Erlent

Skotárás í kirkju kostaði tvo lífið og sjö særða

Maður vopnaður haglabyssu réðist inn í kirkju í Tennessee í gær og hóf skothríð á viðstadda. Áður en tókst að yfirbuga manninn hafði hann drepið tvo og sært sjö aðra.

Í kirkjunni voru um 200 manns að horfa á barnaleikritið Annie er maðurinn ruddist þar inn. Hóp af gestunum tókst að yfirbuga manninn. Að sögn lögreglunnar er árásarmaðurinn á fertugslaldri og mun hafa falið haglabyssuna í gítarkassa.

Ekkert hefur hinsvegar verið gefið uppi um hver þetta sé né ástæðuna fyrir árásinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×