Erlent

10 prósent minni sala á krám í Bretlandi

Sala á bjór hefur minnkað um 10 prósent síðastliðið ár á krám í Bretlandi vegna hærra verðs, lokunar kráa og vegna aðhalds neytenda. Á sama tíma hefur sala á bjórum í búðum hækkað um 3,8 prósent.

Hefð er fyrir mikilli kráarmenningu í Bretlandi og hafa fjöldamargir atvinnu af því að afgreiða bjór þar í landi. Er því talið að þessi samdráttur gæti haft töluverð áhrif þar í landi. Reykingarbann tók gildi á krám í Bretlandi 1. júlí 2007 sem breytti einnig kráarmenningunni til muna.

107 milljónir færri hálfpottar (pints) voru seldir á tímabilinu apríl til júní í ár en á sama tímabili í fyrra sem þýðir 1,2 milljónir færri hálfpottar á dag.

Hefur bjórsala á krám ekki verið minni síðan í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×