Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikil loftmengun í Peking Gríðarleg loftmengun er í Peking sem sérfræðingar segja að geti haft áhrif á árangur keppenda á Olympíuleikunum sem hefjast 8. ágúst. 28.7.2008 20:30
Þingmaður vill að Brown víki Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur mistekist og hann á að segja af sér, að mati Gordon Prantice þingmanns Verkamannaflokksins. Prentice er annar þingmaður flokksins sem opinberlega hefur farið fram á afsögn Browns. 28.7.2008 19:45
Tollar á erlendum landbúnaðarvörum lækka hugsanlega Innflutningur á erlendum landbúnaðarvörum eykst og tollar lækka ef skrifað verður undir samninga í Doha viðræðunum í Genf í Sviss. Þetta ætti að skila sér í lægra verði á kjöt- og mjólkurvörum hér á landi. 28.7.2008 19:15
Heyrnarlausum tækniteiknara synjað um vinnu 70 sinnum Þrítugum tækniteiknara, sem er heyrnarlaus, hefur verið synjað um vinnu hátt í sjötíu sinnum. Hann segir heyrnalausa ekki fá vinnu vegna fordóma. 28.7.2008 18:30
Lögreglan handtók sjö meðlimi Saving Iceland Lögreglan handtók sjö félaga í Saving Iceland sem stóðu fyrir mótmælum á Hengilssvæðinu í morgun. Samtökin stöðvuðu vinnu við eina af helstu jarðhitaborholum á svæðinu. Hinir handteknu eru frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Belgíu, Danmörku, Hollandi og Svíþjóð. 28.7.2008 17:30
Munu líklega áfrýja Kastljósdómi Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Birnis Orra Péturssonar og Luciu Celeste Molina Sierra segir að allar líkur séu á því að dómi Héraðsdóms Reykjavíkur verði áfrýjað. 28.7.2008 16:55
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur yfir Þorsteini Kragh og Hollendingnum Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tónleikahaldaranum Þorsteini Kragh og Hollendingi sem grunaðir eru um umfangsmikið smygl á fíkniefnum til landsins með Norrænu um miðjan júní. 28.7.2008 16:27
Kastljós sýknað af ásökunum um ærumeiðingar Páll Magnússon útvarpsstjóri og ritstjórn Kastljóss voru sýknuð, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, í meiðyrðamáli sem Lucia Celeste Molina Sierra, tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, og Birnir Orri Pétursson sonur Jónínu höfðuðu gegn þeim. 28.7.2008 16:02
Fornleifuppgröftur í vetur Hugsanlega gætu fornminjar frá Landnámsöld leynst undir Alþingisreitnum við Kirkjustræti. Fornleifafræðingar ætla að beita óvenjulegum aðferðum til að rannsaka svæðið í vetur. 28.7.2008 19:15
Brotist inn í bíla í Reykjavík Brotist var inn í sex bíla víðsvegar í Reykjavík um helgina og úr þeim stolið ýmsum munum. Á sama tímabili var þremur bílum stolið á höfðuborgarsvæðinu en í tveimur þeirra voru kveikjuláslyklar skildir eftir af eigendum eða umráðamönnum ökutækjanna og því voru hæg heimatökin hjá þjófunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 28.7.2008 19:00
Kúrdar neyta aðild að sprengjutilræðunum í Istanbul Talsmenn Verkamannaflokks Kúrda, PKK, neita því að vera viðriðnir sprengjutilræði í Istanbul í gærkvöldi. Sautján létust í tveimur sprengingunum og hundrað og fimmtíu slösuðust. 28.7.2008 19:00
Dræm lundaveiði í Eyjum Lundaveiði í Vestmannaeyjum hefur verið afar dræm það sem af er veiðitímabilinu. Veiðin er aðeins brot af því sem eðlilegt getur talist. Veiðimenn telja ástæðuna vera þá að ungfuglinn vantar en hann er að öllu jöfnu uppistaðan í veiðinni. 28.7.2008 19:00
Afskaplega ánægður með niðurstöðu dómsins Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóss segist vera mjög sáttur við sýknunina í Héraðsdómi í dag. „Þetta er niðurstaðan sem ég átti von á en ég er mjög ánægður með að þetta hafi verið niðurstaða dómsins," segir Þórhallur. 28.7.2008 16:28
Ökumaður ætlaði aldeilis að hafa vaðið fyrir neðan sig Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur í Hafnarfirði í gærmorgun en bíllinn hans var enn á nagladekkjum. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 28.7.2008 16:10
Árni Johnsen enn að fara yfir stöðuna Einar Hugi Bjarnason, lögfræðingur Árna Johnsen alþingismanns, vildi ekki gefa upp hvort Árni komi til með að stefna Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunblaðsins, fyrir meiðyrði. „Við erum að fara yfir stöðuna en það ætti að liggja fyrir á miðvikudag hvað við gerum," útskýrði Einar Hugi. 28.7.2008 15:05
Obama beinir athyglinni að efnahagsmálum Barack Obama forsetaframbjóðandi Demókrata hefur beint athyglinni frá utanríkismálum að efnahagsmálum í Bandaríkjunum. Hefur hann kallað saman stjörnuráðgjafa til þess að ræða við hann. Er tilgangurinn að reyna að vinna bætur á þeirri lægð sem er í efnahagslífi í Bandaríkjunum. 28.7.2008 13:37
Klístraður jarðvegur gerir Fönix erfitt fyrir á Mars NASA könnunarfarið Fönix hefur undanfarnar vikur ferðast um Mars og sankað að sér ýmsum upplýsingum og sýnum sem gætu svipt hulunni af því hvort einhvern tímann hafi verið líf á plánetunni. 28.7.2008 16:33
10 prósent minni sala á krám í Bretlandi Sala á bjór hefur minnkað um 10 prósent síðastliðið ár á krám í Bretlandi vegna hærra verðs, lokunar kráa og vegna aðhalds neytenda. Á sama tíma hefur sala á bjórum í búðum hækkað um 3,8 prósent. 28.7.2008 15:03
Minnst fjórir handteknir í mótmælum Saving Iceland Að minnsta kosti fjórir hafa verið handteknir í mótmælum Saving Iceland á Hengilssvæðinu. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var fólkinu gefið fyrirmæli um að yfirgefa svæðið og ákveðinn frestur til að hlýða þeim fyrirmælum. 28.7.2008 14:37
Ekki grunaður um ölvunarakstur Ökumaður bifreiðarinnar sem valt á Holtavörðuheiðinni á föstudag liggur ekki undir grun um ölvun við akstur. 28.7.2008 14:09
Harður árekstur á Eyjafjarðarbraut Harður tveggja bíla árekstur varð við Eyjafjarðarbraut vestri við Kjarnaskóg um hálftólf í dag. 28.7.2008 13:37
Leiðbeinendur Vinnuskólans lögðu niður störf Leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur lögðu niður störf í hádeginu. Nemendur Vinnuskólans verða í einhverjum tilfellum sameinaðir í hópa og vinnu haldið áfram, en ljóst er að margir þeirra verða sendir heim. 28.7.2008 12:56
Rannsóknarnefnd flugslysa kannar þrjú atvik tengd Icelandair Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar nú atvik sem varð í gær þegar vél Icelandair var snúið við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í hreyfli. 28.7.2008 12:46
Hlaut opið beinbrot við fall af hesti Alvarlegt hestaslys varð á Völlum í Ölfussi á ellefta tímanum í morgun þegar knapi féll af hesti sínum og varð undir hestinum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi hlaut viðkomandi opið beinbrot og var fluttur á slysadeild. 28.7.2008 12:22
Tuttugu mótmælendur hafa læst sig við vinnuvélar á Hengilssvæðinu Umhverfishreyfingin Saving Iceland stöðvaði í morgun vinnu við eina af helstu jarhitaborholum á Hengilsvæðinu, þar sem Orkuveita Reykjavíkur stækkar nú Hellisheiðarvirkjun. 28.7.2008 12:08
Hnífaleikur á Facebook veldur usla Leikur á vinatengslvefnum Facebook hefur verið fjarlægður þar sem hann gerir notendum kleift að stinga aðra notendur yfir netið. Heitir þessi fítus „Shank" á ensku sem er slangur á götum úti yfir hnífaárás og er mynd af hnífi við fítusinn. Hefur leikurinn valdið miklum usla í Bretlandi sökum gríðarlegs fjölda morða af völdum stunguárása í höfuðborg landsins að síðköstu. 28.7.2008 11:24
Leitarstríðin - Cuil til höfuðs Google Leitarvélin Cuil, sem sett er til höfuðs leitarflaggskipinu Google í samkeppnislegu tilliti, hefur göngu sína á Netinu í dag. Cuil er runnin undan rifjum hjónanna Tom Costello og Önnu Patterson en hún kom að hönnun Google-leitarvélarinnar á sínum tíma. Eiginmaður hennar er prófessor í tölvunarfræðum við Stanford-háskólann. 28.7.2008 10:36
Þrjár sjálfsmorðssprengingar í Baghdad 25 manns létust og um 52 særðust í þremur sjálfsmorðssprengingum í Baghdad í morgun. Fórnalömbin voru Shia-múslimar í pílagrímsför í Baghdad til þess að taka þátt í árlegum hátíðarhöldum þeirra. 28.7.2008 10:23
Rannsókn á Frakkastígsmáli enn ólokið Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bíður enn eftir niðurstöðum réttarkrufningar vegna andláts Pólverja sem féll í götuna af húsi á Frakkastíg í júní. 28.7.2008 10:01
Stór jarðskjálfi við Grímsey í morgun Klukkan 07:09 í morgun varð jarðskjálfti upp á 4,5 á Richter um 13 km austnorðaustur af Grímsey. 28.7.2008 08:08
Telur að Steve Fossett hafi sviðsett dauða sinn Cynthia Ryan yfirmaður í Flugbjörgunarsveit Bandaríkjanna segir að hún telji að ævintýramaðurinn og auðjöfurinn Steve Fossett hafi sviðsett dauða sinn á síðasta ári. 28.7.2008 07:57
Tófa beit konu í fótinn Tófa beit konu í fótinn, þar sem hún var í gönguhópi í hlíðum Húsfells, suðaustur af Hafnarfirði í fyrradag. 28.7.2008 07:56
Leiðbeinendur í vinnuskólanum leggja niður vinnu í dag Hundrað og þrjátíu leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur ætla að leggja niður störf í hádeginu í dag og halda niður í ráðhús, til að fylgja eftir kröfum sínum um launaleiðréttingu. 28.7.2008 07:35
Þrír stripplingar trufluðu landsleik í póló Þrír naktir stripplingar ullu nokkru uppnámi á landsleikjamóti í póló við Windsor-kastalann í gær. Meðal áhorfenda var Karl bretaprins. 28.7.2008 07:33
Fimm ferðamenn sluppu vel úr umferðaróhappi Fimm erlendir ferðamenn sluppu ótrúlega vel, að sögn sjónarvotta, þegar þeir misstu stjórn á bíl sínum á Uxahryggjarvegi um kvöldmatarleitið í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf og endastakkst 28.7.2008 07:32
Fellibylurinn Fung Wong veldur usla á Taiwan Fellibylurinn Fung Wong hefur náð á land á Taiwan og veldur þar töluverðum usla. 28.7.2008 07:30
Dópuð kona ók á brúarstólpa Kona sem var svo vönkuð af lyfjaáti að hún stóð vart í fæturna, missti stjórn á bíl sínum og ók honum á brúarstólpa í nótt, þar sem Krókháls liggur undir Suðurlandsveginn. 28.7.2008 07:28
Skotárás í kirkju kostaði tvo lífið og sjö særða Maður vopnaður haglabyssu réðist inn í kirkju í Tennessee í gær og hóf skothríð á viðstadda. Áður en tókst að yfirbuga manninn hafði hann drepið tvo og sært sjö aðra. 28.7.2008 07:26
Lögreglan leitar að þremur handrukkurum Lögreglan leitar enn þriggja manna , sem grunaðir eru um að hafa misþyrmt manni, sem færður var af heimili sínu í Hafnarfirði aðfararnótt sunnudags og fluttur upp í Heiðmörk. Talið er að um handrukkun hafi verið að ræða. 28.7.2008 07:23
Lundaveiðin framlengd til 15. ágúst Bjargveiðifélag Vestmannaeyja ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að framlengja lundaveiðitímann til fimmtánda ágúst,en til stóð að veiðitímabilinu lyki um mánaðamótin. 28.7.2008 07:20
Kaupmaður dauðans fyrir rétti í Taílandi Rússneski vopnasalinn Viktor Bout verður leiddur fyrir rétt í Taílandi í dag þar sem afstaða verður tekin til þess hvort framselja eigi hann til Bandaríkjanna. 28.7.2008 07:17
Fylgi Obama enn á uppleið Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup í Bandaríkjunum dregur aftur í sundur með þeim Barak Obama og John McCain. Mælist Obama nú með 9% meira fylgi en McCain. 28.7.2008 07:14
Tvær sprengjur kostuðu 16 lífið í Istanbul Að minnsta kosti 16 eru látnir og meir en 150 sárir eftir hryðjuverkaárás í verkamannahverfi í Istanbul höfuðborg Tyrklands í gærkvöldi. 28.7.2008 07:12
Gríðarlegir eldar í Kalíforníu Um tvö þúsund heimili eru í hættu vegna elds sem braust út nærri Yosemite þjóðgarðinum í Kalíforníu á föstudag 27.7.2008 20:34
Tvö þúsund manns á skátamóti á Akureyri Um tvö þúsund manns eru á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri en þáttakendur koma frá fjórtán löndum. 27.7.2008 19:05