Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sluppu lítið meiddar í veltu við Litlu kaffistofuna Tvær konur sluppu lítið meiddar þegar önnur þeirra missti stjórn á bíl sínum á hálku á Suðurlandsvegi skammt vestan við Litlu kaffistofuna á níunda tímanum í morgun. 13.3.2008 12:40
Öllum barnaskólum lokað í Hong Kong vegna flensu Öllum leik- og barnaskólum í Hong Kong hefur verið lokað eftir að dularfull flensa dró fjögur börn til bana. Um tvö hundruð eru sýktir. 13.3.2008 12:31
Alvarlegum umferðarslysum fjölgaði verulega í fyrra Þrettán færri banaslys urðu í umferðinni í fyrra en árið áður og varð aðeins eitt þeirra í þéttbýli. Alvarleglum umferðarslysum þar sem allir halda lífi fjölgar hins vegar verulega. 13.3.2008 12:28
Þungt hljóð í lögreglumönnum á Suðurnesjum Þungt hljóð var í lögreglumönnum á Suðurnesjum á fjölmennum fundi þeirra í gær þar sem staða lögreglunnar var rædd sem og fregnir af niðurskurði innan embættisins. 13.3.2008 12:15
Evrópuþingið hálfrar aldar gamalt Hálfrar aldar afmæli Evrópuþingsins var fagnað í Strassborg í Frakklandi í gær. Á upphafsárunum var það fremur áhrifalítið en til þess leituðu ríkisstjórnir aðildarlanda Evrópusambandsins með valin mál. 13.3.2008 12:09
Vill bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás Atli Gíslason, þingmaður Vinstri - grænna, vill bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás. Þetta sagði hann í samtali við Bítið á Bylgjunni þar sem sýknudómur yfir tveimur Litháum frá í gær var til umræðu. Lögreglufélag Reykjavíkur segir dóminn hneyksli. 13.3.2008 12:09
Setur skilyrði fyrir samruna á markaði fyrir fólksflutninga Samkeppniseftirlitið hefur sett ákveðin skilyrði fyrir samruna Reynimels ehf. og Kynnisferða sem sinna fólksflutningum. Á vef stofnunarinnar kemur fram að hún hafi ógilt samrunann í fyrra þar sem hann hindraði samkeppni á markaði fyrir fólksflutninga. 13.3.2008 12:03
Viðskiptafréttum troðið upp á Íslendinga „Það er ekki þannig i Danmörku að einhver Stine Pedersen, sem er búin að kaupa sér sólarferð til Spánar, kippi sér upp við þótt íslensku bankarnir séu komnir með hátt skuldatryggingarálag. 13.3.2008 11:54
Boðað til kosninga í Serbíu Boris Tadic forseti Serbíu hefur leyst upp þingið og boðað til skyndikosninga 11. maí. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Vojislav Kostunica forsætisráðherra sagði af sér í síðustu viku þegar ríkisstjórn hans féll. Ráðherrum hafði mistekist að komast að samkomulagi hvort slíta ætti tengslum við Evrópusambandið í mótmælaskyni við viðurkenningu einhverra Evrópulanda á sjálfstæði Kosovo. 13.3.2008 11:53
Bæjarráð Sandgerðisbæjar styður lögreglumenn Bæjarráð Sandgerðisbæjar leggur þunga áherslu á óviðunandi ástand í löggæslumálum á Suðurnesjum og tekur undir ályktun löggæslumanna og tollvarða í umdæmi Lögreglustjórans á Suðurnesjum um niðurskurð fjárveitinga til löggæslumála á svæðinu. 13.3.2008 11:49
Ísraelskar herþotur skutu á Gaza Ísraelskar þotur réðust á norðurhluta Gazastrandar í morgun eftir að herskáir palestínumenn skutu eldflaugum yfir landamærin til Ísrael. Árásin kemur í kjölfar örfárra daga þar sem nokkur ró hefur ríkt milli stríðandi fylkinga í Ísrael og Palestínu. 13.3.2008 11:37
Framkvæmdir við Suðurlandsveg og Vaðlaheiðargöng hefjast næsta vor Kristján L. Möller, samgönguráðherra, kynnti í morgun viðauka við samgönguáætlun fyrir árin 2007 - 20010. Þar ber einna hæst að hafist verður handa við tvöföldun Suðurlandsvegar og jarðgöng undir Vaðlaheiði á fyrri hluta árs 2009. Forsaga viðaukans er sú að í kjölfar niðurskurðar þorskkvótans ákvað ríkisstjórnin að grípa til mótvægisaðgerða í formi samgönguframkvæmda. 13.3.2008 11:35
Bauðst til að stýra stjórnarandstöðuskóla Mörður Árnarson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, bauðst til að stýra skóla í stjórnarandstöðu á Alþingi í dag þegar hann gagnrýndi stjórnarandstöðuna fyrir máttleysi. Verið var að ræða um það hvers vegna utandagskrárumræða um útboð á heilli deild á Landspítalanum færi ekki fram þegar Mörður sté í pontu. 13.3.2008 11:30
Olíuverðið komið vel yfir þolmörk útgerðarinnar Stöðugar hækkanir á heimsmarkaðsverði olíu eru farnar að koma verulega illa við útgerðina í landinu. Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ segir að verðið nú sé komið langt yfir þolmörk útgerðarinnar. 13.3.2008 11:16
Með kúffiskveiðiskip í togi Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar er nú með kúffiskveiðiskipið Fossá ÞH í togi eftir að Fossá fékk veiðarfæri í skrúfuna þegar skipið var statt austur af Langanesi undir morgun. 13.3.2008 11:14
Lög um lífeyrisréttindi þingmanna eru hneyksli Það er dæmigert skeytingaleysi þingmanna að frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur um breytingar á lífeyrisréttindum þingmanna skuli hafa legið í þinginu svo mánuðum skipti. Þetta segir Grétar Þorsteinsson, formaður ASÍ. 13.3.2008 11:09
Segist hafa haft samþykki fyrir samræði Einn af þeim fimm Litháum sem handteknir voru um helgina grunaðir um að hafa nauðgað konu í húsi við Reynimel hefur játað að hafa haft samræði við konuna. Sá segist hins vegar að það hafi verið með hennar samþykki. 13.3.2008 11:05
Heilbrigðiskerfinu gjörbylt án umræðu á þingi Stjórnarandstöðuþingmenn deildu hart á Guðlaug Þór Þórðarssson á Alþingi í morgun fyrir að vilja ekki ræða það sem þeir kölluðu einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Verið væri að gjörbylta heilbrigðisráðuneytinu án umræðu á þingi. 13.3.2008 11:05
Saumavélasalar handteknir á Selfossi Lögreglan á Selfossi stöðvaði sölu á saumavélum á Selfossi í gær. „Ástæðan var beiðni frá Neytendastofu um að kanna heimild erlendra aðila til sölu á saumavélunum frá þekktum framleiðanda," segir í á heimasíðu lögreglunar á Selfossi. „Aðdragandi málsins var sá að erlendir aðilar höfðu flutt inn hátt á fimmta hundrað saumavéla til landsins sem þeir ætluðu að selja á fjórum dögum. Salan fór fram í Reykjavík, Hafnarfirði og á Selfossi. Saumavélarnar og sölustaðir voru auglýstir opinberlega." 13.3.2008 10:50
Undirferli, sjálfselska og spilling grasserar í maurabúum Nýjar rannsóknir benda til að undirferli, sjálfselska og spilling grasseri í maurabúum en hingað til hefur lífið þar verið talið fyrirmynd samvinnu og samfélagslegrar hegðunar. 13.3.2008 10:49
UPS-smyglið staðið yfir síðan 2005 Í gögnum sem lögregla hefur lagt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Hæstarétt kemur fram að grunur leiki á að hraðsendingarsmyglið sem upp komst á Keflavíkurflugvelli í nóvember hafi staðið yfir síðan á vormánuðum 2005. 13.3.2008 10:37
Hundruð veikjast eftir eiturefnaleka í Kenía Hundruð manns í nágrenni hafnarborgarinnar Mombasa í Kenía segjast hafa orðið veikir eftir að gámar láku kemískum efnum í Kipevu nálægt höfninni. Vitni sögðu BBC að gámarnir hefðu verið skildir fyrir mánuði síðan af vörubílsstjóra sem tók eftir lekanum. Ekki er ljóst hvað er í gámunum, en talið að þeir geti innihaldið saltpéturssýru. 13.3.2008 10:22
Dæmdur fyrir að hrinda konu í Melabúðinni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 30 daga fangelsi fyrir að hafa ráðist á konu í Melabúðinni og hrint henni þannig að hún féll aftur fyrir sig á gólf verslunarinnar og hlaut meðal annars heilahristing og taugaáfall. 13.3.2008 10:15
Sex létust í sjálfsmorðsárás í Kabúl Sex manns létust og að minnsta kosti 18 slösuðust í sjálfsmorðsbílasprengju í Kabúl höfuðborg Afghanistan í morgun. Sprengjunni var beint gegn bílalest nálægt alþjóðaflugvellinum. Embættismenn segja að bíll hafi keyrt upp að brynvörðum bíl bandalagshermanna á háannatíma í umferðinni og sprungið. 13.3.2008 10:03
Heildarafli dróst saman um 27 prósent milli ára Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, reyndist 27 prósentum minni en á sama tíma í fyrra. 13.3.2008 09:23
Útflutningur og einkaneysla drifu áfram hagvöxt í fyrra Hagvöxtur á landinu reyndist 3,8 prósent í fyrra samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar um landsframleiðslu. Þar segir að landsframleiðslan hafi numið tæplega 1280 milljörðum og jókst hún um 3,8 prósent sem fyrr segir. Til samanburðar var hagvöxtur 4,4 prósent árið 2006 en vel yfir sjö prósent árin 2004 og 2005. 13.3.2008 09:04
Slasaðist í bílveltu við Litlu kaffistofuna Kona slasaðist þegar hún missti stjórn á bíl sínum á hálku á Suðurlandsvegi skammt vestan við Litlu kaffistofuna nú á níunda tímanum. 13.3.2008 09:00
Engin bein tengsl milli Saddams og al-Qaida Engin bein tengsl voru á milli Saddams Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og al-Qaida hryðjuverkasamtakanna eins og George Bush Bandaríkjaforseti og samverkamenn hans héldu fram ítrekað. 13.3.2008 08:52
Fangaverðir átu eitraða köku frá föngum Fjórir fangaverðir í fangelsinu í Nyborg í Danmörku liggja nú á sjúkrahúsi eftir að hafa borðað köku sem fangarnir bökuðu handa þeim. 13.3.2008 08:32
Dómarar stígi úr fílabeinsturni sínum Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur segir nýfallinn dóm í máli þar sem ráðist var á lögreglumenn við skyldustörf hneyksli og spurt er hvort dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur búi í sama samfélagi og lögreglumenn. 13.3.2008 08:19
Rússnesk yfirvöld ákæra bloggara í fyrsta sinn Rússneska yfirvöld hafa ákveðið að ákæra bloggara fyrir skrif sín á vinsælli netsíðu í landinu. Bloggarinn er ákærður fyrir að blása upp hatur í garð lögreglu landsins. 13.3.2008 08:15
Þorskafli minni en sem nemur niðurskurði Þorskaflinn það sem af er fiskveiðiárinu sem hófst 1. september er minni en sem nemur miklum niðurskurði á kvótanum á þessu fiskveiðiári. 13.3.2008 08:11
Móðir faldi 15 kíló af kókaíni á börnum sínum Tollvörðum á Heathrow-flugvelli í London brá í brún er þeir stoppuðu móður með tvö börn sín þar. Móðirin hafði límt 15 kíló af kókaíni á fætur barnanna sem eru 11 ára gömul stúlka og 13 ára gamall drengur. 13.3.2008 08:11
Skelfisksbátur fékk veiðarfærin í skrúfuna Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Raufarhöfn og Vopnafirði eru nú á leið til skelfisksbáts frá Þórshöfn sem fékk veiðarfærin í skrúfuna um klukkan hálf fimm í nótt þegar báturinn var austur af Langanesi. 13.3.2008 08:09
Gripu mann eftir innbrotstilraun í nótt Lögreglan greip í nótt mann, sem grunaður er um að hafa ætlað að brjótast inn í söluturn í Þingholtunum í Reykjavík með því að brjóta þar rúðu. 13.3.2008 08:05
Leik-og barnaskólum í Hong Kong lokað vegna flensu Yfirvöld í Hong Kong hafa ákveðið að loka öllum leik- og barnaskólum borgarinnar eftir að dularfull flensa olli því að þrjú börn létust og eitt liggur þungt haldið á sjúkrahúsi. 13.3.2008 08:00
Vændiskonan sem felldi Spitzer er tilvonandi söngkona Vændiskonan sem kostaði Eliot Spitzer ríkisstjóra í New York starfið er 22 ára gömul söngkona sem reynt hefur án árangurs að koma sér áfram á tónlistarsviðinu. 13.3.2008 07:50
Loftið í 100 borgum Bandaríkjanna er hættulegt fólki Andrúmsloftið í yfir 100 borgum og bæjum í Bandaríkjunum er nú svo mengað að það er talið hættulegt fólki. Því hafa yfirvöld ákveðið að herða reglur um losun mengandi efna. 13.3.2008 07:45
Fjörutíu ára samráð á olíuverði til ÍSAL „Tek heils hugar undir þetta. Óþolandi glannaskapur, svona á að afhenda yfir borð eða í mesta falli boðsent til JH [Jóns Halldórssonar],“ sagði Einar Benediktsson, forstjóri Olís, eftir að Kristján B. Ólafsson, fyrrverandi fjármálastjóri Olís, hafði sent honum skilaboðin: „Fékk inn á borð fax frá Shell vegna Ísals-útboðs. Skil ekki að Shell sendi fax út af verðum í þessu útboði, það er allt of varasamt.“ 13.3.2008 06:00
Í einangrun í fimm mánuði í Færeyjum Íslendingurinn sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í Færeyjum frá 20. september vegna meintrar aðildar að Pólstjörnumálinu, er enn í einangrun. Hann var síðast úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald og einangrun 7. mars. Hann áfrýjaði til æðra dómsstigs, sem staðfesti úrskurðinn á mánudag. Maðurinn sem er 25 ára hefur setið í einangrun í rétta tæpa fimm mánuði, eða megnið af tímanum frá því að hann var handtekinn. 13.3.2008 00:01
Hættir í fjáröflunarnefnd Clinton vegna ummæla um Obama Geraldine Ferraro, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður og varaforsetaefni, hefur sagt af sér sem fulltrúi í fjárölfunarnefnd Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda demókrata, vegna umdeildra ummæla sem hún lét falla um aðalkeppninaut Clinton um útnefningu demókrata, Barack Obama. 12.3.2008 21:47
Sífellt fleiri múslímalönd sniðganga danskar vörur Sífellt fleiri lönd múslíma ákveða að sniðganga danskar vörur í kjölfar þess að deilan um skopmyndirnar af Múhameð spámanni hafa blossað upp aftur. Frá þessu greinir útflutningsráð Danmerkur í samtali við Danska ríkisútvarpið. 12.3.2008 23:40
Hafa þungar áhyggjur af yfirvofandi niðurskurði Félagar í Lögreglufélagi Suðurnesja lýsa yfir þungum áhyggjum af yfirvofandi niðurskurði hjá embætti lögreglu- og tollstjórans á Suðurnesjum. 12.3.2008 22:00
Beðið eftir matsgerð í máli Alcan gegn olíufélögum Fyrirtaka var í máli Alcan á hendur stóru olíufélögunum þremur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en málinu var frestað fram í maí þar sem beðið er eftir matsgerð frá matsmanni. 12.3.2008 21:25
Umhverfisráðherra um álverið í Helguvík Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra lýsir furðu sinni á ákvörðun sveitarstjórna Reykjanesbæjar og Garðs um að veita álveri Norðuráls sf. í Helguvík framkvæmda- og byggingarleyfi. Í ljósi þess að málið er enn til umfjöllunar í umhverfisráðuneytinu og vegna þeirra álitaefna sem Skipulagsstofnun vakti athygli á í áliti sínu um mat á umverfisáhrifum verksmiðjunnar, þá telur umhverfisráðherra að efast megi um réttmæti slíkrar leyfisveitingar á þessari stundu. 12.3.2008 20:27