Erlent

Þrír stripplingar trufluðu landsleik í póló

Þrír naktir stripplingar ullu nokkru uppnámi á landsleikjamóti í póló við Windsor-kastalann í gær. Meðal áhorfenda var Karl bretaprins.

Stöðva þurfti landsleikinn milli Englands og Ástralíu meðan reynt var að koma höndum á stripplingana. Tveir þeirra hlupu aftur í áhorfendastæðin en einum tókst að flýja undan öryggisvörðum yfir tvær hindranir gestum til töluverðrar skemmtunnar.

Ekki fer sögum af viðbrögðum Karls prins en England vann síðan leikinn með 10 mörkum gegn 9.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×