evra út úr fjórum auðugum konum. 10.3.2009 04:00
Salmonella í kjúklingahópi Rökstuddur grunur er um að salmonella hafi greinst í einum kjúklingahópi Reykjagarðs. Jarle Reiersen dýralæknir segir þetta hafa komið upp í reglubundnu eftirliti með salmonellu í kjúklingaslátrun. Í hópnum sem slátrað var voru um 9.700 fuglar. 10.3.2009 03:30
Rændi sjoppu í Seljahverfi vopnaður hnífi Hettuklæddur karlmaður rændi söluturninn Allt í einu í Jafnaseli 6 í Seljahverfi í Reykjavík fyrr í kvöld. Maðurinn kom vopnaður hnífi inn í söluturnin laust fyrir klukkan hálf níu og ógnaði þar starfsstúlkum, að sögn lögreglu. Ræninginn fékk stúlkurnar til að afhenda sér þá fjármuni sem voru í peningakassa og hljóp í framhaldinu út úr söluturninum. 9.3.2009 22:10
Birgir: Vinstri grænir tala meira en sjálfstæðismenn Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þingmenn Vinstri grænna hafi talað meira að meðaltali en þingmenn Sjálfstæðisflokksins á yfirstandandi kjörtímabili. 9.3.2009 21:54