Umhverfisráðherra um álverið í Helguvík 12. mars 2008 20:27 Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra lýsir furðu sinni á ákvörðun sveitarstjórna Reykjanesbæjar og Garðs um að veita álveri Norðuráls sf. í Helguvík framkvæmda- og byggingarleyfi. Í ljósi þess að málið er enn til umfjöllunar í umhverfisráðuneytinu og vegna þeirra álitaefna sem Skipulagsstofnun vakti athygli á í áliti sínu um mat á umverfisáhrifum verksmiðjunnar, þá telur umhverfisráðherra að efast megi um réttmæti slíkrar leyfisveitingar á þessari stundu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Umhverfisráðuneytinu nú í kvöld. Þar kemur einnig fram að í umhverfisráðuneytinu er nú unnið að úrskurði í máli Landverndar sem kærði ákvörðun Skipulagsstofnunar um að nýta ekki heimildir sínar til þess að láta framkvæma heildstætt umhverfismat fyrir álver í Helguvík og tengdar framkvæmdir. Þetta er í fyrsta skipti sem reynir á þetta ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum og því telur umhverfisráðherra að það hefði verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti ef sveitarfélögin hefðu beðið með að taka næsta skref í málinu þar til að úrskurður ráðherra liggur fyrir. Nokkur dráttur hefur orðið á úrskurði ráðuneytisins, m.a. vegna þess að Norðuráli sf. var að ósk fyrirtækisins í tvígang veittur frestur til að koma athugasemdum á framfæri. Gögn frá fyrirtækinu bárust ráðuneytinu mánudaginn 3. mars síðastliðinn. Úrskurðar ráðuneytisins er að vænta fyrir næstu mánaðamót. Í áliti sínu um mat á umhverfisáhrifum álvers í Helguvík beindi Skipulagsstofnun því til viðkomandi sveitarstjórna að niðurstaða um ýmis álitaefni lægju fyrir áður en framkvæmda- og byggingarleyfi yrði gefið út fyrir álverið. Í álitinu segir m.a að stofnunin bendi á að þeir virkjanakostir sem Hitaveita Suðurnesja hyggist nýta vegna fyrsta áfanga álversins eiga eftir að fara í umfjöllun samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og að sveitarfélögin þurfa að huga vel að þessari stöðu þegar kemur að leyfisveitingum. Þá sagði einnig í álitinu að Skipulagsstofnun teldi að vegna óvissu um flutningsleiðir raforku þyrftu sveitarfélögin að huga að því hvort bíða ætti með leyfisveitingar fyrir byggingu álversins þar til niðurstaða í þeim efnum lægi fyrir. Einnig taldi stofnunin að áður en Noðuráli sf. yrði veitt framkvæmda- og byggingarleyfi þyrfi að liggja fyrir hvort fyrirtækið fengi þær heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda sem þyrfti eða hefði sýnt veitanda losunarheimilda fram á hvernig losun gróðurhúsalofttegunda yrði mætt. Lögum samkvæmt þarf sveitarstjórn að taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar og er það í raun forsenda þess að leyfi verði veitt. Hægt er að bera slíkar leyfisveitingar undir úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. Í ráðuneytinu var það tekið til athugunar hvort lagaskilyrði fyrir frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar væru fyrir hendi. Að mati lögfræðinga ráðuneytisins reyndist svo ekki vera eins og á stóð.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira