Segist hafa haft samþykki fyrir samræði 13. mars 2008 11:05
Einn af þeim fimm Litháum sem handteknir voru um helgina grunaðir um að hafa nauðgað konu í húsi við Reynimel hefur játað að hafa haft samræði við konuna. Sá segist hins vegar að það hafi verið með hennar samþykki. Allir fimm verða látnir lausir í dag. Lögregla hyggst fara fram á mennirnir verði úrskurðaðir í farbann. Konan sem um ræðir er stödd hér á landi tímabundið. Hún starfar fyrir erlent ráðgjafafyritæki og er á Íslandi til að sinna ákveðnu verkefni. Í gögnum lögreglu kemur fram hún hafi verið að skemmta sér í miðbænum aðfararnótt sunnudagsins síðasta og hafi hún orðið viðskila við vini sína. Hún hafi farið heim til sín en ekki komist inn því vinur hennar hafi verið með lykilinn að húsinu. Maður nokkur hafi gefið sig á tal við hana og kvaðst vera kunningi konu nokkurrar sem hún hafði kynnst um kvöldið. Hann hafi sagt við hana að hún yrði örugg hjá þeim. Hún hafi gengið með honum heim til hans og hafi hann dregið fram dýnu og fengið henni lak. Hún hafi lagst til svefns í öllum fötum að undanskilinni yfirhöfn sinni. Hún kvaðst muna óljóst eftir þremur öðrum mönnum í íbúðinni. Konan kvaðst einnig muna óljóst eftir því að maðurinn sem hafi boðið henni heim hafi lagst hjá henni og kysst hana á hálsinn. Hún hafi ýtt honum frá sér og haldið áfram að sofa. Næst myndi hún eftir sér er maður hafði við hana samfarir um leggöng. Hún hafi þá verið annars staðar í íbúðinni á tvíbreiðu rúmi og nakin að neðan. Hún hafi rokið á fætur og tekið saman þau föt sem hún hafði fundið og hlaupið út. Hún hafi stöðvað mann sem kom akandi og hann hafi ekið henni heim. Taldi hún klukkuna hafa verið um sjö að morgni. Vinur hennar hafi í kjölfarið ekið henni á sjúkrahúsið. Lögreglan ók svo með konuna um bæinn og kannaðist hún við sig þegar að húsinu á Reynimel var komið. Reyndist það vera meintur brotavettvangur. Fimm menn af litháískum uppruna eru nú í haldi lögreglu en þeir voru allir staddir í íbúðinni er lögregluna bar að garði. Konan komst í mikið uppnám á vettvangi þegar hún þekkti manninn aftur sem hafði boðið henni inn í húsið. Eins og fyrr segir rennur gæsluvarðhaldið yfir mönnunum út í dag. Lögregla hyggst krefjast þess að mennirnir verða þess í stað settir í farbann þar til dómur falli í málinu.
Mest lesið Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Árekstur í Urriðaholti Innlent Fleiri fréttir Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Sjá meira