Setur skilyrði fyrir samruna á markaði fyrir fólksflutninga 13. mars 2008 12:03 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. MYND/Páll Bergmann
Samkeppniseftirlitið hefur sett ákveðin skilyrði fyrir samruna Reynimels ehf. og Kynnisferða sem sinna fólksflutningum. Á vef stofnunarinnar kemur fram að hún hafi ógilt samrunann í fyrra þar sem hann hindraði samkeppni á markaði fyrir fólksflutninga. Reynimelur var stofnaður af hópferðafyrirtækjunum SBA-Norðurleið og Hagvögnum/Hópbílum og keypti félagið Kynnisferðir af FL Group en Kynnisferðir sinna meðal annars akstri á Keflavíkurflugvöll. Eftir að Samkeppniseftirlitið hafði hafnað samrunananum var send önnur tilkynning um kaup Reynimels á Kynnisferðum en með breyttu eignarhaldi. Í því fólst meðal annars að SBA-Norðurleið og tengdir aðilar, sem áður voru hluthafar í Reynimel, seldu sína eignarhluti í félaginu. Þetta þótti Samkeppniseftirlitinu ekki nóg og því hefði samruninn eftir sem áður skaðleg áhrif á samkeppni. Í kjölfarið hófust viðræður sem leiddu til þess að Reynimelur hefur gengist undir sátt í málinu. Hún felur í sér skilyrði í þremur töluliðum sem meðal annars kveða á um frekari breytingar á eignarhaldi í Reynimel sem fela það í sér að Hagvagnar/Hópbílar muni ekki lengur hafa yfirráð yfir Reynimel og þar með ekki yfir keppinauti sínum Kynnisferðum. Þá mun fullur rekstrar- og stjórnunarlegur aðskilnaður vera á milli Hagvagna/Hópbíla annars vegar og Reynimels/Kynnisferða hins vegar. Þessi skilyrði eru að mati Samkeppniseftirlitsins nægjanleg til þess að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem ella hefðu skapast með samrunanum.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Sjá meira