Erlent

Kaupmaður dauðans fyrir rétti í Taílandi

Rússneski vopnasalinn Viktor Bout verður leiddur fyrir rétt í Taílandi í dag þar sem afstaða verður tekin til þess hvort framselja eigi hann til Bandaríkjanna.

Bout hefur viðurnefnið Kaupmaður dauðans og talið er að kvikmyndin Lord of War frá árinu 2005 byggi á æfi hans. Bout er grunaður um að hafa selt Farc-skæruliðunum í Kólombíu loftvarnaflaugar sem notaðar hafa verið til að skjóta niður þyrlur með bandarískum fíkniefnalögreglumönnum.

Á kúnnalista Bout eru einnig Talibanar, stuðningsmenn Osama bin Laden og Charles Taylor fyrrum einræðisherra í Líberíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×