Innlent

Sluppu lítið meiddar í veltu við Litlu kaffistofuna

MYND/GVA

Tvær konur sluppu lítið meiddar þegar önnur þeirra missti stjórn á bíl sínum á hálku á Suðurlandsvegi skammt vestan við Litlu kaffistofuna á níunda tímanum í morgun.

Talið er að bíllinn hafi oltið tvær veltur uns hann nam staðar. Konurnar voru fluttar á slysadeild Landsspítalans þar sem gert var að sárum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×