Innlent

Gripu mann eftir innbrotstilraun í nótt

Lögreglan greip í nótt mann, sem grunaður er um að hafa ætlað að brjótast inn í söluturn í Þingholtunum í Reykjavík með því að brjóta þar rúðu.

Við það fór þjófavarnakerfi í gang og tók maðurinn þá til fótanna. Sá handtekni hefur áður gerst brotlegur fyrir innbrot og fleira.

Lögreglan náði manninum þar sem hann var á gangi eftir Hverfisgötunni skömmu eftir innbrotstilraunina




Fleiri fréttir

Sjá meira


×