Fleiri fréttir

Ákjósanlegt að einn banki verði ekki í ríkiseigu

Það er ákjósanlegast að einn af þremur stóru bönkunum verði á hendi annarra en ríkisins, sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á blaðamannafundi sem hann og Geir H. Haarde forsætisráðherra héldu á nú klukkan fimm.

Fundað um stöðu Íslands í tengslum við Norðurlandaráðsþing

Forsætisráðherrar norrænu ríkjanna hyggjast hittast á fundi í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Finnlandi í lok mánaðarins til þess að ræða fjármálakreppuna og sérstaklega stöðu Íslands um þessar mundir. Þetta kom fram í máli Geirs. H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Iðnó fyrir stundu.

Getur vel verið að mistök hafi verið gerð

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að vel geti verið að gerð hafi verið mistök á síðustu misserum en hann telji að íslensku bankarnari hefðu átt möguleika á að komast í gegnum erfiðleikana ef lausafjárkreppan hefði ekki skollið á af jafnmiklum þunga hér á landi og raun bar vitni. Hann sagði enn fremur að framferði Breta hefði verið tekið upp á vettvangi NATO af hálfu Íslendinga.

Framsýn stéttarfélag: Auðmenn axli ábyrgð

Framsýn-stéttarfélag á Húsavík hvetur til samstöðu meðal þjóðarinnar um að takast á við þann mikla efnahagsvanda sem blasir við almenningi á Íslandi. Hrun efnahagslífsins mun koma illa við marga, ekki síst verkafólk, ellilífeyrisþega og öryrkja. Framsýn hefur sérstakar áhyggjur af stöðu þessa fólks á þessum miklu óvissutímum.

Ríkissaksóknari rannsakar starfsemi bankanna

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið ríkissaksóknara að hafa forystu um að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana. Þetta kom fram í ræðu ráðherra á Alþingi í dag.

Jóhanna: Endurskoða stjórnarsáttmála með tilliti til ESB

,,Við verðum öll að skoða aðild að Evrópusambandinu með opnum hug," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í umræðum á Alþingi fyrir stundu. Reyna verði á aðildarviðræður þar sem þjóðin hefur úrslitavald um inngöngu.

Hverjir stungu umdeildri skýrslu ofan í skúffu?

Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna spurði margra spurninga í snarpri ræðu sinni á Alþingi fyrir stundu. Katrín talaði meðal annars um skýrslu tveggja breskra hagfræðinga sem unnin var fyrir Landsbankann en var stungið ofan í skúffu þar sem hún þótti of viðkvæm.

Þorgerður vill læra af reynslu Finna

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra, vill að Íslendingar læri af reynslu Finna og fjárfesti í menntun til framtíðar. Þetta sagði hún við umræður um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag. Þorgerður benti á að Finnar hefðu líkt og Íslendingar lent í bankakreppu undir lok síðustu aldar og þá veðjað á menntunþ. Það hefðii borgað sig því vöxtur finnska hagkerfisins hefði verið mikill á síðustu árum þar sem hátækni hefði skipað æ meiri sess.

Spyr hvort von sé á meiru og þá hvaðan

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um stöðu bankakerfisins að fjölmörgum spurningum væri enn ósvarað.

Svarfdælar fresta áformum um að breyta sparisjóðnum í hlutafélag

Stjórn Sparisjóðs Svarfdæla hefur ákveðið að fresta öllum áformum um hlutafélagsvæðinu sjóðsins um óákveðinn tíma. Þetta er tilkynnt í bréfi til stofnfjáreigenda sjóðsins. Jafnframt er í bréfinu undirstrikað að áframhaldandi rekstur Sparisjóðs Svarfdæla í óbreyttri mynd er ekki í hættu, þrátt fyrir áföll að undanförnu í fjármálalífi landsins, að .því er fram kemur í tilkynningu frá sjóðnum.

Mjólkin hækkar um tíu prósent

Mjólk og mjólkurafurðir hækka um rúm tíu prósent fyrsta nóvember næstkomandi, eða sem samsvarar um tíu krónum á mjólkurlítra. Í tilkynningu frá verðlagsnefnd búvara kemur fram að ástæður hækkunarinnar séu hækkanir á aðföngum í mjólkuriðnaði og búvöruframleiðslu.

Lífeyrissjóðirnir bíða svars frá stjórnvöldum

„Síðast þegar ég vissi var svarið ekki komið, en það hlýtur að fara að koma,“ segir Árni Guðmundsson framkvæmdarstjóri Gildi lífeyrissjóðs en fimm stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa sent yfirvöldum erindi um hugsanlega yfirtöku á innlendri starfsemi Kaupþings.

Björgvin boðar hispurslaust uppgjör

Björgvin G. Sigurðsson þakkaði landsmönnum fyrir vel unnið verk á síðustu dögum í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann sagði afrek hafa verið unnin þegar tókst að halda bankakerfinu gangandi þrátt fyrir efnahagshrunið. Á sama tíma hefðu landsmenn allir haldið stillingu sinni og sýnt æðruleysi frammi fyrir vandanum sem við er að etja. Hann segir mikilvægt að hispurslaust uppgjör fari fram.

Blaðamannafundur í beinni

Forsætisráðuneytið hefur boðað til blaðamannafundar í Iðnó kl. 17.00 í dag. Fundurinn er í þetta skiptið einungis ætlaður innlendum blaðamönnum. Næsta víst að umræðuefni fundarins verði, líkt og á fjölda blaðamannafunda í síðustu viku, um stöðu efnahagsmála.

Aðgerðir Breta mannréttindabrot af verstu sort

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum fyrirtækjum mannréttindabrot af verstu sótt og vill að breska ríkisstjórnin verði kærð hið fyrsta.

Efnahagráðgjafi ríkisstjórnarinnar hættur

Tryggvi Þór Herbertsson sem verið hefur efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar undanfarið hefur látið af störfum. Tryggvi var ráðinn til sex mánaða en starfaði einungis í tvo og hálfan mánuð. Hann segir að um sé að ræða samkomulag tveggja manna sem gert hafi verið í miklu bróðerni.

Ríkisstjórnin kannar grundvöll málshöfðunar á hendur Bretum

Ríkisstjórnin hefur falið breskri lögmannssstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum vegna þeirra aðgerða sem þau gripu til í síðustu viku gegn íslenskum fyrirtækjum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem flutti munnlega skýrslu um stöðu bankakerfisins.

Haider var drukkinn þegar hann keyrði á

Austurríski öfga hægri maðurinn Joerg Haider var undir áhrifum áfengis þegar hann lést í bílslysi á laugardag. Stefan Petzner, sem tók við af Haider sem nýr formaður Austurríska framtíðarflokksins, staðfesti þetta í samtali við Reuters fréttastofuna.

Segir fjárlagafrumvarpið ekki ónýtt plagg

Forsætisráðherra segir fjárlagafrumvarpið ekki ónýtt plagg eftir atburði síðustu daga. En að það eigi eftir að taka breytingum í meðförum þingsins.

,,Af hverju segir Ingibjörg ekki bara niður með Ísland?"

Það er einföldun að draga þá ályktun að Íslendingar eigi sér enga aðra leið en að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir efnahagsaðstoð, að mati Bjarna Harðarsonar þingsmanns Framsóknarflokksins. Honum hugnast ekki yfirlýsingar forystumanna Samfylkingarinnar og framamanna í þjóðfélaginu.

Flugræninginn var fyllibytta

Maður sem ætlaði að ræna tyrkneskri farþegaflugfél í morgun reyndist óvopnaður og sauðölvaður.

Uppsagnir í takti við það sem búist var við

„Þetta er auðvitað áfall, en í ljósi aðstæðna kannski sú tala sem við bjuggumst við,“ segir Anna Karen Hauksdóttir, formaður starfsmannafélags Glitnis. 97 starfsmenn gamla Glitnis misstu vinnuna í kjölfar þess að Nýi Glitnir tók til starfa í dag.

Enginn lyfjaskortur í landinu

Ekki er hætta á því að nauðsynleg lyf verði uppurin. Lyfjabirgðir Landspítalans eru í eðlilegu horfi og forsvarsmenn lyfjafyrirtækja bera sig nokkuð vel.

Geir flytur ræðu um stöðu bankakerfisins á Alþingi

Fyrsta pólitíska umræðan um efnahagsástandið í landinu eftir hrun bankanna þriggja fer fram á Alþingi í dag. Þingfundur hefst klukkan hálftvö, en þá flytur Geir H. Haarde forsætisráðherra skýrslu um stöðu bankakerfisins.

Búa sig undir stóraukin umsvif bruggara í kreppunni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti umfangsmikla bruggstarfssemi í bakhúsi við Laugaveg í gærkvöldi. Lögreglumenn búa sig undir stóraukin umsvif bruggara þegar þrengir að efnahag almennings.

Hundruð milljóna föst í kerfinu

Illa gengur hjá útflutningsaðilum að fá greitt fyrir vörur sínar þar sem erlendir bankar hafa margir fryst greiðslur hingað til lands. Talið er að mörg hundruð milljónir króna séu fastar í kerfinu.

Frekari lækkun stýrivaxta fer eftir gengisþróun

Stýrivaxtalækkun Seðlabankans kemur Gylfa Magnússyni, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, ekki á óvart. Aftur á móti sé Seðlabankanum þröngur stakkur sniðinn því hann geti í rauninni ekki haft stýrivexti undir verðbólgu, að mati Gylfa.

Vilhjálmur Egilsson: Fagna þessum fyrstu skrefum

„Ég fagna því mjög að bankinn skuli vera kominn á þessa braut. Þetta eru fyrstu skrefin og það fylgja vonandi fleiri í kjölfarið,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um stýrivaxtalækkun Seðlabankans. „Ég hef talið óvarlegt að hafa muninn á milli Íslands og evrusvæðisins meiri en þrú prósent og þangað liggur leiðin,“ segir Vilhjálmur.

Brown vill breyta IMF

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, vill að starfsemi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði endurskipulögð í þeirri viðleitni að koma betra skikki á hið alþjóðlega fjármálakerfi og forða því að lausafjárkreppa lík þeirri sem nú ríkir endurtaki sig.

Nýr Glitnir tekur til starfa

Nýr Glitnir tók til starfa í morgun undir stjórn Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Glitnis. Þetta staðfesti Árni Tómasson, formaður skilanefndar bankans, í samtali við fréttastofu.

Sjá næstu 50 fréttir